Skipar þá sem nefndin taldi hæfasta þrátt fyrir að vantreysta hæfnismatinu

Guðlaugur Þór Þórðarson settur dómsmála­ráðherra efast um að tilteknir dómarar séu jafn hæfir og sjálfstæð dómnefnd komst að niður­stöðu um, en skipar dómarana samt.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Utan­rík­is­ráð­herra er stað­geng­ill Sigríðar Andersen við skipan dóm­ara, vegna löbrots hennar við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Mynd: xd.is

Guðlaugur Þór Þórðarson, settur dómsmála­ráðherra, skipaði í dag þá átta umsækjendur um stöðu héraðs­dómara sem dómnefnd taldi hæfasta þrátt fyrir að vera „enn engu nær um innbyrðis vægi þeirra sjónar­miða sem lágu til grund­vallar mati nefndarinnar“. 

Ráðherrann greinir frá þessu í bréfi sem birtist á vef stjórnar­ráðsins í dag. Áður hafði hann sent dómnefndinni harðort bréf og gert athuga­semdir við umsögn um hæfni umsækjenda í tíu liðum. Af bréfinu mátti ráða að Guðlaugur hefði sérstakar áhyggjur af því að reynsla Ingiríðar Lúðvíks­dóttur setts héraðs­dómara og Daða Kristjáns­sonar saksóknara væri ofmetin í umsögn dómnefndarinnar, en að það hallaði á hæstaréttar­lögmennina Jónas Jóhannsson og Indriða Þorkelsson. 

„Þrátt fyrir að ýmsar nýjar upplýsingar hafi komið þar fram lét nefndin hjá líða að svara veiga­miklum athuga­semdum og spurningum ráðherra,“ segir Guðlaugur í nýja bréfinu. „Nefndin svaraði því ekki heldur hvernig umsækjendur stóðu sig í viðtölum og hvert vægi viðtal­anna var, þrátt fyrir að hún hafi sérstak­lega tekið fram að við matið hafi talsvert verið lagt upp úr viðtölum við umsækjendur. Þá útskýrði nefndin ekki hvernig hið svokallaða „heild­stæða mat“ hennar fór fram, en eins og rakið er í bréfi setts ráðherra frá 29. desember er umsögnin að minnsta kosti rökstudd eins og um sé að ræða mjög hlutlægan samanburð á milli umsækjenda í einstökum mats­þáttum og fer lítið fyrir hinu heild­stæða mati.“

Segist Guðlaugur vera litlu nær um það mat sem fór fram á vettvangi nefndarinnar. Óeðlilegt sé að nefndin svari ekki spurningum hans með greinar­góðum hætti, enda geri það ráðherra erfitt um vik að sinna skyldum sínum sem sá aðili sem fer með skipunar­valdið og ber lagalega ábyrgð á ferlinu öllu. 

Fram kemur að ráðherra hafi ekki þótt æskilegt, tímans vegna, að óska eftir nýrri umsögn dómnefndarinnar. Ef hann hefði vikið frá umsögninni og lagt fram tillögu til Alþingis um að skipa aðra umsækjendur í dómara­embættin að undan­genginni sjálf­stæðri rannsókn hefði slíkt tekið margar vikur og sett starfsemi héraðs­dómstólanna í tíma­bundið uppnám, enda áttu dómararnir að taka til starfa í upphafi nýs árs. 

„Í þessari þröngu stöðu, vegna þess tímahraks sem dómnefndin setti settan ráðherra í, og vegna hinnar einstreng­ingslegu afstöðu dómnefndar sem birtist í svarbréfi hennar, átti settur ráðherra ekki annan kost en að skipa þá sem dómnefndin taldi hæfasta, þótt settur ráðherra hafi í raun ekki haft fullnægjandi forsendur til að meta réttmæti þeirrar niður­stöðu,“ skrifar Guðlaugur sem tekur sérstak­lega fram að í þessu felist þó ekki „að kastað sé rýrð á þá sem dómnefndin taldi hæfasta til að gegna dómara­embættunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár