Félögin fá 453 milljónir vegna árangurs Íslands á EM

Ótrúlegur árangur íslenska landsliðsins á EM í sumar skilaði KSÍ gríðarlegum tekjum. Sambandið hefur nú ákveðið hversu mikið hvert aðildarfélag fær í sinn hlut.
Ótrú­legur árangur íslenska lands­liðs­ins á EM í sumar skil­aði KSÍ gríð­ar­legum tekjum. Sam­bandið hefur nú ákveðið hversu mikið hvert aðild­ar­fé­lag fær í sinn hlut. Mynd: EPA

Knattspyrnu­samband Íslands (KSÍ) hefur greint frá því að aðildar­félög þess fái 453 milljónir króna sem þau skipta á milli sín vegna árangurs íslenska karla­lands­liðsins á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Fjár­munirnir skiptast á milli félaga eftir árangri þeirra í deildar­keppni síðastliðin þrjú ár. Hæstu greiðsluna fá fimm úrvalds­deildar­félög: Fylkir, Breiða­blik, Valur, Stjarnan og ÍBV. Þau fá 18,2 milljónir króna í sinn hlut hvert. Lægsta upphæð þeirra liða sem leika í dag í Pepsí-deild karla fær Víkingur Ólafsvík, eða 14,3 milljónir króna.

Hægt er að sjá frekari skiptingu á greiðslunum og aðferðar­fræðinni á bakvið þær hér.

Langhæstu styrkir sem hafa farið til félaga

KSÍ greindi frá því á ársþingi sambandsins þann 13. febrúar síðastliðinn hvernig styrkir og fram­lög þess til­ ­fé­lag­anna í ár áttu að skipt­ast. Ljóst var að til­kynn­ing­ar­innar er beðið með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu, enda voru styrkir og fram­lög KSÍ til aðild­ar­fé­laga áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016. Það er lang­hæsta upp­hæð sem KSÍ hefur nokkru sinni útdeilt til félag­anna, en til sam­an­burðar fengu þau 147 millj­ónir króna í fyrra.

Ástæða aukn­ing­ar­innar var sú að áætlanir gerðu ráð fyrir að tekjur KSÍ myndu tvö­fald­ast í ár vegna þátt­töku karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu EM í Frakk­landi. Velta sam­bands­ins átti að fara úr 1.112 millj­ónum króna í 2.263 millj­ónir króna, aðal­lega vegna þess að styrkir frá knatt­spyrnu­sam­band­i ­Evr­ópu (UEFA) færu úr 356 millj­ónum króna í 1.506 millj­ónir króna á milli ára. ­Sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun KSÍ sem birt var í febrúar átti þessi gríð­ar­lega aukn­ing í veltu skila ­sam­band­inu 600 millj­ónum króna í hagnað á árinu 2016. Og aðild­ar­fé­lög ­sam­bands­ins munu njóta þess.

Íslenska lands­liðið kom síðan öllum á óvart í sumar og komst mun lengra á EM en nokkur átti von á. Það varð til þess að tekjurnar vegna þátttöku liðsins urðu mun meiri en upphaf­lega var áætlað. Samkvæmt áætlun ársins var gert ráð fyrir að tekjurnar vegna EM yrðu 1,1 milljarður króna, en á endanum voru þær nær 1,9 milljörðum króna. Nú hefur sú aukning á tekjum orðið til þess að sú upphæð sem rennur til aðildar­félaga verður 453 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár