Kallar eftir nýjum anda og meiri samvinnuhugsjón í borgarstjórn

Oddviti Framsóknar­flokksins í Reykjavík segir skýrt ákall eftir ferskum augum inn í borgar­málin „sem vilja ekki taka þátt í þessum leðjuslag“ sem átaka­stjórnmál í borgar­stjórn hafa verið.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar­flokksins í Reykjavík segir ástandið í borgar­stjórn á kjör­tímabilinu sem nú er að ljúka mjög neikvætt og hafi einkennst af átaka­stjórnmálum. Þessu vill Framsóknar­flokkurinn breyta og auka traust almennings til borgar­stjórnar.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju kosn­inga­hlaðvarpi Kjarn­ans, Með orðum odd­vit­anna, þar sem Eyrún Magn­ús­dóttir ræðir við alla odd­vita þeirra ell­efu fram­boða sem bjóða sig fram í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara þann 14. maí næst­kom­andi.

Eðlilegt skref að fara úr fjölmiðli í almannaþjónustu í stjórnmál

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn fékk ein­ungis 3,2 pró­­­­sent atkvæða í síðustu borgar­stjórnar­kosningum og náði ekki inn manni í Reykja­vík. Einar hyggst breyta því og miðað við kannanir mun það ganga eftir,. Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­sonar fær flokkurinn 12,3 prósent fylgi og allt stefnir í að það skili flokknum þeim þremur borg­ar­full­trúum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­ar.

Einar hefur ekki starfað innan Framsóknar­flokksins áður en segir að þegar óskað var eftir kröftum hans í vetur hafi hann ekki getað skorast undan. Þá telur hann að bakgrunnur hans í fjöl­miðlum, þar sem hann hefur mikið fjallað um stjórnmál, meðal annars borgarmál, hafi haft áhrif á ákvörðun hans að leiða lista Fram­sóknar í borginni og að það sé rökrétt að fara frá Ríkis­útvarpinu, fjölmiðli í almanna­þjónustu, í stjórnmál.

„Að fara í stjórnmál fyrir mér er að fara í almanna­þjónustu. Maður er þjónn borgara og kjósenda og mig langar bara að láta gott af mér leiða. Ég fann að mig langaði að breyta og hafa áhrif, og það gerir maður með því að fara í stjórnmál,“ segir Einar.

Ástandið í borgarstjórn neikvætt

Einar segir ákveðna pólariseringu hafa átt sér stað í stjórn­málum, það hafi til að mynda sýnt sig í þjóðar­atkvæða­greiðslunni um Brexit og í forsetatíð Donalds Trump í Banda­ríkjunum. Hann segir ákveðin merki um pólariseringu í íslenskum stjórn­málum.

„Ástandið í borgar­stjórn undan­farin ár hefur verið mjög neikvætt. Það hafa verið þessi átaka­stjórnmál þar sem menn gera ágreining um minnstu mál. Og aðallega stóru málin líka. Það hefur valdið því að traustið á borgar­stjórn [...] er minnst, 21 prósent. Það eru fleiri sem treysta banka­kerfinu heldur en borgar­stjórn og það er ótrúlega undarleg staðreynd,“ segir Einar, og vísar þannig í niður­stöður könnunar Gallup um traust til stofnana frá því í febrúar.

Einar telur stjórn­málamennina bera ábyrgð. „Nú hafa sömu flokkarnir verið þarna við völd mjög lengi, aðallega Samfylkingin, og einhvern veginn hefur það atvikast þannig að það eru bara allir mjög þreyttir á hver öðrum, menn eru búnir að grafa sig svo djúpt ofan í skot­grafirnar að þeir heyra ekki hvað hinn er að segja. Ég held að það sé skýrt ákall eftir ferskum augum þarna inn sem vilja ekki taka þátt í þessum leðjuslag. Það er gott fólk í öllum þessum flokkum en ég held að það þurfi bara aðeins að koma með nýjan anda þarna inn og fara að vinna meira saman.“

Samvinnuhugsjón sem andsvar við pólariseringu

Einar segir að Framsóknar­flokkurinn vilji knýja fram ákveðnar breytingar í borginni. „Og mér finnst mjög mikilvægt að menn taki það alvarlega að vinna þvert á flokka og eiga gott samtal, minni­hluti kemur alltaf inn í samtalið, þannig að meirihlutinn þarf að sýna því skilning á því sem minni­hlutinn er að segja. Ég hef trú á því að samvinnan og samvinnu­hugsjónin, þetta gamla, kannski hallæris­lega hugtak sem sumum finnst, sé andsvarið við pólariseringu, Menn geta kallað þetta eitthvað annað, en þessi hugmynda­fræði, að líta á það sem pólitískt hugrekki að vinna með öðrum frekar en pólitísk hugrekki að slá í andstæðinginn, að það sé eitthvað sem borgar­búar vilja og það sé besta leiðin til að ná árangri.“

Einar telur að Framsóknar­flokkurinn sé eini flokkurinn sem geti í raun og veru fellt sitjandi meirihluta. „Þeir sem vilja breytingar í borginni þeir ættu að kjósa Framsókn vegna þess að við erum í raun­verulegu færi til að hafa áhrif á þennan meirihluta og fella hann. Sjálfstæðis­flokkurinn mun ekki fella þennan meirihluta, það er Framsóknar­flokkurinn sem gerir það.“

En getur Framsókn unnið með hverjum sem er?

„Já í grunninn getum við unnið með öllum, held ég, ef fólk vill vinna með okkur. Við erum lausnar­miðuð, en við náttúru­lega höfnum öllum öfgum. Við viljum leysa mál, við viljum ekki búa til vandamál.“

Í þættinum ræðir hann einnig um skipulags- og samgöngumál þar sem hann segir vera á móti „með og á móti“-spurningum líkt og borgar­línu og þéttingu byggðar.

Einar vill bæði þétta og dreifa „að því leyti að það þarf að ryðja nýtt land og við höfum land sem er búið að byggja á sem tengist þessum samgöngu­sáttmála.“

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér fyrir neð­an:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár