Veiran gæti jafnvel verið búin að smita um 130 þúsund manns hérlendis

Staðfest kórónu­veirusmit hérlendis til þessa eru rúmlega 58 þúsund talsins. Kári Stef­ánsson segist telja að veiran gæti jafnvel verið búin að smita 130 þúsund Íslendinga, samkvæmt fyrstu niður­stöðum úr mótefna­rannsókn fyrir­tækisins.

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, segir að niður­stöður úr skimun fyrir­tækisins eftir mótefnum gegn kórónu­veirunni, í blóðsýnum sem tekin voru skömmu fyrir áramót, sýni það að umtals­vert fleiri hafi smitast af kórónu­veirunni en búið hafi verið að greina í PCR-prófum á þeim tíma­punkti.

Hversu mikið fleiri er erfitt að segja, að sögn Kára, en hann segir niður­stöðurnar gefa til kynna að um 20 prósent af þeim sem séu undir 40 ára aldri hafi smitast af kórónu­veirunni og segir við Kjarnann að jafnvel séu vísbendingar um að allt að 130 þúsund íbúar á Íslandi hafi smitast af kórónu­veirunni nú þegar.

„En allir þessir útreikningar eru allir hrikalega ónákvæmir og að öllum líkindum eru tölurnar sem ég er að tala um aðeins meiri en raun­veruleikinn segir okkur, en það er ekkert víðsfjarri,“ segir Kári við blaðamann.

Myndin verði skýrari í febrúar

Kári segir við Kjarnann að þessar niður­stöður sem hann sé að draga ályktanir út frá eigi við um samfélagið eins og það var fyrir um fjórum vikum síðan.

Síðan þær blóð­prufur voru teknar hafa greind smit í PCR-prófum síðan nær undan­tekninga­laust verið yfir þúsund talsins á degi hverjum. Frekari blóð­prufur voru teknar af hálfu Íslenskrar erfða­greiningar fyrir rúmri viku síðan og niður­stöður úr greiningu á þeim eru væntanlegar um miðjan febrúar, segir Kári. Þá verður meira hægt að segja um stöðuna eins og hún er í dag.

Í dag eru alls 11.109 manns með staðfest smit og í einangrun, samkvæmt tölum á tölfræðivef yfirvalda og staðfest smit á landinu orðin 58.409 – sem jafn­gildir því að um 16 prósent íbúa á Íslandi hafi fengið COVID-19.

Pestin gæti verið búin að hlaupa sitt skeið í apríl

Kári telur þó að hlut­fallið sé enn hærra og notar töluna 2,7 sem margfeldi til þess að áætla raun­verulega útbreiðslu veirunnar um samfélagið, og byggir það á niður­stöðunum úr blóð­prufunum í lok desember.

Hann vill ekki fullyrða of mikið í samtali við blaðamann, en segir niður­stöðurnar úr blóð­tökunni í lok desember þó veita þær vísbendingar að smit í samfélaginu séu töluvert útbreiddari en opinberar tölur sýni.

„Þetta er nátt­úrlega algjör­lega óleiðrétt fyrir aldri og öllu slíku, það eina sem þetta segir okkur er að í dag erum við að öllum líkindum komin með ansi mikið smit í samfélagið. En við komum til með að vita þetta eftir um það bil þrjár vikur,“ segir Kári.

„Mér sýnist, eins og maður horfir á þetta núna, að þessi pest verði búin að hlaupa sitt skeið í apríl, eða svo,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár