Mynd: EPA

Vilja steypa Boris Johnson af stóli

Breska stjórn­ar­and­staðan leitar nú að nýjum þing­manni sem gæti orðið for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í stað Borisar Johnson. Jeremy Corbyn telur sig vera mann­inn í verkið, en ekki eru allir innan stjórn­ar­and­stöð­unnar á sama máli.

Stjórn­ar­and­staðan á breska þing­inu reynir nú að sam­mæl­ast um mögu­legan for­sæt­is­ráð­herra sem gæti leitt bráða­birgða­stjórn í Bret­landi og kæmi í stað Borisar Johnson, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Stjórn­ar­and­staðan vill með því koma í veg fyrir að Bretland gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings. Jeremy Corbyn, for­maður Verka­manna­flokks­ins, vill að hann sjálfur verði fyrir val­inu en ekki eru allir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­una á því að hann sé besti mað­ur­inn í hlut­verkið.

Corbyn vill að stjórn­ar­and­staðan velji sig sem næsta for­sæt­is­ráð­herra eftir að kosið hafi verið um van­traust­s­til­lögu gegn Boris. Corbyn hefur hvatt þing­menn Íhalds­flokks­ins sem ekki séu hlið­hollir Boris að hjálpa stjórn­ar­and­stöð­unni að bola honum burt. Þannig muni verða hægt að koma í veg fyrir að Bretland gangi úr ESB án samn­ings.

Jo Swinson, leið­togi frjáls­lyndra demókrata, telur áætlun Corbyn ekki vera fýsi­lega þar sem hann gæti ekki safnað nægi­legu fylgi stjórn­ar­and­stöð­unnar og þeirra þing­manna Íhalds­flokks­ins sem væru óhlið­hollir Boris til að ná meiri­hluta innan þings­ins. 

Swinson lagði til að stjórn­ar­and­staðan myndi fremur styðja við Kenneth Clarke, þing­mann Íhalds­flokks­ins, eða Harriet Harman, þing­mann verka­manna­flokks­ins. Þau hafa bæði verið í stjórn­málum lengi og eru stjórn­mála­skoð­anir þeirra taldar vera til miðju, fremur en vinstri eða hægri. Þannig gætu fleiri þing­menn sam­ein­ast um þau sem leið­toga bráða­birgða­stjórn­ar­innar.

„Lof mér að vera skýr, við erum að renna út á tíma. En þessi krísa um engan Brexit samn­ing getur verið og verður að vera stöðvuð,“ sagði Swinson í sam­tali við the Guardian.

Vilja nýja kosningu um Brexit

Swinson segir að hennar fyrsta val væri að efna til nýrra kosn­inga um Brexit þar sem mögu­leiki væri á að halda Bret­landi innan ESB. Annað val væri að kjósa um van­traust­s­til­lögu gegn Boris.

Liz Saville Roberts, leið­togi velska flokks­ins Plaid Cymru, sagði það afar mikil von­brigði að Corbyn vilji ekki nýja þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem fyrsta val, heldur vilji fremur almennar kosn­ingar. Caroline Lucas, þing­maður Græn­ingja, tók undir með Roberts og lýsti yfir von­brigðum sínum.

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, segir að Swinson ætti að end­ur­skoða það að hafa Corbyn sem leið­toga bráða­birgða­stjórn­ar­innar. Hún segir að Corbyn sé ekki eini mögu­leik­inn, en miðað við núver­andi aðstæður ætti ekki að úti­loka neitt. Sturgeon sagði einnig að hún myndi vinna með hverjum þeim sem kæmi í veg fyrir Brexit eða kæmi í veg fyrir útgöngu Breta úr ESB án samn­ings.

Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands. Hún segist vilja vinna með hverjum þeim sem kæmi í veg fyrir Brexit.
Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands. Hún seg­ist vilja vinna með hverjum þeim sem kæmi í veg fyrir Brexit.

Vantrauststillaga lögð fram við fyrsta tækifæri

„Þessi rík­is­stjórn hefur ekk­ert umboð til að ganga úr ESB án samn­ings og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan árið 2016 veitti heldur ekk­ert umboð fyrir útgöngu án samn­ings. Þess vegna ætla ég að leggja fram van­traust­s­til­lögu við fyrsta tæki­færi, þegar við getum verið viss um árangur,“ skrifar Corbyn í opin­berri yfir­lýs­ingu. Hann skrifar að í kjöl­farið muni Corbyn mynda tíma­bundna rík­is­stjórn sem myndi kalla til almennra kosn­inga. Corbyn hefur þó enn ekki gefið út neina dag­setn­ingu sem kosn­ing­arnar yrðu haldnar.

Nái áætlun Corbyn fram að ganga mun Corbyn efna til nýrra kosn­inga og nýrrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Brexit í kjöl­farið. Corbyn hefur einnig sagt að það væri „and-lýð­ræð­is­leg valda­mis­notkun“ af völdum Borisar ef útganga Bret­lands úr ESB myndi eiga sér stað án samn­ings.

Enn deilt um Norður-Írland

Landa­mæri Írlands og Norð­ur­-Ír­lands eru afar við­kvæm á stjórn­mála­legan og diplómat­ískan hátt, auk þess sem örygg­is­mál landa­mær­anna eru vand­með­far­in, ekki ein­ungis fyrir Írland heldur einnig Bret­land. Þess vegna vilja hvorki Bret­land né Evr­ópu­sam­bandið að landamæra­vörslu komið á eða inn­við­ir, til að mynda hlið eða vegg­ur, á milli ríkj­anna verði byggð­ir.

Þaðan kemur hug­myndin að hinu umdeilda „back­stop“ eða bak­stopp, til sög­unn­ar. Johnson er and­vígur „bak­stopp­inu“ sem myndi tryggja frjálst flæði fólks á milli landamæra Írlands og Norður-Írlands og koma í veg fyrir landamæra­vörslu. Hins vegar myndi bak­stoppið skapa annað vanda­mál, það er að segja að þá þyrfti að skoða vörur og staðla þeirra þegar þær færu frá Norð­ur­-Ír­landi til Bret­lands. Það gæti í raun valdið því að allt Bret­land þyrfti að vera innan sam­eig­in­lega mark­aðs ESB um ókom­inn tíma. ESB hefur jafn­framt kraf­ist þess að Brexit samn­ingur inni­haldi klausu um slíkt stopp.

Bak­stoppið er talið nauð­syn­legt þar sem Bret­land og Írland eru í tolla­banda­lagi ESB og hluti af sam­eig­in­legum mark­aði ESB. Þar af leið­andi þurfa vörur ekki að vera til skoð­unar á landa­mærum Írlands og Bret­lands hjá toll­vörð­um, auk þess sem sömu staðlar eru á öllum vörum, til að mynda heil­brigð­is­staðl­ar.

Theresa May, for­veri Johnson, hafði samið við Evr­ópu­sam­bandið um slíkt bak­stopp en kom því ekki í gegnum breska þingið. Bæði ESB og breska rík­is­stjórnin vilja nýjan versl­un­ar­samn­ing. Boris John­son vill þó fara úr bæði tolla­banda­lagi og sam­eig­in­legum mark­aði ESB, sem gerir það nærri ómögu­legt að koma í veg fyrir hörð landa­mæri á milli ríkj­anna.

Útganga án samnings helsta forgangsatriðið

Á mið­viku­dag­inn síð­ast­lið­inn svar­aði Boris völdum spurn­ingum almenn­ings í beinni útsend­ingu á Facebook. Boris sagði að lík­urnar á að samn­ingur myndi ekki nást um Brexit fyrir útgöngu væru sífellt meiri þar sem 31. októ­ber, dag­ur­inn sem útganga mun að öllum lík­indum ger­ast, nálg­ast óðfluga. Ekki er víst hverjar afleið­ing­arnar yrðu af útgöngu án samn­ings á landa­mæri Írlands og Norður-Írlands. Margir stjórn­mála­menn í Bret­landi ótt­ast að útganga án samn­ings myndi neyða bæði Írland og Bretland til að koma á hörðum landa­mærum.

Boris segir að und­ir­bún­ingur undir útgöngu Bret­lands úr ESB án samn­ings sé helsta for­gangs­at­riði rík­is­stjórnar hans. Hann segir jafn­framt að opin­berir emb­ætt­is­menn ættu að gera allt sem þeir gætu til að svo yrði. Það kemur í kjöl­far yfir­lýs­inga Corbyn um að emb­ætt­is­menn Bret­lands ættu að reyna að koma í veg fyrir að eng­inn samn­ingur muni nást.

Johnson hefur stað­hæft að engri sýni­legri landamæra­vörslu eða hindr­unum verði komið á milli Írlands og Norð­ur­-Ír­lands. Hann hefur enn fremur verið afar gagn­rýndur fyrir að neita að setj­ast niður til að ræða Brexit samn­ing­inn við leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins nema að sam­bandið gefi eftir kröfur sínar um bak­stopp­ið.

Írar vilja bakstoppið

Írska rík­is­stjórnin hefur þó lagt áherslu á að bak­stoppið sé nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir hörð landa­mæri. Hún hefur einnig sagt að bak­stoppið gæti verið tíma­bundið á meðan betra sam­komu­lag næð­ist um fram­tíð­ar­sam­band Bret­lands og Írlands.

Írska rík­is­stjórnin telur bak­stoppið einnig vera nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir hörð landa­mæri við Norð­ur­-Ír­land, verði ekki búið að koma á nýjum samn­ingi með tolla­mál þegar Bret­land yfir­gefur Evr­ópu­sam­band­ið. Írski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Leo Vara­d­kar, seg­ist til að mynda vera mót­fall­inn Brexit samn­ingi án bak­stopps­ins.

Fjöl­margir við­skipta- og land­bún­að­ar­hópar, auk ýmissa stjórn­mála­manna í Norð­ur­-Ír­landi hafa lýst yfir stuðn­ingi sínum við bak­stopp­ið, þar sem þeir telja það vernda við­skipti á milli Írlands og Norð­ur­-Ír­lands.

Banda­rískir stjórn­mála­menn óánægðir

Banda­rískir stjórn­mála­menn hafa lýst því yfir að komið verði í veg fyrir nýj­an frí­versl­un­ar­samn­ing á milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands eftir útgöngu Breta úr ESB verði landa­mæri Írlands og Norð­ur­-Ír­lands ekki opin.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Til að vinna sér í hag­inn og minnka efna­hags­lega skað­ann sem mun hljót­ast við útgöngu Bret­lands úr ESB hefur Boris John­son afhent banda­rískum stjórn­völd­um drög að nýjum frí­versl­un­ar­samn­ingi. Þrátt fyrir góðan vin­skap á milli Don­alds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, og Borisar myndi það reyn­ast Trump erfitt að koma slíkum samn­ingi í gegnum banda­ríska þingið ef Good Fri­day samn­ing­ur­inn væri í hætt­u.

Margir banda­rískir þing­menn hafa lýst því yfir að þeir myndu kjósa gegn frí­versl­un­ar­samn­ingi á milli Bret­lands og Banda­ríkj­anna ef komið væri á landa­mærum, þar á meðal Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings. Boris John­son seg­ist munu virða Good Fri­day samn­ing­inn, sem kveður á um að engin hörð landa­mæri séu á milli Írlands og Norð­ur­-Ír­lands.

Segir Evr­ópu um að kenna ef illa fer

Boris John­son segir að hvort Bret­land gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu með eða án samn­ings velti á Evr­ópu­sam­band­inu. „Þau vita að neðri deild breska þings­ins hefur synjað bak­stopp­inu þrisvar, það er engin leið að koma því í gegnum þing­ið, við verðum að taka bak­stoppið úr samn­ingn­um, við getum ekki haldið núver­andi samn­ingi til streit­u,“ sagði Boris John­son í lok júlí.

Hann sagði jafn­framt að ef ESB vildi ekki gera mála­miðl­anir þá yrði sam­bandið að und­ir­búa sig undir Brexit án samn­ing.

Aðstæður Borisar John­son, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, eru væg­ast sagt snúnar um þessar mund­ir. Ekki ein­vörð­ungu vill Boris nýjan samn­ing um útgöngu Breta frá Evr­ópu­sam­band­inu fyrir 31. októ­ber næst­kom­andi, heldur hefur einnig verið kallað eftir sjálf­stæði Norð­ur­-Ír­lands sem og Skotlands. Fyrsti ráð­herra Skotlands, Nicola Stur­ge­on, segir að með Brexit hafi skap­ast nýr grund­völlur fyrir atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár