Eins og í vísindaskáldsögu hjá SpaceX

Geimskot SpaceX heppnaðist vel, en gefið hafði verið út fyrirfram að um helmings­líkur væru á því að það myndi ekki heppnast.

Það brutust út mikil fagnaðar­læti þegar Falcon Heavy flaugin frá SpaceX, sem samanstóð af þremur eldflaugum, hóf sig á loft í gær og til flugs á braut um jörðu. Skotið, sem fórfram frá Kennedy geim­rannsóknar­stöðinni á Flórída, heppnaðist vel.

Fyrir flugið hafði Elon Musk, stofnandi og forstjóri SpaceX, sagt að um helmings­líkur á því að skotið myndi heppnast. En það heppnaðist svo sannarlega.

Tvær af flaugunum þremur lentu á tíunda tímanum í gærkvöldi - með tilkomu­miklum hætti - á jörðu niðri. Atriðið var eins og klippt út úr vísinda­skáldsögu.

Þriðja flaugin fór í hafið, eins og reyndar hafði jafnvel verið búist við.

Um borð í flaug­inni, sem nú er á braut um jörðu, er Tesla Roadster bif­reið, en við stýrið á henni er fest­ur mann­laus geimbún­ing­ur. Undir hljómar síðan Space Oddity lag Davids Bowie. Og stefnan er sett á mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár