Svanhildur óskar eftir að laun hennar verði lækkuð afturvirkt

Mikil óánægja hefur verið með launa­hækkun for­stjóra Hörpu og ákváðu 20 þjón­ustu­full­trúar að segja upp í kjöl­farið. Svan­hildur hefur nú óskað eftir því að laun hennar verði lækkuð.

Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu.
Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, for­stjóri Hörpu. Mynd: Samsett mynd.

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir for­stjóri Hörpu óskaði eftir því í dag við for­mann stjórnar Hörpu að laun hennar yrðu lækkuð aft­ur­virkt frá 1. jan­úar 2018 og yrðu til sam­ræmis við úrskurð kjara­ráðs frá því snemma árs 2017. Þetta kemur fram í Facebook-færslu hennar í dag.

[links]„Kjaramál mín hafa truflað mjög mik­il­vægt verk­efni sem nú er í vinnslu er varðar rekstur húss­ins. Friður um Hörpu er ofar öllu,“ segir hún í færsl­unni.

Í frétt Kjarn­ans sem birt­ist í gær­kvöldi kom fram að tutt­ugu þjón­ustu­full­trúar í Hörpu höfðu ákveðið að segja upp störfum sínum í kjöl­far fundar með Svan­hildi­. Á­stæðan var óánægja með launa­hækkun for­stjór­ans, upp á um 20 pró­sent, en stutt er síðan starfs­fólk í Hörpu tók á sig launa­lækk­anir vegna erf­ið­leika í rekstri.

Fund­ur­inn var boð­aður eftir fréttir um þjón­ustu­full­trúa í Hörpu sem ofbauð svo launa­hækkun Svan­hildar að hann sagði upp. „Stuttu eftir að laun for­stjóra voru hækkuð af stjórn Hörpu, voru laun þjón­ustu­full­trúa lækk­uð. Á fund­inum stað­festi Svan­hildur að þjón­ustu­full­trúar Hörpu væru einu starfs­menn­irnir sem gert var að taka á sig beina launa­lækk­un. Hópur starfs­manna sem þá þegar var launa­lægstur allra starfs­manna Hörpu,“ segir í til­kynn­ingu frá þjón­ustu­full­trú­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár