Reyna að flýta því að koma Max vélunum í loftið

Bandarísk flugmála­yfirvöld eru sögð líkleg til þess að flýta því að Max vélarnar frá Boeing komist í loftið, og verður mikil­vægur fundur um málið 23. maí.

Bandarísk flugmála­yfirvöld eru sögð líkleg til að veita samþykki fyrir notkun á 737 Max vélum Boeing, í kjölfar fundar með fulltrúum flugmála­yfirvalda víðs vegar um heiminn, hinn 23. maí næst­komandi.

Ef „ekkert óvænt gerist“ - eins og það er orðað í umfjöllun Seattle Times - þá gæti það þýtt að vélarnar verði tilbúnar til notkunar í lok maí eða byrjun júní.

Umfjöllun Seattle Times um vandamál tengd Boeing í kjölfar flug­slysanna 29. október í Indónesíu og 13. mars í Eþíópíu, þegar samtals 346 létust, eftir að 737 Max vélarnar toguðust til jarðar fljótlega eftir flugtak, hefur verið leiðandi, en Boeing er með rætur sínar í Renton, í útjaðri Seattle.

Starfs­menn eru þar um 80 þúsund, og hefur hjartað í starfsemi þessa stærsta útflutnings­fyrirtækis Banda­ríkjanna verið á Seattle svæðinu frá stofnun fyrir 103 árum.

Í kjölfar seinna slyssins hafa Max vélarnar verið kyrr­settar og notkun á þeim bönnuð, á meðan rannsókn hefur staðið yfir. Rann­sóknin hefur meðal annars beinst að MCAS-kerfi í flug­vélunum, sem á að sporna gegn ofrisi, en loka­niðurstöður rann­sóknar­nefnda flugslysa í Indónesíu og Eþíópíu liggja ekki fyrir.

Boeing ítrekaði á uppgjörs­fundi fyrr í vikunni, að vélarnar væru öruggar og það væri mat Boeing, eftir ítarlega skoðun, að ekki þyrfti að breyta hönnun á vélunum.

Kyrr­setning á Max vélunum hefur skapað víðtæk vandamál fyrir marga af viðskipta­vinum Boeing, þar á meðal Icelandair, en þrjár af vélum félagsins hafa verið kyrr­settar. Félagið gerir ráð fyrir að kyrr­setningin gildi til 16. júní, samkvæmt tilkynningu félagsins til kaup­hallar.

Það verður á valdi flugmála­yfirvalda á hverju svæði fyrir sig, að ákveða hvenær hægt verður að taka vélarnar í notkun, en búast má við samræmdum aðgerðum í þessum efnum, vegna þess hve víðtæk áhrifin af því að kyrrsetja ákveðnar tegundir véla í farþega­flugi geta verið.

Rekstur Icelandair hefur gengið nokkuð erfiðlega að undan­förnu, en félagið tapaði 6,8 milljörðum síðasta ársfjórðungi ársins í fyrra. Eigið fé félagsins var um 55 milljarðar króna í lok árs og skuldirnar 110 milljarðar.

Uppgjör félagsins vegna reksturst á fyrstu þremur mánuðum ársins verður birt 3. maí næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár