Opið fyrir samninga fram að fyrstu sprengju

Utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna segir það vilja sinn að leysa úr spennunni á Kóreu­skaga með friðsælum hætti.

Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, stendur í ströngu þessi misserin, en hann hefur opinber­lega deilt við Donald Trump Bandaríkja­forseta um spennuna á Kóreu­skaga. Hann segir að Bandaríkja­forseti hafi þó samnings­vilja alveg þar til fyrstu sprengjunni hefur verið varpað.

Í viðtali við CNN segir Tillerson að hann muni reyna til þrautar að semja, og vinna að friðsamlegri lausn en eins og kunnugt er þá hefur Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, ítrekað hótað Banda­ríkjunum og banda­mönnum því að láta sprengjur falla á „óvinina“. Sérstak­lega hefur ógnin verið mikil í Japan og Suður-Kóreu, en í tilrauna­skotum hersins í Norður-Kóreu hafa flaugar ítrekað flogið yfir japanskt yfirráða­svæði.

Trump hefur opinber­lega gagnrýnt Tillerson og sagt að Kim Jong Un muni ekki hlusta og það sé tilgangs­laust að reyna að semja við hann.

Svo virðist sem einstök ríki Banda­ríkjanna séu mörg hver farin að búa sig undir að stríðs­átök geti brotist út, og árás gerð á Banda­ríkin með lang­drægum flaugum.

Í tíma­ritinu Foreign Policy var fjallað um það í september síðastliðnum, að í Kaliforníu, fjölmennasta ríki Banda­ríkjanna með 38 milljónir íbúa, væru yfirvöld að taka kjarnorku­ógnina alvarlega.

Er meðal annars vísað til skýrslu og leið­beininga sem hafa verið gefin út um hvernig skuli bregðast við, ef til kjarnorku­árásar komi. Var þessar upplýsingar sendar til ýmissa opinberra stofnanna í Kaliforníu í ágúst síðastliðnum, að því er fram kemur í umfjöllun Foreign Policy.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár