Fyrrverandi héraðsdómari segir Guðlaug Þór hafa misbeitt valdi og jafnvel bakað sér refsiábyrgð

Pétur Guð­geirs­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, telur utan­rík­is­ráð­herra hafa gerst sekan um ólög­mæta íhlutun í stjórn­skip­un­ar­mál full­valda ríkis með stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­unni við Juan Guaidó í Venes­ú­ela. Réttast sé að Guð­laugur biðj­ist afsök­unar og segi af sér.

Pétur Guð­geirs­son, fyrr­ver­andi dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, segir Guðlaug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafa mis­farið með vald og hlut­ast með ólög­mætum hætti til um inn­an­rík­is­mál­efni full­valda ríkis þegar hann lýsti yfir stuðn­ingi Íslands við Juan Guaidó sem bráða­birgða­for­seta Venes­ú­ela.

„Mér er ekki kunn­ugt um að Ísland hafi nokkru sinni hlut­ast með þessum hætti í mál­efni ann­ars full­valda ríkis,“ segir í bréfi sem Pétur sendi utan­rík­is­ráð­herra í síð­ustu viku. Stundin hefur undir höndum afrit af bréf­inu, en þar er skorað á Guðlaug að segja af sér ráð­herra­emb­ætti og biðja þing og þjóð afsök­unar á fram­göngu sinni – fram­göngu sem dóm­ar­inn fyrr­ver­andi telur að geti varðað refsi­á­byrgð.

Hvorki samráð við ríkisstjórn né utanríkismálanefnd

Guð­laugur Þór lýsti yfir stuðn­ingi við Juan Guaidó, for­seta þjóð­þings Venes­ú­ela, sem for­seta lands­ins til bráða­birgða þann 4. febr­úar síð­ast­lið­inn. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, hefur gagn­rýnt ráð­herr­ann fyrir að hafa ekki haft sam­ráð við utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis áður en yfir­lýs­ingin var birt. Þá virð­ist sam­kvæmt fund­ar­gerðum sem málið hafi ekki verið tekið form­lega upp á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar, en Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir þó Guðlaug hafa upp­lýst for­menn stjórn­ar­flokk­anna um yfir­lýs­ing­una áður en hún var send út.

Pétur Guð­geirs­son bendir á að sam­kvæmt 17. gr. stjórn­ar­skrár­innar er skylt að bera upp mik­il­væg stjórn­ar­mál­efni á ráð­herra­fundum. „Ekki getur vafi leikið á því að ákvörðun um að Ísland hlut­ist til um stjórnskip­un­armál ann­ars full­valda ríkis er mik­il­vægt stjórnarmálefni og því fremur sem sú íhlutun er bersýnilega ólögmæt,“ skrifar Pétur og bendir á að ekki verði séð af því sem skráð er á vef for­sæt­isráðuneyt­is­ins um tvo síðustu ráðherra­fund­ina að utan­rík­is­ráð­herra hafi borið málið upp þar. „Get ég ekki betur séð en að slík van­ræksla gæti varðað refsiábyrgð sam­kvæmt 2. gr. laga um ráðherraábyrgð nr. 4, 1963. Þá gæti sjálf emb­ætt­is­athöfnin hugs­an­lega varðað refsiábyrgð sam­kvæmt 10. gr. lag­anna.“

Hvað ef utanríkisráðherra Venesúela lýsti
Steingrím réttkjörinn forseta Íslands?

Pétur bendir á að full­veldi ríkja og virð­ing fyrir því er grundvöllur sam­skipta sið­aðra ríkja og að ekk­ert ríki hefur sam­kvæmt þjóðarétti heim­ild til þess að hlut­ast til um inn­anríkismálefni ann­ars ríkis. Þetta hafi verið við­ur­kennt allt frá frið­ar­samn­ing­unum í Westfalen 1648 þegar grundvöllur var lagður að hinu alþjóðlega kerfi full­valda ríkja og stofn­anir á borð við Sam­ein­uðu þjóðirnar væru óhugs­andi ef þessu leið­ar­ljósi væri ekki almennt fylgt.

„Hvernig lit­ist yður nú á það, herra utanríkisráðherra, að starfs­bróðir yðar í Venesúela fengi veður af því að for­seti alþingis, Steingrímur J. Sig­urðs­son, hefði af ein­hverjum ástæðum sem hann bæri fyrir sig, útnefnt sjálfan sig for­seta Íslands, og að nú lýsti þessi kollega yðar því yfir, fyrir hönd Venesúela, að Steingrímur J. væri réttur for­seti Íslands en ekki sá sem til þess hefur verið kjörinn,“ skrifar Pétur.

„Ég leyfi mér að halda því fram
að það athæfi sem þér hafið nú gert
yður beran að sé jafn­hneyksl­an­legt“

„Ég er viss um að þér mynduð, eins og hver full­vita maður, álíta þetta vera hneyksl­an­leg afskipti erlends ríkis af málefnum Íslands. Ég leyfi mér að halda því fram að það athæfi sem þér hafið nú gert yður beran að sé jafn­hneyksl­an­legt.“

Bréfi Péturs lýkur með áskorun til Guðlaugs Þórs: „Að end­ingu skora ég á yður að þér segið nú þegar af yður ráðherra­emb­ætt­inu sem þér hafið svo stórlega mis­farið með og biðjið þing og þjóð afsökunar á þessum afglöpum.“

Juan Guaidóhefur lýst sig for­seta Venes­ú­ela og fengið víð­tækan stuðn­ing frá alþjóða­sam­fé­lag­inu.

Hér má lesa bréf Péturs Guðgeirssonar til utanríkisráðherra í heild:

Herra utanríkisráðherra, Guð­laugur Þór Þórðar­son,

Ég vísa til þess að þér hafið, hinn 5. þ.m. látið birta frétta­til­kynn­ingu á vefsíðu utanríkisráðuneyt­is­ins þar sem fram kemur að þér höfðuð dag­inn áður lýst því yfir á ensku á netsíðunni Twitter "að Ísland styddi Juan Guaidó sem for­seta Venesúela til bráðabirgða. Boðað skyldi til frjálsra og löglegra kosn­inga og vilji fólks­ins virtur." Þá segir þar: "Áður en utanríkisráðherra lýsti þessu yfir upplýsti hann utanríkismálanefnd Alþingis."

Í frétta­til­kynn­ing­unni er þessi stjórnar­athöfn yðar réttlætt með atburðum sem orðið hafa í Venesúela og ástandi sem ríkir þar í stjórnar­fari og bjarg­ræð­ismálum. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að maður að nafni Juan Guaidó, sem sagður er vera "lýðræð­is­lega réttkjörinn for­seti hins valda­lausa þjóðþings" Venesúela, hafi nýverið lýst sig for­seta lands­ins til bráðabirgða.

Nú hlýtur yður að vera kunn­ugt um það að Venesúela er full­valda ríki og að landið er aðili að Sam­ein­uðu þjóðunum líkt og Ísland. Þá er yður vafa­laust kunn­ugt um að form­legt stjórnmálasam­band er með ríkjunum tveimur, eins og t.d. má lesa í for­setaúrskurði nr. 8, 9. febrúar 2018 um sendiráð, fasta­nefndir ofl. Þá er ætti að vera óþarft að minna yður á það að full­veldi ríkja og virð­ing fyrir því er grundvöllur sam­skipta sið­aðra ríkja og loks á það að ekk­ert ríki hefur sam­kvæmt þjóðarétti heim­ild til þess að hlut­ast til um inn­anríkismálefni ann­ars ríkis. Hefur þetta verið við­ur­kennt með öllum sið­uðum þjóðum frá frið­ar­samn­ing­unum í Westfalen 1648 þegar grundvöllur var lagður að hinu alþjóðlega kerfi full­valda ríkja, eins og þér eigið vel að vita. Væru alþjóðastofn­anir eins og Sam­ein­uðu þjóðirnar t.d. óhugs­andi ef þessu leið­ar­ljósi væri ekki almennt fylgt, sbr. t.d. 2. gr. stofnsáttmála sam­tak­anna frá 24. október 1945. Loks hljótið þér að vita að full­veldi ríkis er algjört og því dregur ekki úr því þótt þar séu inn­an­lands­deilur eða ríki óstjórn.

Mér er ekki kunn­ugt um að Ísland hafi nokkru sinni hlut­ast með þessum hætti í málefni ann­ars full­valda ríkis og reyndar leyfi ég mér að slá því föstu slík firn hafi aldrei átt sér stað. Hvernig lit­ist yður nú á það, herra utanríkisráðherra, að starfs­bróðir yðar í Venesúela fengi veður af því að for­seti alþingis, Steingrímur J. Sig­urðs­son, hefði af ein­hverjum ástæðum sem hann bæri fyrir sig, útnefnt sjálfan sig for­seta Íslands, og að nú lýsti þessi kollega yðar því yfir, fyrir hönd Venesúela, að Steingrímur J. væri réttur for­seti Íslands en ekki sá sem til þess hefur verið kjörinn. Ég er viss um að þér mynduð, eins og hver full­vita maður, álíta þetta vera hneyksl­an­leg afskipti erlends ríkis af málefnum Íslands. Ég leyfi mér að halda því fram að það athæfi sem þér hafið nú gert yður beran að sé jafn­hneyksl­an­legt.

Samkvæmt 17. gr. stjórnar­skrárinnar nr. 33, 1944 skal bera upp mik­il­væg stjórnarmálefni á ráðherra­fundi. Ekki getur vafi leikið á því að ákvörðun um að Ísland hlut­ist til um stjórnskip­un­armál ann­ars full­valda ríkis er mik­il­vægt stjórnarmálefni og því fremur sem sú íhlutun er bersýnilega ólögmæt. Ekki verður séð af því sem skráð er á vef for­sæt­isráðuneyt­is­ins um tvo síðustu ráðherra­fund­ina að þér hafið borið þetta mál upp þar, hvorki á fundi sem hald­inn var 1. þ.m. né á fundi 5. þ.m. Get ég ekki betur séð en að slík van­ræksla gæti varðað refsiábyrgð sam­kvæmt 2. gr. laga um ráðherraábyrgð nr. 4, 1963. Þá gæti sjálf emb­ætt­is­athöfnin hugs­an­lega varðað refsiábyrgð sam­kvæmt 10. gr. lag­anna.

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að þér hafið "upplýst utanríkismálanefnd" (vænt­an­lega um þessa ákvörðun yðar) áður en þér gerðuð hana kunna fyrir heim­inum eða a.m.k. öðrum twittlingum. Þetta atriði er vita­skuld þýðing­ar­laust og dreifir hvorki ábyrgð­inni af þessu til­tæki á herðar ann­arra né leysir það sjálfan yður undan henni. Þó hef ég haft fyrir því að fletta upp í fund­ar­gerðum tveggja funda nefnd­ar­innar, 4. og 6. þm. Ekki er að skilja að þetta mál hafi borið á góma á fundi 4. þ.m. en í fund­ar­gerð um 6. þ.m., sem var eftir til­kynn­ingu yðar, er þess þó getið undir liðnum "Ástandið í Venesúela" að þér hafið komið á fund nefnd­ar­innar, farið yfir málið og svarað spurn­ingum fund­ar­manna.

Að end­ingu skora ég á yður að þér segið nú þegar af yður ráðherra­emb­ætt­inu sem þér hafið svo stórlega mis­farið með og biðjið þing og þjóð afsökunar á þessum afglöpum.

Með vin­semd,
Pétur Guð­geirs­son 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár