Engin efnahagsleg tækifæri í Brexit fyrir Breta

Í skjölum frá breskum stjórn­völdum sem lekið var til BuzzFeed kemur fram að Brexit verði efnahags­lega erfitt fyrir Breta, hvernig sem samið verður um útgöngu landsins.

Efnahagur Breta verður í verri málum eftir útgöngu úr Evrópu­sambandinu hvernig sem samið verður um útgönguna.

Allir einstakir þættir og atvinnu­vegir landsins munu finna fyrir erfið­leikum, og hagvöxtur verður að líkindum um 8 prósent minni en hann hefði annars verið.

Þetta kemur fram í skjölum frá breskum stjórn­völdum, sem birt hafa verið á vef BuzzFeed, en breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til skjalanna á vef sínum.

Íhalds­maðurinn Iian Duncan Smith segir í viðtali að þessum skjölum verði að taka með fyrirvara, enda hafi flestir spádómar er varða Brexit og útgöngu Breta ekki ræst.

Skjölin sem vitnað er til innihalda greiningar sem unnar voru fyrir stjórn Theresu May, forsætis­ráðherra.

Bretar munu yfirgefa Evrópu­sambandið í mars 2019, en ekki hefur verið ákveðið í nákvæmis­atriðum hvernig staðið verður að því.

Aðal­samninga­maður Evrópu­sambandsins, Michel Barnier, kynnti afstöðu sambandsins til þess, hvernig staðið verður að útgöngunni eftir mars 2019, í gær, en í stórum dráttum munu Bretar í fyrstu þurfa að fara eftir helstu reglum sambandsins en ekki hafa neitt um það að segja hvernig þær eru.

Stefnt er að því að þessu tímabili, þar sem landið er að laga sig að nýjum veruleika, ljúki fyrir árslok 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár