Boeing vissi af galla í 737 Max vélunum en sagði flugfélögum og yfirvöldum ekkert

Boeing sendi í dag frá sér í ítarlega tilkynningu þar sem segir að verk­fræðingar félagsins hafi komið auga á galla í 737 Max vélunum mánuðum áður en tvær vélar hröpuðu.

Boeing vissi af því að viðvörunar­búnaður í 737 Max vélum fyritæksins væri ekki að virka eins og hann ætti að gera, en tilkynnti flug­félögum sem notuðust við vélarnar ekki frá því og heldur ekki flugmála­yfirvöldum í Banda­ríkjunum eða annars staðar.

Gallinn var metinn minni­háttar og ekki talinn ógna flug­öryggi. Yfirmenn verkfræði­deildar félagsins, sem hafði yfir­umsjón með fram­leiðslu á hugbúnaði fyrir vélarnar, hafa nú nær allir verið reknir og skipulagi verið breytt þannig, að öll uppfærsla á búnaði vélanna fer fram undir vökulu auga innra eftirlits og yfir­stjórnar félagsins.

Þetta kemur fram í ítarlegri tilkynningu sem Boeing sendi frá sér í dag, þar sem greint er frá því að félagið hafi vitað af galla í vélunum, skömmu eftir að það hóf að afhenda vélar til viðskipta­vina.

Max vél Lion Air í Indónesíu hrapaði síðan til jarðar skömmu eftir flugtak, 29. október í fyrra, og létust allir um borð, samtals 189. Í kjölfarið á því var farið að skoða málin enn betur.

Hinn 10. mars síðastliðinn hrapaði síðan önnur Max vél, hjá Ethiopian Airlines, með þeim afleiðingum að allir um borð létust, samtals 157. Í þessum tveimur létust því 346.

Notkun á Max vélunum var bönnuð á alþjóða­vísu eftir þetta, og hafa vélarnar verið kyrr­settar síðan.

Rann­sóknir standa enn yfir á slysunum, en í frum­niðurstöðum yfirvalda í Indónesíu, hefur komið fram að flug­mennirnir hafi reynt að fylgja þeim ferlum sem þeir áttu að gera, en það hafi ekki gengið.

Samkvæmt frum­niðurstöðum beinist rann­sóknin að hugbúnaði í Boeing vélunum - þeim sama og Boeing hefur nú viðurkennt að hafi verið gallaður - en félagið telur þó að hann hafi ekki átt að ógna öryggi farþega og vélanna, með réttum viðbrögðum flugmanna.

Spjótin beinast að hinu svonefnda MCAS-kerfi sem á að koma í veg fyrir ofris, og það sama á við um rannsókn yfirvalda í Eþíópíu á slysinu þar. Líkt og í Indónesíu þá toguðust vélarnar til jarðar.

Bandaríska alríkis­lögreglan FBI rannsakar nú málið, og það sama á við um teymi rann­sakenda frá bandaríska dómsmála­ráðuneytinu.

Miklir hagsmunir eru undir fyrir Boeing og þau flugfélög sem notast við Max vélar. Boeing vinnur nú að því að tryggja öryggi vélanna og sannfæra flugmála­yfirvöld um að þær séu traustsins verðar. Ekki er ljóst enn hversu langur tími mun líða, þar til það gerist. Hinn 23. maí næst­komandi fer fram fundur frá fulltrúum helstu flugmála­yfirvalda í heiminum, þar sem staðan á Max vélunum verður til umræðu, en Boeing er sagt vera að undirbúa sig fyrir þann fund og freista þess að fá leyfi fyrir notkun á vélunum skömmu eftir það, að því er fram hefur komið í ítarlegri umfjöllun Seattle Times um málið. Boeing er stærsti vinnu­veitandi Seattle-svæðisins með um 80 þúsund starfs­menn í starfsstöð félagsins í Renton.

Eitt þeirra félaga sem hefur þurft að glíma við erfið­leika vegna kyrr­setningu á Max vélunum er Icelandair. Þrjár vélar félagsins hafa verið kyrr­settar, og aðrar leigðar í staðinn. Þá á félagið von á sex öðrum vélum í flotann, en vegna óvissu um hvenær kyrr­setningu verður aflétt er óvíst hvenær það verður. Sæta­fram­boð Icelandair dregst saman um tvö pró­sent í sumar vegna kyrr­setn­ingar á vélunum.

Á síðustu sex mánuðum hefur Icelandair tapað 13,5 milljörðum króna. Frá áramótum fór eiginfjár­hlutfallið úr 32 prósent niður í 23 prósent.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur sagt að félagið hafi komið þeim skila­boðum til Boeing að fá skaðann af kyrr­setningunni á Max vélunum bættan.

Loka­niðurstöður rannsókna á því hvað olli flug­slysunum í Indónesíu og Eþíópíu liggja hins vegar ekki fyrir, og er ekki ljóst hvenær það verður. Þær munu vafalaust hafa mikið um það að segja, í hvaða farveg möguleg bótamál á hendur Boeing fara.

Boeing er stærsta útflutnings­fyrirtækja Banda­ríkjanna og hefur verið starfandi í 103 ár. Markaðs­virði þess nemur um 220 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 27 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár