Einar leiðir lista Framsóknar í Reykjavík – Segir flokkinn „ferskan og öfgalausan valkost“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Reykja­vík hefur kynnt lista sinn fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi frétta­maður, er odd­viti flokks­ins. Framsókn náði ekki inn manni í höf­uð­borg­inni 2018.

Fimm efstu á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Fimm efstu á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Aðsend

Einar Þor­steins­son, fyrrum frétta­maður og stjórn­mála­fræð­ingur, er nýr odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og leiðir lista hans í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fara fram í maí næst­kom­andi. Einar til­kynnti fram­boð sitt í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV síð­ast­lið­inn föstu­dag og hefur nú verið stað­festur í 1. sæti list­ans. Listinn var sam­þykktur á auka kjör­dæma­þingi á Hilton Reykja­vík Nordica nú í kvöld.

Í frétta­til­kynn­ingu er haft eftir Einari að hann finni mik­inn með­byr með Framsókn og að á síð­ustu dögum hafi fjöl­margir gefið kost á sér til þess taka þátt í starf­inu. „Það er greini­legt að borg­ar­búar vilja geta kosið ferskan og öfga­lausan val­kost á miðju stjórn­mál­anna sem vantað hefur und­an­farið kjör­tíma­bil. Framsókn er flokkur fjöl­skyld­unnar og í borg­ar­mál­unum er verk að vinna.“

Árelía Eydís Guð­munds­dóttir, dós­ent við Háskóla Íslands og rit­höf­undur, skipar annað sætið.

Í þriðja sæti er Magnea Gná Jóhanns­dóttir, laga­nemi og í því fjórða er er Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri og vara­þing­maður. Í fimmta sæti er Þor­valdur Dan­í­els­son, stofn­andi Hjóla­krafts og MBA.

Náðu ekki inn fyrir fjórum árum

Einar hefur ekki starfað innan Fram­sókn­ar­flokks­ins áður en eig­in­kona hans, Milla Ósk Magn­ús­dótt­ir, er aðstoð­ar­maður Will­ums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra og þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Einar var for­maður félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Kópa­vogi á árum áður og var sterk­lega orð­aður við fram­boð fyrir þann flokk í Kópa­vogi fyrir skemmstu. Einar og Milla settu hins vegar heim­ili sitt í Kópa­vogi fyrr á þessu ári og eru að flytja í Selja­hverfið í Reykja­vík.

[adspot]Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn reið ekki feitum hesti frá síð­­­ustu borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­um. Hann fékk ein­ungis 3,2 pró­­­sent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykja­vík.

Björgvin Páll Gúst­avs­son, lands­liðs­mark­maður í hand­bolta, greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook snemma í febr­úar að hann myndi sækj­ast eftir 1.-2. sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann nefndi það sér­stak­lega að hann vildi taka taka ábyrgð á því að gæta vel­­ferðar barna og ann­­arra við­­kvæmra hópa í sam­­fé­lag­inu.

Nokkrum dögum áður en að Einar til­kynnti fram­boð sitt hætti Björgvin Páll hins vegar við. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagð­ist hann ein­fald­lega hafa skipt um skoð­un. „Þrátt fyrir að stuðn­ing­ur­inn sé mik­ill innan úr flokkn­um, þá er mik­il­vægt að hafa það í huga að þegar maður er á leið­inni á úti­völl þá þarf maður að hafa allt liðið á bak­við sig. Með þess­ari ákvörðun vil ég hjálpa þeim sem mun leiða flokk­inn í sinni vinnu.“

Hér má sjá list­ann í heild sinni:

  1. Einar Þor­steins­son, f.v. frétta­maður og stjórn­mála­fræð­ingur
  2. Árelía Eydís Guð­munds­dóttir, Dósent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og rit­höf­undur
  3. Magnea Gná Jóhanns­dóttir, M.A. nemi í lög­fræði og for­maður Ung Framsókn í Reykja­vík
  4. Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri og vara­þing­maður
  5. Þor­valdur Dan­í­els­son, fram­kvæmda­stjóri Hjóla­krafts og MBA
  6. Unnur Þöll Bene­dikts­dóttir, öldr­un­ar­fræði­nemi og frum­kvöð­ull
  7. Gísli S. Brynj­ólfs­son, mark­aðs­stjóri
  8. Ásta Björg Björg­vins­dóttir, for­stöðu­maður í félags­mið­stöð og tón­list­ar­kona
  9. Krist­jana Þór­ar­ins­dóttir, sál­fræð­ingur
  10. Lárus Helgi Ólafsson, kenn­ari og hand­bolta­maður
  11. Ásrún Krist­jáns­dóttir, mynd­list­ar­kona og hönn­uður
  12. Tetiana Medko, leik­skóla­kenn­ari
  13. Fanný Gunn­ars­dóttir, náms- og starfs­ráð­gjafi
  14. Jón Eggert Víðisson, teym­is­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg
  15. Berglind Braga­dóttir, kynn­ing­ar­stjóri
  16. Jóhann Skag­fjörð Magn­ús­son, skóla­stjóri
  17. Inga Þyrí Kjart­ans­dóttir, f.v. fram­kvæmda­stjóri
  18. Griselia Gíslason, mat­ráður
  19. Sveinn Rúnar Ein­ars­son, veit­inga­maður
  20. Gísli Jón­atans­son, f.v. kaup­fé­lags­stjóri
  21. Jón Ingi Gíslason, grunn­skóla­kenn­ari
  22. Þórdís Jóna Jak­obs­dóttir, fíkni­ráð­gjafi og mark­þjálfi hjá Hlað­gerð­ar­koti
  23. Ágúst Guð­jóns­son, laga­nemi
  24. Birgitta Birg­is­dóttir, háskóla­nemi
  25. Guðjón Þór Jós­efs­son, laga­nemi
  26. Helena Ólafs­dóttir, knatt­spyrnu­þjálf­ari og þátta­stjórn­andi
  27. Hinrik Bergs, eðl­is­fræð­ingur
  28. Andriy Lifanov, vél­virki
  29. Björn Ívar Björns­son, hag­fræð­ingur
  30. Gerður Hauks­dóttir, skrif­stofu­stjóri
  31. Bragi Ing­ólfs­son, efna­fræð­ingur
  32. Dagbjört S. Hösk­ulds­dóttir, f.v. kaup­maður
  33. Ingvar Andri Magn­ús­son, laga­nemi og fyrrum ólymp­íu­fari ung­menna í golfi
  34. Sandra Ósk­ars­dóttir, grunn­skóla­kenn­ari
  35. Stefán Þór Björns­son, við­skipta­fræð­ingur
  36. Þórdís Arna Bjark­ars­dóttir, lækna­nemi
  37. Ívar Orri Aronsson, stjórn­mála­fræð­ingur
  38. Jóhanna Gunn­ars­dóttir, sjúkra­liði
  39. Þorgeir Ást­valds­son, fjöl­miðla­maður
  40. Halldór Bachman, kynn­ing­ar­stjóri
  41. Sandra Rán Ásgríms­dóttir, verk­fræð­ingur
  42. Lárus Sigurður Lárusson, lög­maður
  43. Níels Árni Lund, f.v. skrif­stofu­stjóri
  44. Ingvar Mar Jónsson, flug­stjóri
  45. Jóna Björg Sætran, f.v. Vara­borg­ar­full­trúi, M.ed. og PCC mark­þjálfi
  46. Sigrún Magn­ús­dóttir, f.v. ráð­herra og borg­ar­full­trúi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár