Vegagerðin setur göng í gegnum Reynisfjall og veg á bökkum Dyrhólaóss á dagskrá

Óstöðug fjaran við Vík kallar á byggingu varnar­garðs ef af áformum Vega­gerðarinnar um færslu hring­veg­arins verður. Hinn nýi láglendis­vegur myndi liggja í næsta nágrenni svæða sem njóta verndar vegna jarðminja og lífríkis.

Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.
Yfir­lits­mynd af fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði. Mynd: Úr drögum að tillögu að matsáætlun

Vega­gerðin áformar að færa hringveginn um Mýrdal þannig að hann liggi á bökkum Dyrhólaóss og í gegnum Reynis­fjall í jarð­göngum í stað þess að hann liggi um Gatnabrún og þéttbýlið í Vík. Austan Reynis­fjalls er fjaran óstöðug og því þyrfti að reisa varnar­garð meðfram veginum í Víkur­fjöru.

Ráðgert er að framkvæmdir hefjist síðla árs 2022 og taki um þrjú ár.

Í drögum að tillögu að mats­áætlun framkvæmdarinnar, sem nú hefur verið auglýst, kemur fram að með færslunni yrði vegurinn greiðfær láglendis­vegur. Eina fjall­veginum á leiðinni frá Hellis­heiði til Reyðar­fjarðar yrði þar með útrýmt með tilheyrandi bótum á umferðar­öryggi. Umferð á hringveginum um Mýrdal hefur meira en fimm­faldast frá árinu 2013 sem á sér skýringar í aukinni ferða­mennsku.

Nýi vegurinn myndi liggja við og að hluta yfir svæði sem njóta verndar. Á þessum slóðum er að finna einstakar jarð­minjar og sérlega fjölskrúðugt fuglalíf. Þá hefur sjaldgæft dýr í íslenskri náttúru, brekku­bobbinn, búið þar um sig.

Hugmyndir um tilfærslu vegarins ofan af fjallinu og nær sjónum eru langt í frá nýjar af nálinni. Í tuttugu ára gamalli jarðganga­áætlun Vega­gerðarinnar segir að á hringveginum á Suðurlands­undirlendi sé Reynis­fjall „eina verulega misfellan“. Snjór sé þar „stundum til trafala“ og leiðin upp á fjallið að vestan­verðu brött. „Oft hefur komið til tals að einfaldast sé að fara í gegnum fjallið í tiltölu­lega stuttum göngum. Eðlilegast væri þá að færa veginn í Mýrdalnum töluvert sunnar og fara í gegnum fjallið til móts við Vík og svo áfram með veginn sjávarmegin byggðarinnar.“

Samkvæmt skýrslu Vega­gerðarinnar um hættulegar beygjur á þjóðvegi 1 frá árinu 2002 var beygjan í Gatnabrún, þar sem núverandi hringvegur liggur upp á Reynis­fjall, ein af sex hættulegustu beygjum á hringveginum á þeim tíma og þar flokkuð sem „stór­hættuleg“. Þar varð banaslys árið 2016.

Gert er ráð fyrir hinni nýju veglínu og jarð­göngum í Reynis­fjalli á aðal­skipulagi Mýrdals­hrepps. Í Samgöngu­áætlun til ársins 2024 er gert ráð fyrir fjármagni í undir­búning vega­gerðarinnar og í henni er tekið fram að leitað verði leiða til að fjármagna framkvæmdirnar í samstarfi við einka­aðila.

Umfang framkvæmdarinnar er slíkt að hún er háð lögum um mat á umhverfis­áhrifum. Nýlega birt drög að tillögu að mats­áætlun, sem hér eru til umfjöllunar, eru fyrsta skrefið í því ferli.

Fjórir valkostir kynntir

Í skýrslu Vega­gerðarinnar, sem VSÓ ráðgjöf vinnur, er fjallað um fjóra valkosti, auk óbreytts vegar, þ.e. núllkosts. Í þremur þeirra er um flutning vegarins að ræða niður að sjó en einn felur í sér lagfæringar á núverandi veglínu.

Samkvæmt valkosti 1, sem framkvæmda­lýsing tillög­unnar miðast við, myndi nýr vegur liggja sunnan Geita­fjalls að vestan­verðu, meðfram Dyrhólaósi og í göngum sunnarlega um Reynis­fjall. Austan Reynis­fjalls færi hann með fram sjó og myndi sameinast núverandi vegi í Vík. Jarð­göngin yrðu 1,3-1,5 kílómetri að lengd og gert er ráð fyrir einni akrein í hvora átt.

Miklar öldur eru við Vík og fjaran ekki stöðug. Byggðir hafa verið tveir svokallaðir sand­fangarar í Víkur­fjöru til að hefta landbrot. Vega­gerðin segir í skýrslu sinni að þörf verði á varnar­garði með fram veginum austan Reynis­fjalls þar sem hann myndi liggja í Víkur­fjöru. Rannsókn er hafin á stöðug­leika strandarinnar og er gert ráð fyrir að hún standi í þrjú ár.

Í flestum þeim valkostum sem Vega­gerðin leggur fram liggur nýr vegur í Vík milli þétt­býlisins og Víkur­fjöru og „mun mögulega skerða aðgengi íbúa og ferða­manna á svæðinu að fjörunni,“ segir í skýrslu Vega­gerðarinnar. Í hönnun vegar er gert ráð fyrir undir­göngum og áningar­stað við Víkur­fjöru.

Vegurinn yrði almennt mjög sýnilegur

Landslag í Mýrdalnum er sérstætt og í mats­skýrslu­drögunum kemur fram að það hafi bæði gildi fyrir ferða­þjónustu sem og íbúa svæðisins. Þar segir einnig að búast megi við að nýji vegurinn verði almennt mjög sýnilegur þar sem hann mun liggja um opið landslag.

Í Dyrhóla­hverfi og Reynis­hverfi er land­notkun helst skilgreind sem landbúnaðar­svæði í aðal­skipulagi Mýrdals­hrepps. Þar fara valkostir nýs vegar að stórum hluta um bújarðir í einkaeigu og einnig að hluta um svæði á náttúru­minjaskrá.

Allur Mýrdals­hreppur, og þar með allt framkvæmda­svæðið, er innan Kötlu jarðvangs (Geopark). Hlutverk jarðvanga UNESCO er að stuðla að verndun mikil­vægra jarðminja, náttúru og menningar­arfleifð og að íbúar jarð­vanganna tileinki sér ábyrgð á ofantöldu auk þess sem áhersla er lögð á að efla innra hagkerfi viðkomandi svæða.

Á þessum slóðum eru þekkt náttúru­undur sem mörg hver njóta verndar, m.a. vegna sérstæðra jarð­myndana. Loftsala­hellir, Reynis­drangar og Reynis­fjall eru innan sama svæðisins á náttúru­minjaskrá. Í nágrenni fyrir­hugaðrar framkvæmdar eru auk þess svæði sem njóta verndar vegna fuglalífs og annars lífríkis:

  • Dyrhólaey er friðlýst sem friðland vegna fuglalífs og náttúru­fegurðar. Umferð um svæðið er stjórnað til að draga úr áhrifum á varp.
  • Dyrhólaós er á náttúru­minjaskrá vegna sjávar­leirna með sérstæðum lífs­skilyrðum. Ósar eru mikil­vægir fæðuöflunar­staðir vaðfugla en þar finnast gjarnan leirur sem eru orku­uppspretta fyrir fuglalíf.
  • Austur af Vík eru Víkur­hamrar. Þar er mikil fýlabyggð og telst svæðið vera alþjóð­lega mikilvæg sjófugla­byggð.
  • Í hlíðum Reynis­fjalls, Víkur­megin, er hvanna­stóð sem er á náttúru­verndar­áætlun sem búsvæði brekku­bobba, sjaldgæfrar snigla­tegundar hér á landi.

Í drögum Vega­gerðarinnar að mats­áætlun framkvæmdarinnar segir að hún kunni að hafa áhrif á búsvæði og fæðuöflunar­svæðum fugla auk óbeinna áhrifa á nærumhverfi. Unnin verður úttekt á fuglalífi og gerð grein fyrir niður­stöðum þeirrar rann­sóknar á síðari stigum umhverfis­mats­ferlisins, þ.e. í frummats­skýrslu.

Jóhann Óli Hilmarsson vann skýrslu um fugla­lífið við Dyrhólaós árið 2013 og benti sú rannsókn til að vegstæði með bökkum Dyrhólaóss gæti haft varanleg og skaðleg áhrif á fuglalíf við ósinn. „Margir fuglar nota túnin og mýrarnar kringum ósinn til fæðu­öflunar og sækja svo á ósinn til hvíldar eða flýja þangað, ef þeir verða fyrir styggð. Í frétt á heimasíðu Fugla­verndar er bent á að skýrslu Jóhanns Óla sé „því miður ekki getið“ í drögum Vega­gerðarinnar.

Opnuð hefur verið vefsjá þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar sem tengjast umhverfis­matinu og koma á framfæri ábendingum og athuga­semdum. Einnig má senda skriflegar athuga­semdir eða ábendingar um drög að tillögu að mats­áætlun á netfangið erla@vso.is. Frestur til að senda inn ábendingar er til og með 1. febrúar.

Landvernd í samvinnu við Náttúru­verndar­samtök Suður­lands (NSS) og heimamenn í Mýrdals­hreppi, efna til fræðslu­fundar um áformaðar vega­framkvæmdir hringvegar í Mýrdal í dag, föstudag. Fundurinn fer fram á netinu og hefst klukkan 11.45.

Meðal þeirra sem taka til máls eru Tryggvi Felixson formaður Land­verndar og Þorbjörg Sævars­dóttir, verk­fræðingur hjá Vega­gerðinni.

Hér er hægt að skoða viðburðinn á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár