KSÍ tilkynnir aðildarfélögum hvernig 413 milljónir skiptast í dag

Knattspyrnu­samband Íslands (KSÍ) mun greina aðildar­félögum sínum frá því í dag, 13. febrúar, á ársþingi sambandsins hvernig styrkir og framlög þess til félaganna í ár muni skiptast. Ljóst er að tilkynningarinnar er beðið með tölu­verðri eftir­væntingu, enda eru styrkir og framlög KSÍ til aðildar­félaga áætlaðir 413 milljónir króna á árinu 2016. Það er langhæsta upphæð sem KSÍ hefur nokkru sinni útdeilt til félaganna, en til saman­burðar fengu þau 147 milljónir króna í fyrra.

Ástæða aukningarinnar er sú að tekjur KSÍ munu tvöfaldast í ár vegna þátttöku karla­lands­liðsins í knatt­spyrnu í Evrópu­mótinu í knatt­spyrnu í Frakk­landi á komandi sumri. Velta sambandsins mun fara úr 1.112 milljónum króna í 2.263 milljónir króna, aðallega vegna þess að styrkir frá knattspyrnu­sambandi Evrópu (UEFA) fara úr 356 milljónum króna í 1.506 milljónir króna á milli ára. Samkvæmt nýbirtri fjárhags­áætlun KSÍ mun þessi gríðar­lega aukning í veltu skila sambandinu 600 milljónum króna í hagnað á árinu 2016. Og aðildar­félög sambandsins munu njóta þess.

Mest fór til félaga í Pepsí-deild karla í fyrra

KSÍ vildi ekki veita Kjarnanum upplýsingar um hvernig sú fjárhæð sem mun skiptast á milli aðildar­félaga sambandsins skiptist fyrr en búið væri að tilkynna fulltrúum þeirra það á ársþingi KSÍ sem fram fer í dag.

Á árinu 2015 fengu félögin í Pepsí-deild karla 40 milljóna króna styrk frá UEFA vegna barna- og unglinga­starfs. KSÍ greiddi síðan öðrum aðildar­félögum en þeim sem léku í Pepsí-deild karla 41,5 milljónir króna (um 28 prósent af heildar­kökunni), félögum í Pepsí-deild karla 71,1 milljón króna vegna útsendingar- og markaðs­réttar (48 prósent) og félögum í leyfis­kerfi KSÍ 22,8 milljónir króna (16 prósent). Þá greiddi KSÍ 11,6 milljónir króna (átta prósent) í ferða­þátttöku­gjald, verðlaunafé og fleira á árinu 2015. Samtals gera þessar greiðslur KSÍ til aðildar­félaga 147 milljónir króna.

Kjarninn fjallaði ítarlega um ársreikning KSÍ fyrir árið 2015 og fjárhags­áætlun sambandsins fyrir árið 2016 um síðustu helgi. Hægt er að lesa þá umfjöllun hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár