Fólk orðið fyrir skítkasti og einelti og legið hefur við slagsmálum

Deilur um hringveginn í Mýrdal hafa orðið svo heitar að fólk hefur flutt í burtu. Vega­gerðin áformar að færa veginn meðfram sjónum og í jarðgöng en „gatinu í gegnum Reynis­fjall“ var að sögn íbúa þröngvað í gegn með „pólitísku handafli“.

Vík í Mýrdal.
Vík í Mýrdal. Mynd: Af Wikipedia

„Þið trúið því ekki hversu margir hafa sent mér skilaboð um að þeir séu á sama máli og ég en vilji ekki segja sína skoðun opinber­lega því að þau séu hrædd við það og vilji ekki eiga á hættu að vera útskúfað.“

Þetta sagði Vigdís Eva Steinþórs­dóttir, fulltrúi Samtaka íbúa og hagsmuna­aðila í Mýrdal, á fundi Land­verndar í dag þar sem fjallað var um áformaða færslu á hringveginum um Mýrdal. Um 200 manns horfðu á beint streymi af fundinum og upptöku af honum má nálgast hér.

Vigdís er í hópi þeirra sem vilja bæta og færa til núverandi veg um Gatnabrún norðan Reynis­fjalls í stað þess að leggja nýjan veg við eða yfir Dyrhólaós og gera jarðgöng í gegnum Reynis­fjall – um svæði sem Vigdís segir einstak­lega fallegt og náttúru­perlu í heild sinni. Framkvæmdirnar myndu því fela í sér „mjög mikinn fórnar­kostnað“.

Vega­gerðin hefur auglýst drög að tillögu að mats­áætlun um færslu hringvegarins í Mýrdal. Í tillög­unni eru taldir upp fjórir kostir sem eru til skoðunar. Þrír þeirra felast í færslu vegarins að sjónum en einn í uppbyggingu í núverandi vegstæði með tilfærslu að hluta. Veglína meðfram sjónum er þegar á aðal­skipulagi Mýrdals­hrepps og á samgöngu­áætlun sem samþykkt var á Alþingi í haust.

„Ég var komin með leið á að heyra talað um þessi göng eins og það væri þegar staðfest að það ætti að verða af þeim,“ sagði Vigdís, sem er uppalin í Mýrdalnum. Þess vegna tók hún sig til fyrr í mánuðinum og skrifaði færslu inn í Facebook-hóp íbúa í þeirri von að koma af stað umræðu. Það gekk eftir og Vigdís segir það hafa glatt sig að finna hversu margir væru á sama máli og hún.

Gangaleiðin hefur tekið völdin

„Umræðan um veglínuna hefur verið frekar einsleit – jafnvel má segja að það hafi engin umræða verið undan­farið,“ sagði Vigdís. „Búið er að drepa niður allt tal í samfélaginu um að laga núverandi veglínu. Það er búið að þagga niður í þeim hópi þannig að ganga­leiðin hefur tekið völdin.“ Hún segir að fólk sem hafi lýst þeirri skoðun sinni að vilja ekki göng hafi orðið fyrir skítkasti og jafnvel einelti „og svo eru dæmi um það að fólk hafi flutt frá svæðinu og að ástæðuna megi rekja til þessa máls“.

Í samtölum við fólk síðustu daga hefur hún komist að því að legið hafi við slags­málum milli fólks áður fyrr er þessi mál bar á góma. „Ég vona að allir séu búnir að læra af þessu svo að fólk geti stigið fram með sínar skoðanir án einhvers ótta.“

Margt sérkennilegt kom að hennar sögn upp á yfir­borðið er hún fór að grúska í vega­málunum í gegnum tíðina „og ég hef komist að því að það hefur ekki verið farið vel með þetta mál“.

Nefndi hún að árið 2010, þegar vinna við nýtt aðal­skipulag Mýrdals­hrepps var í gangi, hafi umhverfis­ráðherra hafnað veglínu með sjónum. Það hafi hins vegar ekki stoppað sveitar­stjórnina, ekki frekar en allar þær neikvæðu umsagnir um málið sem bárust, m.a. frá Umhverfis­stofnun, Skipulags­stofnun og Vega­gerðinni.

Umhverfisstofnun lagðist gegn veglínunni

Árið 2013 halda svo skrítnir hlutir áfram að gerast að mati Vigdísar. Tillaga að veglagningunni er aftur komin á borð umhverfis­ráðherra og sá sem embættinu gegndi þá gaf grænt ljós, mörgum til mikillar undrunar. Þar með hafi verið gengið þvert á umsagnir helstu stofnana. Umhverfis­stofnun hafi til að mynda vikið sérstak­lega að sérstöðu Dyrhólaóss í sinni umsögn um aðal­skipulags­tillöguna og sagt að svæðið hefði mikið verndar­gildi og lagðist stofnunin gegn veglínunni með sjónum. Í umsögn Vega­gerðarinnar var m.a. vitnað í umsögn Umhverfis­stofnunar en einnig bent á að ekki væri nægjanlega rúmt og öruggt svæði fyrir vegagerð í Víkur­fjöru.

Skipulags­stofnun bárust á þessum tíma tugir athugasemda við aðal­skipulags­tillöguna og sagði að af þeim mætti ráða að ekki hafi verið fjallað á opinskáan og samanburðar­hæfan hátt um aðra möguleika á legu hringvegar, þar með talið á endur­bætur á núverandi leið.

Veglínan var sett inn á aðal­skipulag þegar það var samþykkt árið 2013.

Fjármagn var að sögn Vigdísar tryggt fyrir endur­bótum á núverandi leið en enn og aftur gerist undarlegir hlutir því árið 2015 fari sveitar­stjórn Mýrdals­hrepps „í baráttu“ gegn þeim áformum. Hún hafi fengið þingmenn Suður­lands með sér í lið sem hafi sent innan­ríkis­ráðherra bréf þar sem sagði m.a. að meirihluti heima­manna væri á móti endur­bótum á veginum. Þetta segir Vigdís ekki rétt þar sem vilji heima­manna hafi aldrei verið kannaður. Hið rétta sé að meirihluti sveitar­stjórnar hafi lagst gegn áformum um endur­bætur.

Miklar fórnir

„Út frá þessu öllu fæ ég þá niður­stöðu að helsti kostur við göng og sjávar­leiðina er að taka brekkurnar,“ sagði Vigdís. „En viljum við fórna þessu öllu fyrir þriggja kílómetra styttingu og að losna við brekku sem mér skilst að sé hægt að koma í um sex prósent halla?“

Nú er að mati Vigdísar þörf á því að hugsa til framtíðar. Bættra samgangna sé þörf – um það séu allir sammála. „En það er árið 2021. Við ættum að vera búin að læra að lifa í sátt og samlyndi við náttúruna. Og við ættum að minna okkur á að hagsmunir nátt­úrunnar eru hagsmunir mann­fólksins og því ættum við að geta fundið betri lausnir.“

Vigdís hvetur fólk til að segja sína skoðun á málinu. „Ég veit að það getur verið óþægilegt að gera það opinber­lega en stundum þarf maður bara að gera eitthvað sem manni finnst óþægilegt til að tala fyrir því sem maður trúir á.“

Þorbjörg Sævars­dóttir, verk­fræðingur hjá Vega­gerðinni, sagði í sínu erindi á fundinum að þegar valkostir vegarins væru skoðaðir væri gott að hafa í huga hver markmið framkvæmdarinnar væru: Að til staðar væri greiðfær vegur fyrir alla umferð allan ársins hring og að umferðar­öryggi yrði bætt. Benti hún á að umferð um hringveginn á þessum slóðum hefði aukist mikið síðustu ár og ætti eftir að aukast ennfrekar heldur en hitt. Enn ætti eftir að útfæra alla valkosti og yrði forhönnun framkvæmdarinnar unnin samhliða umhverfis­mats­ferlinu sem nú væri farið í gang. Hún sagði Vega­gerðina fagna öllum ábendingum og umræðum og í vinnunni framundan yrði haft að leiðar­ljósi að aðal­valkosturinn yrði vel útfærður vega­tæknilega séð, að hann félli að stefnu­mörkun sveitar­félagsins og samgöngu­áætlun en yrði einnig valinn út frá umhverfis- og samfélags­sjónarmiðum.

Fundar­menn beindu fjölmörgum spurningum til Þorbjargar og í einni var bent á að vegurinn um Reynis­fjall væri í sömu hæð og vegurinn í gegnum Kóra­hverfið í Kópavogi og hvað gæti þá réttlætt að fara í stóra framkvæmd á þessum slóðum á meðan mun alvarlegri takmarkanir væru á samgöngum víða annars staðar.

Þorbjörg benti á að í næstu skrefum umhverfis­matsins og forhönnunar framkvæmdarinnar yrði farið yfir veður­farið á svæðinu og ólíkir valkostir bornir saman með það í huga. „Auðvitað ætlum við að vinna þetta eins vel og við getum. Ætlum í ítarlegt mat á umhverfis­áhrifum.“ Í því ferli kæmi til greina að bæta við einhverjum valkostum. „En við leggjum ekki fram valkost nema að hann sé fýsilegur.“ Einn þeirra valkosta sem Vega­gerðin hefur sett fram fer þvert yfir Dyrhólaós í stað þess að liggja á bökkum hans líkt og lagt er til í tveimur öðrum valkostum. „Vegtæknilega séð er sú lína ansi góð,“ sagði Þorbjörg. Spurð hvort farið yrði yfir ósinn á brú sagði hún það líklegt til að halda vatns­streymi inn á svæðið.

40-50 ára gömul tillaga

Guðni Einarsson, sem einnig er í Íbúa og hagsmuna­samtökum í Mýrdal, sagði vegamálin í sveitinni sinni hafa verið sér hjartleikin til margra ára. Hann er bóndi og land­eigandi í Þóris­holti og á því beina aðkomu að málinu.

„Hér ræðum við um 40 til 50 ára gamlar hugmyndir sem voru raunhæfar á þeim tíma en eru það svo sannarlega ekki í dag,“ sagði Guðni á fundi Landvernar. „Um er að ræða umdeilda framkvæmd sem valdið hefur miklum deilum í Mýrdal.“ Sagði hann ákveðinn hóp manna, sem berjist fyrir jarðganga­leiðinni, engu skeyta um náttúru­perlurnar sem yrði fórnað undir nýja veginn.

„Og hver er svo þessi hræðilegi fjall­vegur um Reynis­fjall?“ spurði Guðni og benti svo á að í fyrsta lagi lægi hann ekki yfir Reynis­fjall, eins og oft heyrðist í umræðunni, heldur fyrir fjallið. Ekki væri svo um raun­verulegan fjallveg að ræða þar sem hæsti punktur hans væri aðeins í 120 metrum yfir sjávar­máli. Með því að gera endur­bætur á Gatnabrún og út úr þorpinu eins og fram kæmi í valkosti fjögur,, mætti ná fram öllum forsendum um greið­færan láglendisveg.

Guðni líkt og Vigdís benti á að þegar veglínan „með gati í gegnum Reynis­fjall“ hafi verið sett á aðal­skipulag hafi henni verið „þröngvað í gegn með pólitísku handafli“ – gegn því sem Umhverfis­stofnun og Vega­gerðin höfðu ráðlagt. Það hafi einnig gengið gegn hagsmunum land­eigenda og fjölda íbúa.

„Því fögnum við því að gert verði faglegt mat á umhverfis­áhrifum þessarar veglínu saman­borið við valkost fjögur,“ sagði Guðni og bætti við: „En jafnframt að fagleg niður­staða verði virt.“

Fornaldarhugsunarháttur

Guðni sagði að í því ástandi sem ríkti í efnahags­málum í dag ætti það ekki að hafa farið framhjá neinum að Mýrdælingar byggi afkomu sína á ferða­mönnum sem komi þangað til að skoða sig um í fagurri og síbreytilegri náttúru. „Það lýsir mikilli skammsýni og fornaldar­hugsunar­hætti að heimamenn vilji skaða okkar helstu mjólkurkú, sem eru náttúru­perlur okkar Mýrdælinga.“

Um tíu milljarða króna einka­framkvæmd yrði að ræða með fylgjandi gjaldtöku næstu þrjá til fjóra áratugina – framkvæmd sem myndi hafa grafal­varleg og óafturkræf umhverfis­áhrif. „Ég spyr því: Höfum við leyfi til að fara svona með okkar fallega Mýrdal? Ég segi nei. Við verðum að láta í okkur heyra til að koma í veg fyrir þetta stórslys.“

Tryggvi Felixson, formaður stjórnar Land­verndar, sagði að sú ákvörðun sem nú lægi fyrir um hringveginn um Mýrdal væri fyrst og fremst pólitísk, ekki fagleg. Vega­gerðin hafi sjálf árið 2008 sagt að ekki væri skynsamlegt að færa veginn að sjónum.

Ferlið væri komið af stað en enn væri um áform að ræða – engin endanleg ákvörðun um framkvæmd hefði verið tekin. Að mati Land­verndar ætti aðal­kosturinn hjá Vega­gerðinni að vera að endurbæta núverandi veg og færa. Hvað nauðsyn framkvæmdarinnar varðar, að teknu tilliti til náttúru­verndar­laga, segir mikilvægt að greina mun betur þann farar­tálma sem vegurinn er sagður vera og slysa­tíðni á honum.

„Við erum að leggja upp í vegferð sem getur verið bæði löng og ströng. En við verðum að taka því, því okkar hlutverk er að tala fyrir náttúru­verðmætum og umhverfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár