Hræringar í breskum stjórnmálum

Eftir að Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, til­kynnti um þing­hlé hafa við­brögðin ekki látið á sér standa. Banda­ríkja­for­seti blandar sér einnig í umræð­una.

Boris Johnson
Boris Johnson Mynd: EPA

Miklar hrær­ingar hafa verið í breskum stjórn­málum und­an­farna daga en til tíð­inda dró þegar nýi for­sæt­is­ráð­herr­ann, Boris Johnson, til­kynnti að hann ætl­aði að fresta þingi í næsta mán­uði fram í miðjan októ­ber.

Bretar munu að öllum lík­indum ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu þann 31. októ­ber næst­kom­andi og hefur stjórn­ar­and­staðan tekið þing­hléinu óstinnt upp. Jafn­framt hefur almenn­ingur tekið við sér en yfir 1,3 millj­ónir manna hafa skrifað undir áskorun þar sem mælst er til þess að hætt verði við frestun þings­ins.

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að ástæðan fyrir frestun þings­ins væri sú að stjórn hans hygð­ist leggja fram laga­frum­vörp þar sem tekið væri á mörgum knýj­andi málum. Hann gaf lítið fyrir það að ástæðan væri að koma í veg fyrir umræður um Brexit í þing­inu og sagði að stjórn­ar­and­staðan hefði nægan tíma.

Svartur dagur í sögu lýðræðisins

Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, var ekki par hrif­inn af frest­un­inni en hann sagði í gær að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri með þessu að þrýsta á um útgöngu úr ESB án samn­ings. Hann sagði enn fremur að þegar þing­menn koma úr sum­ar­fríi á þriðju­dag­inn hljóti það að verða þeirra fyrsta verk að leggja fram laga­fram­varp með það fyrir augum að stöðva þing­hléið og leggja fram van­traust­s­til­lögu á for­sæt­is­ráð­herr­ann. Hann sagði að aðgerðir Borisar væru sví­virði­legar og aðför að stjórn­ar­skránni.

Nicola Sturgeon, ráð­herra skosku stjórn­ar­innar, tjáði sig einnig um málið í gær en hún sagði að um svartan dag hefði verið að ræða fyrir lýð­ræðið. Að hætta við þing til þess að neyða í gegn brexit án samn­ings – og án sam­ráðs við hina þing­menn­ina – væri ekki lýð­ræði heldur ein­ræði.

Boris „a great one!“

Banda­ríkja­for­seti bland­aði sér í umræð­urnar á Twitter í gær en hann sagði að erfitt væri fyrir Jeremy Corbyn, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, að koma í gegn van­traust­s­til­lögu gegn Boris Johnson í ljósi þess að Boris væri einmitt sá sem Bretland hefði verið að bíða eftir. Hann myndi sanna að hann væri „stór­kost­legur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár