Vandræði Borisar Johnson ná nýjum hæðum

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, stendur frammi fyrir miklum áskor­unum. Kosn­ingar um sjálf­stæði Skotlands og sjálf­stæði Norður-Írlands gætu verið mögu­legar á næstu miss­erum, auk þess sem efna­hagur Bret­lands dregst saman.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Aðstæður Borisar Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, eru væg­ast sagt snúnar um þessar mundir. Ekki ein­vörð­ungu vill Boris nýjan samn­ing um útgöngu Breta frá Evr­ópu­sam­band­inu fyrir 31. októ­ber næst­kom­andi, heldur hefur einnig verið kallað eftir sjálf­stæði Norður-Írlands sem og Skotlands. Fyrsti ráð­herra Skotlands, Nicola Sturgeon, segir að með Brexit hafi skap­ast nýr grund­völlur fyrir atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands.

Orðrómur um að Boris muni kalla eftir skyndi­kosn­ingum á næstu miss­erum hafa hlotið hljóm­grunn und­an­farið eftir að breska stjórn­ar­ráðið neit­aði ekki fyrir slíkt. Þar með gæti Boris styrkt stöðu Íhalds­flokks­ins innan breska þings­ins og komið Brexit samn­ingi í gegn, ef um samn­ing verður að ræða.

[adspot]Líkur á því að samn­ingur um Brexit muni ekki nást hafa hins vegar auk­ist vegna þeirrar patt­stöðu sem er í samn­inga­við­ræðum Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins. Deil­urnar snúa að mestu um ákvæði um svo­kallað bak­stopp.

Þrátefli vegna Norður-Írlands

Landa­mæri Írlands og Norður-Írlands eru afar við­kvæm á stjórn­mála­legan og diplómat­ískan hátt, auk þess sem örygg­is­mál landamær­anna eru vand­með­farin, ekki ein­ungis fyrir Írland heldur einnig Bretland. Þess vegna vilja hvorki Bretland né Evr­ópu­sam­bandið að landamæra­vörslu komið á eða inn­viðir, til að mynda hlið eða veggur, á milli ríkj­anna verði byggðir.

Þaðan kemur hug­myndin að hinu umdeilda „backstop“ eða bak­stopp, til sög­unnar. Bak­stoppið á að við­halda óhindr­uðu flæði fólks á milli Írlands og Norður-Írlands. Það myndi þó þýða að Bretland þyrfti að við­halda afar nánu sam­bandi við ESB um ókom­inn tíma. ESB hefur jafn­framt kraf­ist þess að Brexit samn­ingur inni­haldi klausu um slíkt stopp.

Bak­stoppið er talið nauð­syn­legt þar sem Bretland og Írland eru í tolla­banda­lagi ESB og hluti af sam­eig­in­legum mark­aði ESB. Þar af leið­andi þurfa vörur ekki að vera til skoð­unar á landa­mærum Írlands og Bret­lands hjá toll­vörðum, auk þess sem sömu staðlar eru á öllum vörum, til að mynda heil­brigð­is­staðlar.

Bæði ESB og breska rík­is­stjórnin vilja nýjan versl­un­ar­samn­ing. Boris Johnson vill þó fara úr bæði tolla­banda­lagi og sam­eig­in­legum mark­aði ESB, sem gerir það nærri ómögu­legt að koma í veg fyrir hörð landa­mæri á milli ríkj­anna.

Bak­stopp­inu væri komið á til að koma í veg fyrir slík hörð landa­mæri. Það þýðir að Norður-Írland þyrfti að fara eftir ein­hverjum reglum sam­eig­in­legs mark­aðs ESB og tolla­banda­lags­ins. Slíkt bak­stopp myndi líka skapa annað vanda­mál, það er að segja að þá þyrfti að skoða vörur og staðla þeirra þegar þær færu frá Norður-Írlandi til Bret­lands. Það gæti í raun valdið því að allt Bretland þyrfti að vera innan sam­eig­in­lega mark­aðs ESB um ókom­inn tíma.

Johnson mótfallinn bakstoppinu

Í nóv­em­ber 2018 samdi fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Theresa May, við ESB um Brexit samn­ing sem inni­hélt bak­stoppið. Fyrir það var hún harð­lega gagn­rýnd og sögðu nokkrir af ráð­herrum hennar af sér í kjöl­farið. Þeir sögð­ust ótt­ast að bak­stoppið myndi festa Bretland í tolla­banda­lagi ESB um ókom­inn tíma sem kæmi í veg fyrir að landið gæti gert sína eigin frí­versl­un­ar­samn­inga. Aðrir vildu að samn­ing­ur­inn hefði tíma­mörk eða að Bretland gæti sagt upp samn­ingnum ein­hliða.

Johnson vill ekki að samn­ingur um Brexit hafi ákvæði um bak­stopp. Hann hefur stað­hæft að engri sýni­legri landamæra­vörslu eða hindr­unum verði komið á milli Írlands og Norður-Írlands. Hann hefur enn fremur verið afar gagn­rýndur fyrir að neita að setj­ast niður til að ræða Brexit samn­ing­inn við leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins nema að sam­bandið gefi eftir kröfur sínar um bak­stoppið.

Írska rík­is­stjórnin hefur þó lagt áherslu á að bak­stoppið sé nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir hörð landa­mæri. Hún hefur einnig sagt að bak­stoppið gæti verið tíma­bundið á meðan betra sam­komu­lag næð­ist um fram­tíð­ar­sam­band Bret­lands og Írlands.

Írska rík­is­stjórnin telur bak­stoppið einnig vera nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir hörð landa­mæri við Norður-Írland, verði ekki búið að koma á nýjum samn­ingi með tolla­mál þegar Bretland yfir­gefur Evr­ópu­sam­bandið. Írski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Leo Varadkar, seg­ist til að mynda vera mót­fall­inn Brexit samn­ingi án bak­stopps­ins.

Fjöl­margir við­skipta- og land­bún­að­ar­hópar, auk ýmissa stjórn­mála­manna í Norður-Írlandi hafa lýst yfir stuðn­ingi sínum við bak­stoppið, þar sem þeir telja það vernda við­skipti á milli Írlands og Norður-Írlands.

Segir Evrópu um að kenna ef illa fer

Boris Johnson segir að hvort Bretland gangi úr Evr­ópu­sam­band­inu með eða án samn­ings velti á Evr­ópu­sam­band­inu. „Þau vita að neðri deild breska þings­ins hefur synjað bak­stopp­inu þrisvar, það er engin leið að koma því í gegnum þingið, við verðum að taka bak­stoppið úr samn­ingnum, við getum ekki haldið núver­andi samn­ingi til streitu,“ sagði Boris Johnson í lok júlí.

Hann sagði jafn­framt að ef ESB vildi ekki gera mála­miðl­anir þá yrði sam­bandið að und­ir­búa sig undir Brexit án samn­ing.

Vilja sameinað Írland

Þingmenn Sinn Féin, annar tveggja stærstu þing­flokka Írlands, stungið upp á því fyrr í sumar að efnt yrði til nýrra kosn­inga um sam­ein­ingu Írlands. Sinn Féin er vinstri-þjóð­ern­is­flokkur sem berst fyrir sam­ein­ingu Írlands og Norður-Írlands og er starf­ræktur bæði á Írlandi og í Norður-Írlandi.

[adspot]Í kjöl­far Brexit hefur Sinn Féin aukið kröfur sínar um sjálf­stæði Norður-Írlands. Sinn Féin hefur vísað til þess að sam­einað Írland gæti verið innan Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem 56 pró­sent íbúa Norður-Írlands kusu gegn Brexit. Seamus Mallon, fyrrum fyrsti ráð­herra Norður-Írlands, hefur varað við slíkri kosn­ingu þar sem hún gæti kynt undir óróa á svæð­inu.

Samkvæmt Good Friday samn­ingnum er hægt að boða til kosn­inga um að Norður-Írland sam­ein­ist Írlandi, en ein­ungis ef inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands telji aðstæð­urnar til þess vera réttar. Margir telja að slíkt myndi kynda undir óróa og gæti jafn­vel leitt til ofbeldis.

Enginn samningur möguleiki

Svo virð­ist sem Boris sé að und­ir­búa sig undir Brexit án samn­ings. Boris hefur haldið því fram að Brexit muni eiga sér stað 31. októ­ber, sama við hvaða aðstæður það yrði, þá með eða án samn­ings.

Diplómatar Evr­ópu­sam­bands­ins í Brussel segja margir hverjir að Boris ætli sér ekki að semja á ný um Brexit samn­ing. Því eru sífellt meiri líkur á því að samn­ingur muni ekki nást um Brexit fyrir 31. októ­ber, að því er kemur fram í frétt the Guardian.

Ef Brexit mun eiga sér stað án samn­ings þá gæti Boris kallað eftir kosn­ingum í nóv­em­ber næst­kom­andi. Ýmsir þing­menn Íhalds­flokks­ins hafa lýst því yfir að þeir muni kjósa með stjórn­ar­and­stöð­unni ef eng­inn samn­ingur náist um Brexit. Jafn­framt hefur Sinn Féin kraf­ist þess að efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sam­ein­ingu Írlands náist eng­inn Brexit samn­ingur.

Ef ekki verður samið um Brexit fyrir 31. októ­ber mun Bretland ganga úr ESB án samn­ings. Þá myndu lög ESB hætta að gilda um Bretland sam­stundis og und­ir­býr breska rík­is­stjórnin sig nú undir slíkar aðstæður.

Mikill kostn­aður gæti hlot­ist af engum samn­ingi þar sem mat­vörur gætu hækkað í verði, auk þess sem aukin fjár­hags­leg byrði yrði fyrir bresk stjórn­völd að koma á auk­inni toll­vörslu. Leo Varadkar, for­sæt­is­ráð­herra Írlands, hefur einnig látið þau orð falla að líkur séu á að eng­inn samn­ingur myndi nást, en leggur áherslu að ekki sé hægt að semja á ný um nýjan samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið en þann sem fyrir liggi.

Kosið verði á ný um sjálfstæði Skotlands

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, segir í við­tali við the Guardian að þegar Brexit muni eiga sér stað þá sé kom­inn nýr grund­völlur fyrir nýrri atkvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands. Hún vill enn fremur að kosið verði um sjálf­stæði Skotlands fyrir árið 2021.

Hún segir jafn­framt að ef eng­inn samn­ingur muni nást um útgöngu Bret­lands úr ESB beri Jeremy Corbyn jafn mikla ábyrgð og Theresa May og Boris Johnson á aðstæð­unum.

Eftir fund Sturgeon með Boris í síð­ustu viku sagði Sturgeon að hún hefði ekki verið „gjör­sam­lega í skýj­unum“ vegna heim­sóknar for­sæt­is­ráð­herr­ans. „Hann talar um Brexit, og sér­stak­lega um Brexit án samn­ings, líkt og það sé ekk­ert til að hafa áhyggjur af, og að allir sem segi að svo sé eru bara nei­kvæðir og nið­ur­drep­andi,“ sagði Sturgeon.

Sturgeon hefur jafn­framt sagt að slíkar aðstæður séu afar „hættu­legar.“ Hún bendir á að mikil óvissa sé um sam­göngur, ferjur, hvort mat­ar­skortur muni eiga sér stað eða hvort skortur verði á lyfjum.

Nýjar kosningar til þings mögulegar

Starfs­manna­stjóri Borisar Johnson hefur frestað fríi allra starfs­manna fyrir 31. októ­ber sem hefur kynnt enn fremur undir þann orðróm að von sé á skyndi­kosn­ingum í bráð eða beint eftir 31. októ­ber. Breska stjórn­ar­ráðið hefur ekki neitað orðróm­inum.

Slíkar kosn­ingar gætu verið Íhalds­flokknum hag­stæðar þar sem flokk­ur­inn gæti mögu­lega aukið fylgi sitt og fengi stærri meiri­hluta innan þings­ins. Það gæti auð­veldað Boris að koma samn­ing í gegnum þingið, ef um samn­ing sé að ræða á annað borð.

Bandarískir stjórnmálamenn óánægðir

Banda­rískir stjórn­mála­menn hafa lýst því yfir að komið verði í veg fyrir nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing á milli Banda­ríkj­anna og Bret­lands eftir útgöngu Breta úr ESB verði landa­mæri Írlands og Norður-Írlands ekki opin.

[adspot]Til að vinna sér í hag­inn og minnka efna­hags­lega skað­ann sem mun hljót­ast við útgöngu Bret­lands úr ESB hefur Boris Johnson afhent banda­rískum stjórn­völdum drög að nýjum frí­versl­un­ar­samn­ingi. Þrátt fyrir góðan vin­skap á milli Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, og Borisar myndi það reyn­ast Trump erfitt að koma slíkum samn­ingi í gegnum banda­ríska þingið ef Good Friday samn­ing­ur­inn væri í hættu.

Margir banda­rískir þing­menn hafa lýst því yfir að þeir myndu kjósa gegn frí­versl­un­ar­samn­ingi á milli Bret­lands og Banda­ríkj­anna ef komið væri á landa­mærum, þar á meðal Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings. Boris Johnson seg­ist munu virða Good Friday samn­ing­inn, sem kveður á um að engin hörð landa­mæri séu á milli Írlands og Norður-Írlands.

Samdráttur í efnahagi Bretlands

Hagkerfi Bret­lands dróst saman um 0,2 pró­sent frá apríl til júní sem er í fyrsta sinn í sex og hálft ár sem slíkt ger­ist fyrir breskan efna­hag. Hag­fræð­ingar hafa bent á að óvissan af völdum Brexit og auknum líkum á að samn­ingar náist ekki hafi ýtt undir líkur á að hag­kerfið drag­ist saman.

Óvissan í kringum Brexit hefur haft afar slæm áhrif á iðnað í Bret­landi. Til að mynda hefur fjár­fest­ing í bíla­iðn­aði minnkað um 90 milljón pund. Honda og Ford hafa bæði lýst yfir því að þau muni loka verk­smiðjum sínum í Bret­landi. Sajid Javid, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, segir þó að Bretar þurfi ekki að ótt­ast kreppu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár