Hælisleitendur lenda „milli steins og sleggju“ án atvinnuréttinda og framfærslufjár

Ný reglugerð dómsmála­ráðherra felur í sér að hælis­leitendur, sem almennt hafa ekki atvinnu­réttindi hérlendis, eru sviptir réttinum til framfærslu­fjár frá hinu opinbera. Rauði krossinn telur breyt­ing­arnar mjög íþyngjandi fyrir fólk sem sækir um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Rauði krossinn á Íslandi telur að ný reglugerð Sigríðar Á. Andersen dómsmála­ráðherra um réttindi hælis­leitenda muni hafa verulega neikvæð áhrif á stöðu þeirra hérlendis. Hælis­leitendur hafi almennt ekki atvinnu­réttindi á Íslandi og því sé verulega íþyngjandi fyrir þá að vera sviptir réttinum til framfærslu­fjár meðan þeir bíða brott­vísunar í kjölfar ákvörðunar stjórn­valda um synjun hælis­umsóknar. Biðin taki oft vikur eða mánuði og hælis­leitendur lendi þá milli steins og sleggju.

„Skilaboð stjórn­valda sem virðast eiga að komast til skila með þessari skerðingu eru óljós en áhrifin verða að öllum líkindum mjög neikvæð fyrir þá sem í hlut eiga, þ.e. umsækjendur um alþjóð­lega vernd,“ segir Brynhildur Bolla­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Rauða krossins, í samtali við Stundina.

Eins og Stundin greindi frá fyrr í dag felur reglu­gerðin meðal annars í sér að útlendingar eru sviptir réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Komi hælis­leitandi frá ríki sem er á lista yfir örugg uppruna­ríki og umsókn er metin „bersýni­lega tilhæfu­laus“ getur Útlendinga­stofnun jafnframt fellt niður alla þjónustu við viðkomandi eftir að framkvæmdarhæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. 

Bryn­hildur Bolla­dóttirupp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins á Íslandi.

Brynhildur segir mjög íþyngjandi fyrir einstaklinga að dregið sé úr fram­færslufé þeirra.

„Umsækjendur um alþjóð­lega vernd hafa almennt ekki atvinnu­réttindi svo þeir geta ekki aflað sér fjár, það gefur auga leið að að þannig er erfitt að lifa og það er óljóst hversu lengi fólk þarf að gera það,“ segir hún.

„Eftir að fólk fær synjun þá þarf það að bíða eftir að stoðdeild ríkis­lögreglu­stjóra framkvæmi flutning og tíminn sem það tekur hefur verið að hlaupa á vikum og jafnvel mánuðum. Fólk getur ekki komið sér sjálft úr landi vegna peninga­leysis eða brott­vísunar og endurkomu­banns. Það má því segja að það sé í raun fast milli steins og sleggju.“

Pólitísk ábyrgð stjórn­ar­meiri­hlut­ansSigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra starfar og und­ir­ritar reglu­gerðir í umboði stjórn­ar­meiri­hlut­ans á Alþingi. Meiri­hlut­inn sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokknum, Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár