Leggur fram frumvarp um að afnema tolla á innflutningi á frönskum kartöflum

Þrátt fyrir að enginn innlendur fram­leiðandi framleiði franskar kartöflur lengur er 76 prósent tollur á innflutning þeirra. Ráðherrar hafa kastað málinu á milli sín en nú er komið fram frumvarp um að afnema þennan toll.

Franskar kartöflur njóta tollverndar á Íslandi þrátt fyrir að enginn innlendur aðili framleiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta.
Franskar kart­öflur njóta toll­verndar á Íslandi þrátt fyrir að eng­inn inn­lendur aðili fram­leiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta. Mynd: Hvatinn.is

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram frumvarp þar sem lagt er til að tollur á innflutning á frönskum kartöflum verði afnumin með öllu.

Í greinar­gerð með frum­varpinu kemur fram að franskar kartöflur beri sem stendur 76 prósent toll, sem er hæsti prósentu­tollur á matvöru í íslensku tollskránni. „Samkvæmt fríverslunar­samningum við Kanada og Evrópu­sambandið eru franskar kartöflur þaðan fluttar inn á lægri tolli, eða 46 prósent, og veldur því að neytendur greiða hærra verð fyrir vöruna sem því nemur. Hinn 24. ágúst sl. birtist frétt þess efnis að Þykkvabæjar ehf. hefði hætt fram­leiðslu á frönskum kartöflum. Þar með hefur fram­leiðslu á frönskum kartöflum á Íslandi verið hætt og standa því engin rök lengur til slíkrar toll­verndar. Er því lagt til að innflutnings­tollur á franskar kartöflur verði afnuminn neytendum og fyrir­tækjum til heilla.“

Köstuðu málinu á milli sín

Félag atvinnu­rekenda sendi Svandísi Svavars­dóttur matvæla­ráðherra og Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra erindi 24. ágúst síðastliðinn og hvatti þau til að beita sér fyrir niður­fellingu tollsins, sem lagður er á innfluttar franskar kartöflur.

Í tilkynningu sem birtist á vef félagsins í síðasta mánuði sagði að rökin fyrir að fella tollinn niður væru augljós. „Hann var lagður á til að vernda innlenda fram­leiðslu. Lengi vel hefur hann verndað eitt fyrirtæki, Þykkvabæjar, sem fram­leiddi franskar kartöflur – reyndar úr innfluttum kartöflum að stórum hluta. Hinn 24. ágúst tilkynnti fyrir­tækið að það væri hætt fram­leiðslunni. Hæsti prósentu­tollur tollskrárinnar verndar þá ekkert lengur. Hann er bara úreltur og ósann­gjarn skattur á verzlun, veitinga­rekstur og neytendur í landinu, sem nemur 300-400 milljónum króna á ári.“

Þar sagði enn fremur að svar hafi borist frá ráðuneyti Svandísar tveimur dögum síðar. Í því kom fram að matvæla­ráðherra hefði ekki aðkomu að ákvörðun tolls fyrir umrædda vöru þar sem hún beri einungis verðtoll. Slíkur innflutningur heyri undir valdsvið fjármála­ráðherra.

Í fréttum Stöðvar 2 föstu­daginn 9. september sagði Bjarni Benediktsson hins vegar að málið væri ekki á sínu borði, heldur hjá Svandísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár