Svanhildur Konráðsdóttir ráðin forstjóri Hörpu

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir var talin hæfust 38 ein­stak­linga til að vera for­stjóri Hörpu. Hún tekur við 1. maí næst­kom­andi.

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir hefur verið ráðin for­stjóri Hörpu. Svan­hildur er nú sviðs­stjóri Menn­ingar- og ferða­mála­sviðs Reykja­vík­ur­borgar en hún mun taka við starfi for­stjóra Hörpu þann 1. maí næst­kom­andi.

Svan­hildur hefur setið í stjórn Hörpu frá árinu 2012, en tekið er fram að hún hafi sagt sig frá öllu sem snéri að ráðn­ingu nýs for­stjóra áður en starfið var aug­lýst. Hún hefur komið að und­ir­bún­ingi tón­listar- og ráð­stefnu húss í Reykja­vík allt frá árinu 2004, fyrst sem full­trúi borg­ar­innar í Aust­ur­höfn ehf. og svo í félögum sem sáu um bygg­ingu og und­ir­bún­ing rekst­urs Hörpu.

Capacent sá um ráðn­ing­ar­ferlið, en 38 sóttu um. Það var sam­dóma álit ráð­gjafa Capacent og stjórnar Hörpu að Svan­hildur hefði yfir­burða þekk­ingu og reynslu sem myndi nýt­ast vel í starfi for­stjóra Hörpu, og að hún upp­fyllti best umsækj­enda skil­yrði aug­lýs­ing­ar­innar.

Starf for­stjóra Hörpu var aug­lýst í upp­hafi árs þegar Halldór Guð­munds­son, sem hefur verið for­stjóri frá árinu 2012, sagði upp störfum og tók að sér verk­efni erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár