Tvö prósent samdráttur hjá Icelandair

Sæta­framboð verður minna hjá félaginu í sumar en til stóð og má rekja það til vandamála sem tengjast 737 Max vélum Boeing, sem hafa verið kyrr­settar.

Sæta­framboð Icelandair dregst saman um tvö prósent í sumar vegna kyrr­setningar Boeing 737 MAX-vélanna, samkvæmt tilkynningu sem félagið hefur sent frá sér.

Samkvæmt tilkynningunni er nú gert ráð fyrir að kyrr­setningin á vélunum, á alþjóða­vísu, muni vara lengur en talið var í upphafi, en fyrri tilkynning Icelandair gerði ráð fyrir kyrr­setningu á vélunum til 16. júní.

Ekki liggur fyrir ennþá hversu langur tími mun líða þar til flugfélög geta notað vélarnar á nýjan leik, en Boeing hefur sagt að unnið sé að því að flýta allri vinnu eins og kostur er.

Kyrr­setninguna má rekja til tveggja hörmulegra flugslysa í Indónesíu og Eþíópíu, þar sem allir um borð í tveimur 737 Max vélum létust, samtals 346. Loka­niðurstöður rannsókn á slysunum liggja ekki fyrir, en spjótin hafa beinst að MCAS-kerfi í vélunum, sem á að sporna gegn ofrisi vélanna.

Icelandair hefur leigt þrjár vélar sem verða í rekstri fram að 1. október á þessu ári. „Um er að ræða tvær 262 sæta Boeing 767 breið­þotur og eina Boeing 757-200 vél sem er 184 sæta. Til saman­burðar taka Boeing 737 MAX vélarnar 160-178 farþega í sæti [...] Vinna varðandi þessar breytingar mun hefjast eftir helgi og munu þjónustu­fulltrúar Icelandair hafa samband við viðkomandi farþega.“

Ekki liggur fyrir enn hversu mikið höggið verður fyrir Icelandair, vegna þessa, en Bogi Nils Bogason, forstjóri, hefur sagt að félagið muni reyna að fá skaðann af kyrr­setningunni bættan frá Boeing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár