Landhreinsun að afhjúpa svikamiðil

Frú Lára Ágústs­dóttir var fyrir 75 árum dæmd fyrir að halda miðils­fundi, enda loddari. Lögreglu­maður kom upp um hana en Halldór Laxness fór á kostum á hennar kostnað.

Frú Lára
Frú Lára Hér má sjá mið­il­inn í ham. Takið eftir gard­ín­unni.

Í kjölfar síðasta þáttar af Brestum fór af stað umræða um miðla og sitt sýndist hverjum um ágæti eða loddara­skap þeirra. Fyrir 75 árum var öldin þó önnur en þá voru miðlar dæmdir í fangelsi á Íslandi. Þann 26. október árið 1940 véku fréttir af heim­styrjöldinni af forsíðu Alþýðu­blaðsins fyrir þann merka atburð að „frú Lára“ svika­miðill væri komin í gæslu­varðhald ásamt hjálpar­mönnum sínum. Í dag koma blaða­útgefendur miðlum fremur til varnar en að segja frá gæslu­varðhaldi þeirra á forsíðum sínum.

„Frú Lára Ágúst­dóttir, sem alþekkt er hér í bænum og víðar af hinum svokölluðu miðils­fundum sínum, liggur nú í Lands­spítalanum og er þar í gæzluvarðhaldi lögreglunnar. Hefur hún nú, eftir allnákvæma rannsókn lögreglunnar, játað að hafa framið svik í sambandi við hina svokölluðu andafundi sína, er hún hefir haft fjölda mörg undan­farin ár og selt aðgang að,“ segir í frétt Alþýðu­blaðsins. Frú Lára var síðar dæmd fyrir svik sín.

Þórhallur miðill
Þórhallur miðill Björn Ingi Hrafnsson kom Þórhalli til varnar á dögunum og sagði það ekkert trufla sig að einhverjir telji lítið vit í dulrænum hæfi­leikum Þórhalls.
 

Þrjár krónur á „líkamningafund“

Samkvæmt Alþýðu­blaðinu hafði frú Lára tals­verðar tekjur af miðils­fundum sínum og var talið að hún hafi gabbað þúsundir Íslendinga. Aðgangs­miði að „líkamninga­fundum“ kostað þrjár krónur. „Það, sem gerðist á fundunum var þetta: Líkamninga­fyrirbrigði, afholdgunarfyrirbrigði, skygnilýsingar, útfrymi, samtöl, bréfa­skriftir o. fl., allt „yfir­náttúrlegt“ með frú Láru sem miðil og ýmsa stjórn­endur,“ segir í frétt blaðsins. Fréttinni lauk á þeim orðum að það væri land­hreinsun að svik frú Láru hafi loksins verið afhjúpuð.

Gardínan kom upp um hana

Að sögn sömu fréttar var það Sigurður Magnússon, kennari og lögreglu­maður, sem afhjúpaði frú Láru en hún hafði talið honum trú um að hún væri í sambandi við látna konu hans. „Rann­sakaði hann lengi allar aðstæður og var loks talinn vera orðinn svo „góður fundar­maður“, að hann fékk að sitja í stól nr. 1, þ.e. næsta stól frúarinnar, þegar á fundi stóð,“ segir fréttinni. Sigurður laumaði sér inn í herbergið fyrir einn fund og fann þar gardínur í skáp. Eftir fundinn, sem var fremur ómerki­legur, opnaði Sigurður skápinn og fann þá þessa sömu gardínu á öðrum stað. Þótti sannað að þessi gardína hafi verið notuð í svikin. Kristján nokkur bólstrari í London viðurkenndi síðar að hafa útvegað frú Láru gardínuna.

Halldór Laxness
Halldór Laxness Nóbel­skáldið gerði óspart grín að þeim sem trúa á miðla í grein í Tímariti Máls og menningar.

„Rændir sambandi við annað líf með lögregluvaldi“

Mál frú Láru vakti svo mikla athygli á sínum tíma að nóbel­skáldið Halldór Laxness skrifaði pistil í Tímarit Máls og menningar um Láru og „andatrúar­menn“. „Mikið upplost varð nýlega í höfuð­staðnum kringum andatrúar­kvenprest alþekktan, „séra Láru", sem allt í einu var „staðin að svikum", eins og blöðin komust að orði, og urðu mála­lyktir að flokkur sá, sem hún hafði um sig í Bjarna­borg, var rændur sambandi við annað líf með lögreglu­valdi, a.m.k. um stundar­sakir. Mun slík meðferð á trúflokkum vera fátíð hér á landi og tæplega meðmæla­verð - jafnvel í augum þeirra, sem setja annars andatrú tiltölu­lega lágt meðal kristilegra sértrúar­flokka. Því hvemig á lögregla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sann­leikurinn endar og fölsunin byrjar í trúar­brögðunum?“ skrifaði Halldór.

„Því hvernig á lögregla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sann­leikurinn endar og fölsunin byrjar í trúar­brögðunum?“

Geðbilaðir sem fara miðilsfundi

Halldór Laxness hélt áfram í grein sinni og sagði miðla vera ýmist lærða heimskingja eða trufluð gáfumenn. „Þekktur geðveikralæknir kvað hafa haft þau orð í gamni og alvöru um andatrú, að ekki séu aðeins allir miðlar geðbilaðir, heldur séu einnig allir, sem hafa tilhneigingu til að fara á miðils­fund að einhverju leyti geðbilaðir líka. Í ljósi þeirrar þekkingar, sem nútíminn á yfir að ráða, má nátt­úrlega segja eitthvað svipað um allan trúar­áhuga á okkar dögum, þ.e.a.s. ef hann er ekki algerð venjutrú. En um andatrú má hiklaust fullyrða, að þótt iðkanir hennar séu að sínu leyti ekki sjúklegri en t.d. hjá „holy rollers" (Fíladelfíu­mönnum?), þá gerir þessi trúflokkur sig alveg sérstak­lega hvim­leiðan vegna þess mold­viðris af uppgerðar­vísindum og „fræði­legum dellu­bókum, sem heiðar­legir, lærðir heimskingjar eða truflaðir gáfumenn þyrla látlaust kringum þetta klúsaða sambland af brjálsemi, prakkara­skap og fimmta­flokks loddara­listum, sem nefnt er miðils­starfsemi,“ skrifaði Halldór Laxness. Pistilinn má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár