Valkostir vegarins um Mýrdal „ekki meitlaðir í stein“

Enn kemur til greina að bæta við og breyta þeim valkostum sem Vega­gerðin hefur sett fram á hringveginum um Mýrdal. Yfir 270 manns hafa þegar sent athuga­semdir og hafa flestir áhyggjur af áhrifum á lífríki Dyrhólaóss.

Dyrhólaós fóstrar fjölskrúðugt fuglalíf árið um kring.
Dyr­hólaós fóstrar fjöl­skrúð­ugt fugla­líf árið um kring. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

„Forsaga þessa verkefnis er orðin ansi löng og spannar líklega einhverja áratugi,“ sagði Þorbjörg Sævars­dóttir, verk­fræðingur á hönnunar­deild Vega­gerðarinnar, á íbúafundi í dag þar sem fyrir­hugaðar vega­framkvæmdir í Mýrdalnum voru kynntar. Fundinum var streymt og voru um 90 manns að horfa þegar mest lét. Á fundi Land­verndar um málið í síðustu viku var einnig fjölmennt, um 200 manns, og því augljóst að margir hafa áhuga og skoðun á vega­málunum í Mýrdals­hreppi.

Vega­gerðin kynnti nýverið í drög að tillögu að mats­áætlun um hringveginn um Mýrdal þar sem fjórir valkostir voru kynntir til sögunnar. Flestir þeirra liggja sunnar en núverandi vegur og meðfram eða yfir Dyrhólaós, um jarðgöng í gegnum Reynis­fjall og þaðan meðfram Víkur­fjöru að núverandi þjóðvegi austan byggðarinnar í Vík.

Margir óttast hins vegar umhverfis­áhrifin og af þeim 270 athuga­semdum sem þegar hafa borist um drögin er það lífríkið í og við Dyrhólaós sem flestir óttast að spillist með vega­framkvæmdunum. Þá hafa einnig margir lýst áhyggjum af áhrifum vegarins á upplifun ferða­manna af fjörunum, að því er Erla Björg Aðal­steins­dóttir, umhverfis- og auðlinda­fræðingur hjá VSÓ ráðgjöf, sagði á fundinum í dag. Dyrhólaós er á náttúru­minjaskrá.

Ýmsar útfærslur á veglínunni um svæðið hafa verið í umræðunni síðustu ár og áratugi. Veglínan meðfram sjónum hefur verið á aðal­skipulagi Mýrdals­hrepps frá árinu 2013. Í samgöngu­áætlun, sem samþykkt var á síðasta ári, er gert ráð fyrir fjármagni til að undirbúa verkefnið en ekki er búið að fjármagna það eða framkvæmdina sem slíka, benti Þorbjörg á.

Vega­gerðin hefur ákveðið að vinna að forhönnun framkvæmdarinnar samhliða mati á umhverfis­áhrifum. Sú hönnun byggir á frum­drögum Vega­gerðarinnar frá árinu 2008 og gildandi aðal­skipulagi sveitar­félagsins. „Það er alveg ljóst að umfang þessarar framkvæmdar er þannig að hún er háð lögum um mat á umhverfis­áhrifum,“ sagði Þorbjörg.

Óvenjulegt svæði sem hefur hátt verndargildi

Náttúra og landslag í Mýrdal er óvenjulegt fyrir marga hluta sakir og í umsögn Umhverfis­stofnunar um drög að aðal­skipulagi Mýrdals­hrepps á sínum tíma kom fram að leggja ætti áherslu á að vernda Dyrhólaey, Dyrhólaós, fjörur við Dyrhólaey, þar með talið Reynis­fjöru, og votlendi norðan við Dyrhólaós sem eina heild, enda um að ræða svæði sem er mikilvægt fyrir fuglalíf og njóti auk þess vinsælda meðal ferða­manna. „Stofnunin telur að veglagning yfir Dyrhólaós muni rýra verndar­gildi svæðisins og hafa í för með sér neikvæð sjónræn áhrif og áhrif á landslag,“ sagði í umsögninni. Umhverfis­stofnun sagðist ekki mótfallin lagfæringum á hringveginum um Mýrdal en taldi að skoða yrði „mun betur hvort ekki megi bæta samgöngur með viðunandi hætti með lagfæringum á núverandi vegi“.

Náttúru­öflin hafa mótað lands­lagið í fortíð og nútíð og hvergi á landinu hefur landbrot verið jafn mikið og framan við Víkur­fjöru en um hana mun nýr vegur liggja verði sjávar­leiðin fyrir valinu. Fram að Kötlugosi árið 1918 braut mikið úr fjörunni en eftir það gekk fjaran fram um allt að 400 metra. Um árið 1970 fór hún hins vegar að ganga til baka og er nú á svipuðum stað og hún var þegar Katla gaus 1918. Gríðarlegt sjávar­flóð og landbrot átti sér svo stað 9. janúar 1990 þegar mesta aftaka brim í heila öld gerði við suður­ströndina.

Til þessara þátta þarf að taka tillit í hönnun vegarins sem og umhverfis­matinu. Reisa þyrfti varnar­garða meðfram veginum í Víkur­fjöru og einnig þarf að meta aðra náttúruvá, svo sem Kötlugos.

Drög að tillögu að mats­áætlun er fyrsta skrefið í umhverfis­mats­ferlinu og eitt af þeim stigum sem almenningur getur átt aðkomu að. Vega­gerðin og VSÓ ráðgjöf, sem er stofnuninni innan handar við umhverfis­matið, hafa opnað vefsjá þar sem öll gögn um hina fyrir­huguðu framkvæmd verða birt jafnóðum og þau liggja fyrir. Þar er einnig hægt að senda inn athuga­semdir og ábendingar og hafa vel á þriðja hundrað slíkar borist nú þegar.

Í tillögu­drögum Vega­gerðarinnar segir að núverandi vegur um Gatnabrún fari hæst í 119 metra hæð. Á honum eru krappar beygjur og halli vegarins er 10-12 prósent á kafla. Þar getur auk þess verið misvinda­samt og hált. Markmið framkvæmdarinnar eru nokkur, m.a. að fá greið­færan veg allan ársins hring, að bæta umferðar­öryggi, fækka bröttum brekkum og kröppum beygjum og sömuleiðis fækka vegtengingum.

Vega­gerðin hefur ekki tekið afstöðu til hvaða kostur verður fyrir valinu heldur er einmitt ferlinu framundan ætlað að vega og meta þá valkosti sem til greina koma. Einn þeirra er lagfæring á núverandi vegi og að færa hann að hluta norður fyrir þéttbýlið í Vík.

Spurð hvaða veglínu Vega­gerðin vildi sagði Þorbjörg að núna væri verið að „vinna með skipulags­línuna frá Mýrdals­hreppi“ en að hægt væri „að skoða allt“ á þessu stigi málsins. „Það er ekki meitlað í stein að það séu nákvæmlega þessir fjórir valkostir sem fara í tillöguna [að mats­áætlun]. Við getum bætt við valkostum eða breytt ennþá.“ Þess vegna er viðmiðunar­svæði fyrir rann­sóknir haft mjög rúmt svo að svigrúm sé til að hnika til veglínunni ef niður­staða umhverfis­matsins gefur tilefni til.

Aðal­valkosturinn er sá kostur sem Vega­gerðin mun sækja um framkvæmda­leyfi fyrir, segir Þorbjörg. Hann er valinn út frá ýmsum þáttum, s.s. kröfum um vegtækni, stefnu­mörkun samgöngu­áætlunar, kostnaði og umhverfis- og samfélags­sjónarmiðum.

Drög að tillögu að mats­áætlun hringvegarins um Mýrdal voru auglýst í lok desember og rennur athugasemda­frestur út þann 1. febrúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár