Sláturtíð er runnin upp

Vertu því viðbúin að villimað­urinn í þér vakni þegar þú stendur yfir balanum, blóðugur upp að olnbogum og hrærir í blóðmörs­blöndu.

Ein af birtingar­myndum þess að þjóð­félagið allt er á blússandi uppleið er að fólk er hætt að deila með sér ráðum í anda hagsýnna húsmæðra. Þegar kreppan náði hámarki eftir bankahrun kepptust fjöl­miðlar við að birta ráð um ódýra og hefð­bundna elda­mennsku. Nú les enginn slíkt, heldur reiðir fólk fram framandi rétti í eldhúsinu heima, ef það hefur á annað borð tíma til að elda sjálft. Annars fer það bara út að borða. Hefð­bundin matargerð er ekki í tísku og það er kjöt­neysla ekki heldur. En þrátt fyrir allt er slátur­tíðin byrjuð, svo ef þú vilt synda á móti straumnum, vera öðruvísi en allir hinir, er þetta einmitt tíminn fyrir þig til að læra að taka slátur.

  1. Það fyrsta sem þú gerir er að fara út í kjörbúð og kaupa hráefni í tvö slátur, sem gefa þér tíu keppi. Þú færð í einum pakka frosið blóð í fötu, heilan poka af hvítri fitu sem kallast mör, sjálfa vömbina úr lambinu litla til að sníða poka úr, nýru þess, hjarta og sviðinn hausinn. Kauptu líka rúgmjöl og hafra og nokkuð sem heitir slátur­garn. Kannski líka ilmkerti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár