Íhuga að banna tölvur í flugi til og frá Bandaríkjunum

Ótti við hryðju­verk sem framin eru í gegnum fart­völvur er nú orðinn það mikill hjá stjórn­völdum í Banda­ríkjunum að þau íhuga að banna tölvur alfarið.

Bandaríkja­stjórn Donalds Trumps íhugar nú alvarlega að banna fartölvur í farþega­rýmum flugvéla á öllum flug­leiðum til og frá Banda­ríkjunum. Frá þessu greindi John Kelly, heimavarnar­ráðherra Banda­ríkjanna, í viðtali við Fox í gær.

Kelly segir hryðju­verkamenn einblína nú á að granda farþega­flugvélum, þá sérstak­lega frá bandarískum flug­félögum þar sem farþegarnir eru flestir bandarískir. Þegar er bannað að taka með sér fartölvur, spjald­tölvur og önnur raftæki stærri en snjall­síma í farþega­rými flugvéla frá tíu borgum í Mið-Austur­löndum og Afríku, en Kelly segir til greina koma að banna með öllu að taka með sér tölvur í farþega­rými.

Þegar hefur verið greint frá því að stjórn­völd í Banda­ríkjunum vilji leggja bannið á öll flug til og frá Evrópu­sambands­ríkjum þar sem hryðjuverka­ógnin sem þaðan kemur, að mati stjórn­valda í Banda­ríkjunum, er veruleg um þessar mundir.

Kelly sagði stjórn­völd leita leiða til efla öryggi, meðal annars með nýrri tækni.

Ef til þessa banns kæmi myndi það hafa gríðar­lega víðtæk áhrif á öryggis­gæslu í flugi og einnig á breyta miklu fyrir fjölda farþega sem nýtir tölvu á flug­leiðum, meðal annars til vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár