Mynd: EPA

Ríki og borg lögðu Hörpu til 400 milljónir til viðbótar

Harpa hefur tapað 3,4 millj­örðum króna frá árinu 2011. Íslenska ríkið og Reykja­vík­ur­borg lögðu tæp­lega 1,6 millj­arð króna fram­lag í fyrra til að borga af lánum og brúa rekst­ur­inn. Í jan­úar var sam­þykkt að veita Hörpu 400 millj­óna króna rekstr­ar­fram­lag.

Tap Hörpu tón­list­­ar- og ráð­­stefn­u­húss ohf., sem er rekstr­­ar­­fé­lag Hörpu, frá byrjun árs 2011 og til síð­ustu ára­móta hefur numið rúm­lega 3,4 millj­örðum króna. Tap af rekstri Hörpu í fyrra, áður en árlegt fjár­fram­lag ríkis og borgar er reiknað með, var tæp­lega 1,6 millj­arður króna. Þegar búið er að bæta fjár­fram­lagi eig­end­anna við var tapið hins vegar 243,3 millj­ónir króna á árinu 2017.

Framlag íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar, eig­enda Hörpu, er tvenns konar. Annars vegar greiða eig­end­urnir upp­hæð vegna fjár­­­mögn­unar á fast­­eign­inni sjálfri og hins vegar vegna fram­lags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur fram­lag vegna fjár­­­mögn­unar kostn­aðar við bygg­ingu Hörpu numið rúm­lega sex millj­örðum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til árs­ins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.

Til við­­bótar ákváðu eig­endur Hörpu að greiða rekstr­­ar­fram­lag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út árið 2016. Sam­tals nam fram­lag eig­end­anna til rekstrar Hörpu á því tíma­bili um 700 millj­­ónum króna.

Í maí 2017 var ákveðið að gera við­auka við samn­ing Hörpu við eig­endur sína sem í fólst að þeir leggðu félag­inu til 450 millj­ónir króna í við­bót­ar­fram­lag á síð­asta ári. Þetta fram­lag tryggði þó rekst­ur­inn ein­ungis út árið 2017. Í árs­reikn­ingi Hörpu kemur fram að í jan­úar 2018 hafi verið ákveðið að leggja Hörpu til 400 millj­ónir króna til við­bótar á árinu 2018 til að tryggja lausa­fjár­stöðu félags­ins út það ár.

Tap­rekstur síð­ustu ára hefur leitt til þess að eig­in­fjár­staða Hörpu er nú orðin nei­kvæð um 47,5 millj­ónir króna. Hún var jákvæð um 196 millj­ónir króna í lok árs 2016.

Ef rekstr­ar­tap Hörpu, fram­lög ríkis og Reykja­vík­ur­borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lögin sem ríkið hefur reitt af hendi eru lögð saman kemur í ljós að upp­safnað tap Hörpu frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2017 er um 11,5 millj­arðar króna. Til við­bótar munu að minnsta kosti bæt­ast við um 1,5 millj­arður króna vegna fram­lags ríkis og borgar í ár.

Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út vegna birt­ingar árs­reikn­ings Hörpu í gær var haft eftir Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, for­stjóra Hörpu, að fyrir „heil­brigð­ari rekstr­ar­grund­völl Hörpu til fram­tíðar þarf horfast í augu við gríð­ar­lega þunga kostn­að­ar­þætti sem snerta fast­eign­ina, s.s. há fast­eigna­gjöld og við­hald á þess­ari dýr­mætu bygg­ingu sem tekjur af útleigu og menn­ing­ar­starfi geta aldrei mætt að fullu. Þetta við­fangs­efni er í vinnslu í góðu sam­ráði við eig­endur[...] Þrátt fyrir áskor­anir í rekstr­inum er starf­semin í Hörpu full af gleði og afar blóm­leg, enda einn fjöl­sótt­asti áfanga­staður í borg­inni með fjöl­breytta flóru vel sóttra við­burða.“

Tekjur og gjöld dragast saman

Tekjur af starf­semi Hörpu dróg­ust saman um níu pró­sent í fyrra og voru 1.161 milljón króna. Árið áður höfðu þær verið 1.281 millj­ónir króna. Í frétta­til­kynn­ingu segir að þar muni mestu „um þrjá mjög stóra alþjóð­lega við­burði árið 2016 auk umfangs­meiri eigin við­burða það ár.“

Rekstr­ar­gjöld húss­ins dróg­ust þó einnig saman og voru 1.554 millj­ónir króna. Rekstr­ar­tapið var því 393 millj­ónir króna. Það er mun minna rekstr­ar­tap en var árið 2016 þegar það nam 635,8 millj­ónum króna.

Einn stærsti rekstr­ar­kostn­aður Hörpu er hús­næð­is­kostn­að­ur. Í fyrra var hann 530,3 millj­ónir króna. Þar af voru fast­eigna­gjöld 242,3 millj­ónir króna, en stjórn­endur Hörpu hafa árum saman barist gegn hárri álagn­ingu þeirra með þó nokkrum árangri.

Rekstr­ar­nið­ur­staða Hörpu fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA) var þó jákvæð í fyrsta sinn frá því að Harpa opn­aði. Alls var hún jákvæð um 56,6 millj­ónir króna og batn­aði um 289 millj­ónir króna á milli ára.

Upphaflegar forsendur löngu brostnar

Íslenska ríkið og Reykja­vík­­­ur­­borg sam­­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­­kvæmdir við bygg­ingu hús­s­ins, sem Eign­­ar­halds­­­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­­ur­­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­­­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dóttir, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var mennta­­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­­ar­­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­­banka­lán hjá íslensku bönk­­unum til að fjár­­­magna yfir­­tök­una. Í skrif­­legu svari Katrínar Jak­obs­dóttur við fyr­ir­­spurn þing­­manns­ins Marðar Árna­­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Katrín Jakobsdóttir, núverandi forsætisráðherra, var menntamálaráðherra þegar ákvörðun var tekin um að ljúka við byggingu Hörpu.
Katrín Jak­obs­dóttir, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var mennta­mála­ráð­herra þegar ákvörðun var tekin um að ljúka við bygg­ingu Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­­sendur fyrir yfir­­­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ingi Aust­ur­hafnar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Íslenska ríkið á 54 pró­­sent í Hörpu en Reykja­vík­­­ur­­borg 46 pró­­sent hlut.

Í lok árs 2011 leit­uðu for­svar­s­­menn Hörpu­­-­­sam­­stæð­unnar til eig­enda sinna eftir brú­­ar­láni, þar sem upp­­haf­­legt sam­­banka­lán dugði ekki fyrir stofn­­kostn­aði. Lánið átti að end­­ur­greið­­ast þegar Harpa gæfi út skulda­bréfa­­flokk, og í síð­­asta lagi í des­em­ber 2012. Lands­­bank­inn, sem var langstærsti lán­veit­and­inn í sam­­banka­lán­inu, fékk umsjón með skulda­bréfa­út­­­boð­inu og sölu­­tryggði það.

Skulda­bréfa­út­­­gáfan var upp á 19,5 millj­­arða króna og ber 3,55 pró­­sent verð­­tryggða vexti. Sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi Hörpu voru skuldir vegna útgáf­unnar um 19,5 millj­­arðar króna um síð­­­ustu ára­­mót. Skulda­bréfin eru tryggð með veði í fram­lagi ríki og borg­­ar, fyrsta veð­rétti í Hörpu auk hand­veð­réttar í banka­inn­­stæðum félags­­ins. Þegar búið er að reikna með vaxta­greiðslum á eftir að greiða um 25,2 millj­arða króna hið minnsta vegna þess­arar útgáfu á næstu tæpu þremur ára­tug­um. Á árinu 2017 greiddu ríki og borg tæp­lega 1,1 millj­arð króna vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár