Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Meirihlutinn næði þrettán borgarfulltrúum en Sjálfstæðisflokkur stefnir í verstu útreið sína frá upphafi

Píratar nán­ast tvö­falda fylgi sitt og Framsókn tekur til sín nær allt það fylgi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar frá síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Staða Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata við myndun ýmis konar meiri­hluta virð­ist sterk.

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík ríg­heldur sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Sam­an­lagt fá flokk­arnir fjórir sem hann mynda: Sam­fylk­ing, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn 52,4 pró­sent fylgi og 13 borg­ar­full­trúa, eða einum fleiri en þeir eru nú með. Flokk­arnir fjórir bæta sam­an­lagt við sig sex pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Líkurnar á því að meiri­hlut­inn haldi mæl­ast nú 70 pró­sent, sem er það mesta sem mælst hefur í kosn­inga­spánni fyrir þessar kosn­ingar.

Samhliða kosn­inga­spánni er nú keyrð sæta­spá. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­ar­full­trúum og þar sem sýnd­ar­kosn­ing­arnar eru allar með inn­byggða óvissu þá getur fylgið í hverri ein­stakri sýnd­ar­kosn­ingu stundum hærra og stundum lægra, þótt með­al­tal kosn­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­inga­spánni. Hægt er að sjá sæta­spánna hér að neðan:

Sá flokkur innan meiri­hlut­ans sem bætir mestu við sig frá kosn­ing­unum 2018 eru Píratar. Þeir nán­ast tvö­falda fylgi sitt, fara úr 7,7 í 14,9 pró­sent og myndu fá fjóra borg­ar­full­trúa að óbreyttu. Sam­fylk­ingin er stærsti flokk­ur­inn í borg­inni sam­kvæmt kosn­inga­spánni en 23,1 pró­sent kjós­enda segj­ast ætla að kjósa flokk­inn. Fylgi hans hefur verið afar stöðugt síð­ast­lið­inn mánuð og það myndi skila honum sex borg­ar­full­trúum, eða einum færri en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Viðreisn er á mjög svip­uðum slóðum í fylgi og árið 2018 og mælist með 7,7 pró­sent stuðn­ing. Það myndi skila báðum borg­ar­full­trúum flokks­ins aftur í borg­ar­stjórn. Vinstri græn mæl­ast með meira fylgi en þau fengu síð­ast upp úr kjör­köss­unum en það er samt sem áður ein­ungis 6,7 pró­sent. Fylgið hefur ekki mælst yfir sjö pró­sent síðan um miðjan mars. Það lítur því út fyrir að Líf Magneu­dóttir verði áfram ein í borg­ar­stjórn­ar­flokki flokks­ins.

Fylgið færist frá Sjálfstæðisflokki til Framsóknar

Sá flokkur sem tapar mestu frá síð­ustu kosn­ingum er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Hann mælist nú með 21 pró­sent fylgi sem er 9,8 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk 2018.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki mælst lægra en það gerir nú í kosn­inga­spánni í aðdrag­anda þess­ara kosn­inga en það mæld­ist 25 pró­sent um miðjan síð­asta mánuð. Samkvæmt sæta­spá Kjarnans mun flokk­ur­inn fá fimm borg­ar­full­trúa, sem er þremur færri en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga væri um að ræða lang­verstu nið­ur­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum frá upp­hafi.

Það fylgi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar virð­ist nær allt hafa færst yfir á Fram­sókn­ar­flokk Einars Þor­steins­sonar. Hann bætir við sig mestu fylgi allra flokka frá kosn­ing­unum 2018, þegar Framsókn fékk ein­ungis 3,2 pró­sent atkvæða, þrátt fyrir að hafa ekki einu sinni kynnt stefnu­skrá nú þegar ell­efu dagar eru til kosn­inga. Fylgi Fram­sóknar mælist nú 12,3 pró­sent og allt stefnir í að það skili flokknum þeim þremur borg­ar­full­trúum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn siglir nokkuð lygnan sjó og litlar breyt­ingar hafa verið á fylgi hans í síð­ustu spám, en það mælist nú 6,7 pró­sent. Það er nán­ast sama fylgi og hann fékk 2018 þegar 6,4 pró­sent kjós­enda kaus flokk Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur.

Flokkur fólks­ins virð­ist líka ætla að sigla sínu borg­ar­full­trúa­sæti í höfn en flokk­ur­inn mælist með 5,4 pró­sent fylgi í nýj­ustu spánni.

Mið­flokk­ur­inn mælist nú með meira en tveggja pró­senta fylgi í kosn­inga­spánni síðan um miðjan mars en er enn óra­fjar­lægð frá því að ná manni inn. Því virð­ist allt stefna í að flokk­ur­inn tapi sínu eina borg­ar­stjórn­ar­sæti.

Önnur fram­boð mæl­ast ekki með fylgi.

Margir meirihlutar í spilunum

Ef fram fer sem horfir þá ættu Sam­fylk­ingin og Píratar, sem eru með keim­líkar stefnu­skrár, að vera í lyk­il­að­stöðu við myndun meiri­hluta í höf­uð­borg­inni. Flokk­arnir tveir mæl­ast nú með 38 pró­sent sam­an­lagt fylgi og gætu náð að mynda þriggja flokka meiri­hluta með Framsókn, sem hefði 13 borg­ar­full­trúa og meiri­hluta atkvæða á bak­við sig, höfði það til þeirra.

Þeir gætu líka ákveðið að halda sig við það fjög­urra flokka sam­starf sem er nú í borg­inni, en 70 pró­sent líkur eru á því að hægt verði að mynda þá stjórn aftur. Ef ákveðið yrði að skipta Vinstri grænum út fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands fara lík­urnar niður í 64 pró­sent og ef Viðreisn yrði skipt út fyrir Framsókn fara lík­urnar upp í 92 pró­sent.

Erfitt er að sjá hvaða leið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á í meiri­hluta. Píratar hafa þegar úti­lokað sam­starf við flokk­inn og nokkuð aug­ljóst er að Sam­fylk­ingin mun ekki vinna með honum. Senni­leg­asta leiðin fyrir þennan gamla turn í höf­uð­borg­inni að völdum er í gegnum fjög­urra flokka stjórn með Framsókn, Viðreisn og Flokki fólks­ins. Líkurnar á því að hægt verði að mynda þann meiri­hluta eru, eins og sakir standa, þó ein­ungis 28 pró­sent. Líkurnar á því að Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn geti myndað tveggja flokka meiri­hluta mæl­ast eitt pró­sent.

Lík­urnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Kann­anir í nýj­ustu kosn­inga­spá fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 14. maí:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 14. mars. – 10. apríl (20,5 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósents 13. - 26. apríl (40,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 8. apríl – 2. maí (39,2 pró­sent)

Hvað er kosn­­­inga­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­ar­­legt magn af upp­­lýs­ing­­um. Þessar upp­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­leg­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­lifir stjórn­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­ast svo við að túlka nið­­ur­­stöð­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­anir og allar mög­u­­legar túlk­­anir á nið­­ur­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­ari? Hverri skal treysta bet­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­andi hefur ekki for­­sendur til að meta áreið­an­­leika hverrar könn­un­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár