Þrengt að möguleikum hælisleitenda á að fá réttaráhrifum frestað

„Þess ber að geta að kostnaður við hvern umsækjanda í þjónustu er 8.000 kr. fyrir hvern dag,“ segir í frumvarpi Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra þar sem lagt er til að girt verði varanlega fyrir að kærur hælis­leitenda fresti réttar­áhrifum ákvörðunar Útlendinga­stofnunar um brott­vísun í tilvikum þar sem hælis­umsókn hefur verið metin bersýni­lega tilhæfu­laus og umsækjandi kemur frá landi sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki.

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra hefur lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að girt verði varanlega fyrir að kærur hælis­leitenda fresti réttar­áhrifum ákvörðunar Útlendinga­stofnunar um brott­vísun í tilvikum þar sem hælis­umsókn hefur verið metin bersýni­lega tilhæfu­laus og umsækjandi kemur frá landi sem er á lista stofnunarinnar yfir örugg ríki. Með þessum laga­breytingum yrði fest í sessi sú regla sem lögfest var til bráða­birgða síðasta haust og Stundin fjallaði um.

Í greinar­gerð frum­varpsins er bent á að hælis­umsóknum fólks frá öruggum ríkjum, einkum Makedóníu og Albaníu, hafi fjölgað umtals­vert. Með frum­varpinu sé stefnt að því að lágmarka dvalar­tíma fólksins á Íslandi. Fullyrt er að þrátt fyrir þetta sé „hvorki slegið af kröfum til rétt­látrar máls­meðferðar né rétti umsækjanda um alþjóð­lega vernd til að fá ákvörðun Útlendinga­stofnunar endur­skoðaða af kærunefnd útlendinga­mála“. Þá er tekið sérstak­lega fram að „kostnaður við hvern umsækjanda í þjónustu“ sé „8.000 kr. fyrir hvern dag sem þeir dvelja í þjónustu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár