Markmiðið „að taka yfir borgina“

Sjálfstæðis­flokkurinn í Reykjavík þarf að vera „opinn í báða enda“ þegar kemur að meirihluta samstarfi. Markmiðið er að „taka yfir borgina,“ segir Hildur Björns­dóttir sem sækist eftir forystu­sæti þar sem fyrir er „vinur hennar“, Eyþór Arnalds.

Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir sækjast bæði eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í næstu borgarstjórnarkosningum.
Eyþór Arnalds og Hildur Björns­dóttir sækj­ast bæði eftir því að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

„Ég býð mig fram til forystu og við sækjumst bæði eftir sama sæti,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, þegar Egill Helgason, umsjónar­maður Silfursins, sagði hana vera að bjóða sig fram gegn Eyþóri Arnalds núverandi oddvita flokksins í borginni. „Það er styrkleika­merki hjá stórum flokki að fleiri en einn sækist eftir að leiða.“

Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær prófkjör flokksins í Reykjavík fer fram en miðað er við að það verði í lok febrúar. Kosningarnar fara svo fram um miðjan maí.

„Ætlarðu að berjast fyrir sæti þínu?“ spurði Egill svo Eyþór sem var einnig gestur Silfursins. „Verðu maður ekki að gera það?“ svaraði Eyþór. Hann segist hafa staðið fyrir ákveðnum sjónar­miðum í borgar­málunum og segist skynja núna að það sé kominn fram „miklu breiðari kór“ sem sé sammála um það að margt þurfi að laga í borginni. „Ég tel að ég hafi náð þar hljóm­grunni meðal margra aðila í þjóð­félaginu.“ Hann sagði að nú væri „komið að því að breyta í vor“. Fólk væri komið með „óþol“ og að Sjálfstæðis­flokkurinn væri „eina hreyfi­aflið sem getur breytt“.

Sjálfstæðis­flokkurinn hlaut 31 prósent atkvæða í síðustu borgar­stjórnar­kosningum en endaði í minni­hluta. Ef svipuð niður­staða yrði upp á teningnum þyrfti flokkurinn að leita samtarfs, vilji hann komast til valda. Eyþór segist ekki útiloka samstarf við neinn en nefnt hefur verið að Framsóknar­flokkurinn, kæmi hann sterkt inn í kosningum í vor líkt og hann gerði í þing­kosningunum nýverið, gæti orðið fyrsta val. Eyþór sagði að sjá yrði til hver yrði í framboði til hvers flokks til að sjá „hverjir geta dansað saman“.

Egill spurði Hildi hver væri meiningar­munurinn á henni og Eyþóri. „Telur þú þig geta fiskað betur en hann?“

Hildur sagðist telja að það þyrfti ekki að vera „einhver stórkost­legum meiningar­munur“ þótt fólk væri að sækjast eftir sama sæti. „Það sem fólk þarf þá að gera upp við sig er hvor aðilinn er með meiri aðlaðandi fram­tíðarsýn, hvor sé líklegri til að vinna kosningar og hvor aðilinn sé líklegri til að leiða okkur inn í meirihluta­samstarf.“

Egill spurði þá hvort hún teldi sig líklegri til alls þessa en Eyþór.

„Ég býð mig fram vegna þess að ég tel mig geta gert allt þetta,“ svaraði Hildur. „Ég er ekki komin hingað til að hallmæla vini mínum Eyþóri, við erum samherjar í Sjálfstæðis­flokknum. En við sækjumst eftir sama forystu­sæti og um það snýst málið. Heila málið er auðvitað að vinna kosningar og komast í meirihluta.“

Hún sagði að eftir síðustu kosningar hafi aðrir flokkar lokað á samstarf við Sjálfstæðis­flokk í borgar­stjórn, jafnvel þótt flokkurinn hafi unnið kosninga­sigur. „Það er staða sem við getum ekki fundið okkur aftur í. Við þurfum að vera opin í alla enda. Við þurfum að geta myndað meirihluta með fólki sem á með okkur málefna­legan grundvöll og að við getum tekið yfir borgina. Það er auðvitað markmið okkar sjálfstæðis­manna. Okkur finnst kominn tími á það fyrir löngu síðan að við höfum einhver áhrif í þessari borg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár