Afléttingar leiði til frjálsræðis

Sóttvarna­læknir vonar að afléttinga­áætlun stjórn­valda leiði til meira frjáls­ræðis. „Þetta er stefnu­breyting,“ sagði Þórólfur á upplýsinga­fundi almanna­varna í dag. Ef fjöldi daglegra smita verður áfram svipaður ætti hjarð­ónæmi að nást innan tveggja mánaða.

Þríeykið var á sínum stað á 196. upplýsingafundi almannavarna í dag. Á morgun verða tvö ár síðan óvissustigi vegna faraldursins var fyrst lýst yfir.
Þríeykið var á sínum stað á 196. upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Á morgun verða tvö ár síðan óvissu­stigi vegna far­ald­urs­ins var fyrst lýst yfir. Mynd: Almannavarnir

1.597 smit greindust í gær, 1.539 innanlands og 58 á landa­mærunum. 11.744 eru í einangrun með COVID-19. 37 eru á sjúkra­húsi. 25 eru með virkt smit en hinir með eftirköst. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Einn er á sjúkra­húsinu á Akureyri vegna COVID-19 og er staðan viðráðanleg að sögn land­læknis.

Tölur um sóttkví hafa ekki verið uppfærðar en samkvæmt reglum sem tóku gildi á miðnætti þurfa einungis þeir sem verða útsettir fyrir kórónu­veirusmiti innan heimilis þurfa að fara í sóttkví, en aðrir í smitgát. Í gær voru um 13 þúsund í sóttkví og sú tala hefur því fækkað svo um munar eftir að nýju reglurnar tóku gildi.

Mikilvægt að aflétta í skrefum til að koma í veg fyrir bakslag

Samhliða breyttum reglum um sóttkví munu stjórn­völd kynna afléttingar á ýmsum takmörkunum vegna kórónu­veiru­faraldursins í lok vikunnar. Sóttvarna­læknir mun leggja fram tillögur til stjórn­valda varðandi afléttingu takmarkana í skrefum en það er svo í höndum stjórn­valda að taka loka­ákvörðun.

Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn almanna­varna­deildar ríkis­lögreglu­stjóra, benti á í upphafi upplýsinga­fundar dagsins, sem var sá 196. í röðinni, að á morgun verða tvö ár frá því að óvissu­stigi var í fyrsta skipti lýst yfir vegna faraldursins.

Sóttvarna­læknir segir stefnu­breytingu í aðgerðum til að takast á við faraldurinn stafa af ýmsu, meðal annars breyttu eðli faraldursins sökum útbreiðslu ómíkron-afbrigðisins. Rúmlega 90% smita sem greinast þessa dagana eru af ómíkron-afbrigðinu en 10% af delta-afbrigðinu. Að sögn Þórólfs er örvunar­bólusetning að reynast vel, færri þurfa að leggjast inn á sjúkrahús vegna COVID og færri veikjast alvarlega.

„Þannig er nokkuð ljóst að alvarleg veikindi af völdum COVID-19 eru nú til muna fátíðari en við höfum áður séð, en þó þufa um 0,2 prósent einstaklinga sem greinast að leggjast inn. Ný áskorun er hins vegar útbreidd smit hjá öðrum inni­liggjandi sjúklingum og önnur veikindi og fjar­vistir starfs­fólks vegna COVID-19,“ sagði Þórólfur.

Afléttinga­áætlun stjórn­valda verður kynnt í lok vikunnar og segist Þórólfur vona að hún muni leiða til meira frjáls­ræðis. Hann telur hins vegar mikilvægt að ekki verði farið of hratt í afléttingar og þær verði gerðar í nokkrum skrefum. „Annars er hætt við að bakslag komi í faraldurinn,“ sagði Þórólfur. Helstu áhyggjurnar, að hans mati, felast í auknum fjölda smita í samfélaginu og fjölgun alvarlegra veikinda með tilheyrandi áhrifum á heilbrigðis­kerfið, en einnig auknum veikindum hjá heilbrigðis­starfsfólki og öðru starfs­fólki í umönnunar­störfum.

„Ekki langt í land þar til faraldrinum fari að slota“

Þórólfur reyndi einnig að svara spurningu sem brennur á mörgum, það er hvenær megi búast við að faraldrinum muni ljúka? „Þessu er auðvitað ekki hægt að svara með neinni vissu en þó er hægt að segja að með þessum útbreiddu smitum í samfélaginu sem við erum að sjá þá styttist í að við förum að sjá fyrir endann á honum.“

Þórólfur vísaði meðal annars í skimun Íslenskrar erfða­greiningar eftir mótefnum gegn kórónu­veirunnar, en samkvæmt niður­stöðu hennar gæti veiran verið búin að smita um 130 þúsund Íslendinga. „Ef þessar forsendur eru notaðar og reiknað er með að um 80 prósent lands­manna þurfi að smitast til að ná hjarð­ónæmi má búast við að það geti tekið enn um einn og hálfan til tvo mánuði að ná því marki ef fjöldi daglegra smita verður svipaður og verið hefur,“ sagði Þórólfur, en bætti við:

„Vissulega þarf að taka þessum útreikningum með fyrirvara en þessi hugar­leikfimi sýnir þó að líklega er ekki langt í land þar til faraldrinum fari að slota. Við þurfum hins vegar að vera undir það búin að eitthvað óvænt komi upp, eins og ný afbrigði veirunnar, sem geta breytt okkar spá og okkar áætlunum. Ég held hins vegar að við ættum að vera vongóð um að betri tíð sé innan seilingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár