Segir launahækkun forstjóra Hörpu dómgreindarleysi

Forseti borg­ar­stjórnar segir að borgin eigi að senda stjórn Hörpu til­mæli vegna hækk­unar á launum for­stjór­ans. Úrskurður kjara­ráðs um laun for­stjóra Hörpu var gerður opin­ber dag­inn áður en til­kynnt var um ráðn­ingu núver­andi for­stjóra.

Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík og for­seti borg­ar­stjórnar, segir að sér finn­ist ákvarð­anir stjórnar Hörpu um að hækka laun for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins bera vott um dóm­greind­ar­leysi. „Það gengur ekki að hækka laun æðstu stjórn­enda á sama tíma og verið er að vinna að hag­ræð­ingu. Reykja­vík­ur­borg þarf að senda stjórn­inni til­mæli í fram­hald­inu um að móta sér starf­kjara­stefnu sem tryggir að laun æðstu stjórn­enda verði ekki hækkuð umfram það sem venju­legu launa­fólki stendur til boða.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslur sem Líf setti á Facebook í dag. Vinstri græn sitja í meiri­hlut­anum sem situr við völd.

Mikil óánægja hefur verið á meðal starfs­manna Hörpu með það að laun for­stjór­ans, Svan­hildar Kon­ráðs­dóttur, hafi verið hækkuð um 20 pró­sent í fyrra. Meðal ann­ars sögðu 20 þjón­ustu­full­trúar sem störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu upp störfum í gær eftir fund með for­stjór­anum. Stutt er síðan að starfs­fólk Hörpu tók á sig launa­lækkun vegna erf­ið­leika í rekstri.

Líf segir málið vera vont og að svona eigi fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar ekki að koma fram. „Við verðum að end­ur­skoða stefnu borg­ar­innar og aðkomu hennar að launa­stefnu fyr­ir­tækja í hennar eigu. Og þá sér í lagi hvert bilið milli hæstu og lægstu launa eigi að vera.

Það er alls ekki for­gangs­mál í mínum huga að hækka laun þeirra sem hæst hafa launin. Þeir geta beðið. Þau lægst­laun­uðu geta það hins vegar ekki. Það er brýnt að bæta starfs­kjör þeirra fyrst. Þetta á við um öll fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar.“

Harpa er í eigu Reykja­vík­ur­borgar og íslenska rík­is­ins.

Úrskurður kjararáðs kom daginn áður en ráðning var tilkynnt

For­stjóri Hörpu átti að fá 1,3 millj­ónir króna í laun á mán­uði sam­kvæmt úrskurði kjara­ráðs sem birtur var opin­ber­lega 21. febr­úar 2017. Daginn eftir að sá úrskurður var birtur , þann 22. febr­úar, var til­kynnt að Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir hefði verið ráðin í starfið og að hún myndi hefja störf 1. maí 2017.

Lögum um kjara­ráð var breytt í lok árs 2016 m.a. með þeim hætti að ákvörðun um laun for­stjóra opin­berra fyr­ir­tækja myndu flytj­ast yfir til stjórna þeirra frá 1. júlí 2017. Á meðal þeirra for­stjóra sem flutt­ust með þeim hætti var for­stjóri Hörpu. Frá þeim degi voru laun Svan­hildar hækkuð í 1,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Í yfir­lýs­ingu sem stjórn Hörpu sendi frá sér í dag segir að úrskurður kjara­ráðs hafi komið eftir að samið hefði verið við Svan­hildi um að taka við starf­inu á öðrum kjörum en sá úrskurður sagði til um. Líkt og áður sagði var til­kynnt um ráðn­ingu hennar dag­inn eftir að úrskurður kjara­ráðs var birtur opin­ber­lega.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að því hafi í raun verið um „tíma­bundna launa­lækkun“ for­stjór­ans að ræða í þá tvo mán­uði sem laun hennar voru í sam­ræmi við ákvörðun kjara­ráðs. Svan­hildur sat sjálf í stjórn Hörpu þegar hún var ráðin sem for­stjóri og laun hennar voru ákvörðuð. Hún hafði setið þar frá árinu 2012. Sér­stak­lega var til­tekið, þegar greint var frá ráðn­ingu hennar, að Svan­hildur hefði sagt sig frá öllu sem snéri að ráðn­ingu nýs for­stjóra áður en starfið var aug­lýst.

Svan­hildur greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrr í dag að hún hefði óskað eftir því að laun hennar verði lækkuð aft­ur­virkt í sam­ræmi við úrskurð kjara­ráðs frá því í febr­úar 2017.

Mikil taprekstur í langan tíma

Ekki hefur verið hægt að reka Hörpu nema fyrir árleg við­bót­ar­fram­lög frá eig­endum til rekst­urs­ins. Tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til síð­ustu ára­móta hefur numið rúm­lega 3,4 millj­örðum króna. Tap af rekstri Hörpu í fyrra, áður en árlegt fjár­fram­lag ríkis og borgar er reiknað með, var tæp­lega 1,6 millj­arður króna. Þegar búið er að bæta fjár­fram­lagi eig­end­anna við var tapið hins vegar 243,3 millj­ónir króna á árinu 2017.

Framlag íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar, eig­enda Hörpu, er tvenns konar. Annars vegar greiða eig­end­urnir upp­hæð vegna fjár­­­mögn­unar á fast­­eign­inni sjálfri og hins vegar vegna fram­lags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur fram­lag vegna fjár­­­mögn­unar kostn­aðar við bygg­ingu Hörpu numið rúm­lega sex millj­örðum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til árs­ins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.

Til við­­bótar ákváðu eig­endur Hörpu að greiða rekstr­­ar­fram­lag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út árið 2016. Sam­tals nam fram­lag eig­end­anna til rekstrar Hörpu á því tíma­bili um 700 millj­­ónum króna.

Í maí 2017 var ákveðið að gera við­auka við samn­ing Hörpu við eig­endur sína sem í fólst að þeir leggðu félag­inu til 450 millj­ónir króna í við­bót­ar­fram­lag á síð­asta ári. Þetta fram­lag tryggði þó rekst­ur­inn ein­ungis út árið 2017. Í árs­reikn­ingi Hörpu kemur fram að í jan­úar 2018 hafi verið ákveðið að leggja Hörpu til 400 millj­ónir króna til við­bótar á árinu 2018 til að tryggja lausa­fjár­stöðu félags­ins út það ár.

Tap­rekstur síð­ustu ára hefur leitt til þess að eig­in­fjár­staða Hörpu er nú orðin nei­kvæð um 47,5 millj­ónir króna. Hún var jákvæð um 196 millj­ónir króna í lok árs 2016.

Ef rekstr­ar­tap Hörpu, fram­lög ríkis og Reykja­vík­ur­borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lögin sem ríkið hefur reitt af hendi eru lögð saman kemur í ljós að upp­safnað tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2017 er um 11,5 millj­arðar króna. Til við­bótar munu að minnsta kosti bæt­ast við um 1,5 millj­arður króna vegna fram­lags ríkis og borgar í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár