Öll styðja borgarlínu en „galdrarnir og töfrarnir“ felast í málamiðlun

Menningar­stríð, eðlis­fræði og „gena­samsetning“ Reyk­víkinga er meðal þess sem borgar­fulltrúar tókust á um í Silfrinu. Hætt er við að borgar­línu og einkabíl sé stillt upp sem andstæðum pólum en lausnar­orðin eru valfrelsi og mála­miðlanir.

Heit umræða skapaðist um skipulagsmál í Reykja­víkurborg í Silfrinu á RÚV í morgun en þar voru mættir fjórir borgar­fulltrúar til að ræða borgar­málin. Áherslan var m.a. á þéttingu byggðar og samgöngumál. Orð á borð við „menningar­stríð“ voru notuð, sér í lagi í tengslum við borgar­línuna. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokks, sagði strætó­kerfið hafa verið látið „drabbast niður“ á kjör­tímabilinu. Hann væri „með borgar­línu þar sem hún er skyn­samleg“. Hildur Björns­dóttir, einnig borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokks, sem lýsti því nýverið yfir að hún vilji leiða flokkinn í næstu borgar­stjórnar­kosningum sem fram fara um miðjan maí, sagðist „ekki spennt fyrir stærðarinnar slaufum“ í umferðar­mann­virkjunum en að hún vilji „borgar­línu og Sunda­braut“. Hún kannaðist því ekki við þá lýsingu Þórdísar Lóu Þórhalls­dóttur, borgar­fulltrúa Viðreisnar, sem sagðist líða eins og í Harry Potter-mynd, þar sem ekki mætti segja orðið borgar­lína.

Dóra Björt Guðjóns­dóttir, borgar­fulltrúi Pírata, sagði Sjálfstæðis­flokkinn „þríklofinn“ í skipulags­málum og hafnaði þeim orðum Eyþórs að núverandi meirihluti vildi þvinga fólk út úr einka­bílnum. Sífellt fleira fólk vilji komast um borgina með öðrum ferða­mátum, sagði Dóra Björt. „Það er ekki hluti af okkar gena­samsetningu að vilja aka bílum.“

Hildur sagðist hafa áttað sig á því er hún kom inn í borgar­stjórn að umræða um skipulagsmál væri í skot­gröfum. Hún kallaði umræðuna um samgöngu- og skipulagsmál „menningar­stríð“ þar sem almanna­samgöngum og einka­bílnum væri til að mynda stillt upp á sitt hvorum pólnum. „Galdrarnir og töfrarnir felast í mála­miðlunum,“ sagði hún. „Það er hægt að finna einhverja sann­gjarna nálgun á hlutina þannig að allir geti fundið sinn stað í þessari borg.“

Hún segist hafa stutt borgar­línu­verkefnið eins og það birtist í samgöngu­áætlun sem nyti stuðnings ríkis og bæjar­stjórna í nágranna­sveitar­félögum Reykja­víkur.

Þórdís Lóa, sem á sæti í meirihluta borgar­stjórnar, sagðist taka undir með Hildi hvað varðar að allir eigi að geta fundið sinn stað í borginni. „Við erum alltaf að gefa þessum 5 prósentum, sem eru á sitt hvorum pólnum, of mikla athygli.“

Líkt og Dóra Björt hefði nefnt varðandi áhuga fólks á öðrum ferða­venjum en að nota bíl sýndu „öll gögn sem við fáum“ að fólk væri sammála þéttingu byggðar þótt slíkt þyrfti „sannarlega að gera í ákveðnum skrefum“. Hafa yrði þolinmæði fyrir undir­búningnum. Hugmyndir um þéttingu byggðar í Fossvogi væri dæmi um slíkt. Þar hefði verið kynnt hverfis­skipulag sem væri fyrsta skrefið og til þess gert að fá fram umræðu og athuga­semdir. Ný hverfi væru einnig að fara að rísa, m.a. á Höfða. „Allt tengist þetta lífs­stílnum, samgöngunum og húsnæðinu.“ Ungt fólk vilji færri fermetra og góða þjónustu. Því kalli þyrfti að svara hratt og vel.

Fólk þvingað í borgarlínu - eða einkabílinn

Eyþór hefur gagnrýnt það hvernig borgar­línan er skipulögð innan Reykja­víkur, m.a. að taka eigi burt akreinar til að koma henni fyrir og „þrengja þar með að umferð“.

Egill Helgason, umsjónar­maður Silfursins, spurði hvort að Eyþór væri „í prinsippinu“ með eða á móti borgar­línu. „Ég er með borgar­línu sem er skyn­samleg,“ svaraði Eyþór. Þrenging á aðra umferð væri ekki góð lausn. Verið væri eiginlega að „þvinga fólk til að taka borgar­línu og ég held að það sé röng nálgun“.

Dóra Björt, sem á sæti í meirihluta borgar­stjórnar, sagði þetta ekki rétt. Miklu heldur mætti segja að verið væri að þvinga fólk til að aka bílum. Það hefði verið gert árum og áratugum saman, „einmitt eftir að Sjálfstæðis­flokkurinn var hér við völd og innleiddi aðal­skipulag einka­bílsins á sínum tíma og breytti Reykjavík í bílaborg“.

Ekki á ábyrgð Hildar

Öflugar almennings­samgöngur snúist um að bregðast við fyrir­sjáanlegri fólks­fjölgun í borginni. „Þetta er skipulagsmál sem snýst um þéttingu byggðar og hvernig við byggjum upp göturnar í kringum það. Ef það er einhver sem staðið hefur fyrir menningar­stríði þá er það Sjálfstæðis­flokkurinn. Ég er ekki að segja að Hildur Björns­dóttir hafi borið ábyrgð á því. Hún hefur ekki verið hluti af því stríði. Alls ekki.“

Dóra sagði að það væri ekki „náttúru­lögmál“ að það væri erfitt að komast um borgina án þess að vera á bíl.

Hildur sagðist „mjög fylgjandi stór­bættum almennings­samgöngum“ og ekki vilja „plástra­lausnir“ heldur „mjög djarfar lausnir“. Egill spurði hana hvort hún væri fylgjandi borgar­línu?

„Já, algjör­lega. Ég hef stutt borgar­línu­verkefnið í samgöngu­sáttmálanum“ sem boðaði lausnir fyrir alla, hvort sem litið væri til einka­bílsins, almennings­samgangna eða hjólandi og gangandi. Hins vegar sagði hún borgar­yfirvöld vera með útfærslu á borgar­línu sem væri ekki í þeim sáttmála og nefndi hún sérstak­lega Suður­lands­brautina þar sem gert væri ráð fyrir að fækka akreinum. „Þetta fannst mér vera innlegg í þetta menningar­stríð. Hvers vegna í ósköpunum, þegar við erum að reyna að ná sátt um framtíðar almennings­samgöngur á höfuð­borgar­svæðinu, er verið að varpa þessari sprengju inn í umræðuna?“

Hún sagðist ekki vilja sá lausnir í samgöngu­málum sem væru „árás hver á aðra“.

Þórdís Lóa sagði almennings­samgöngur snúast um tíðni og tíma. Þegar strætis­vagnar sitji fastir í umferð væri ekki verið að spara tíma. „Þess vegna skiptir þessi sér akrein [á Suður­lands­brautinni] gríðar­lega miklu máli.“ Sagði hún fólk verða að þora að segja orðið „borgar­lína“ upphátt. Bætti hún því við að hún væri mjög fylgjandi Sunda­braut sem bæði Hildur og Eyþór nefndu sem hluta af lausninni.

„Auðvitað er borgar­lína ekki hafin yfir gagnrýni,“ sagði Hildur. „Við verðum að geta tekið samtalið. Ef það kemur uppbyggileg gagnrýni þá verðum við að taka hana inn í umræðuna.“

Dóra Björt sagði málið snúast um að „flytja fólk en ekki farartæki“. Hágæða almennings­samgöngur, líkt og Hildur segðist vilja, þurfi sér rými. „Það þarf pláss undir það. Það er einföld eðlis­fræði.“ Ekki ætti að hengja sig í umræðuna um eina akrein á Suður­landsbraut. Hún sagði að fólk þyrfti valfrelsi.

Margir vilja breyta ferðavenjum

Flestar ferðir fólks innan borgarinnar „eru og verða með einka­bílnum,“ sagði Eyþór. Borgar­lína breytti engu þar um.

„Það er ekki hluti af okkar gena­samsetningu að vilja aka bílum,“ sagði Dóra Björt þá. „Það er nú einfald­lega þannig að hvernig þú byggir upp samfélagið og skipulags­málin móta hegðun okkar. Það er ekki bara þannig að Reyk­víkingar vilji bílinn.“

Hildur sagði að í nýjum könnunum sýndi sig að það væri miklu stærri hópur fólks en hún hefði gert sér grein fyrir sem væri reiðubúið að gera breytingar á sínum ferða­venjum. „Það gerir það ekki nema að það fái góða og raunhæfa kosti. Þess vegna þurfum við að bjóða þessa valkosti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár