Nóbelsverðlaunum í bókmenntum aflýst í ár

Engin nóbels­verðlaun í flokki bókmennta verða veitt í ár, í fyrsta skipti frá seinni heims­styrjöld.

Nóbelsverðlaunin eru afhent í Stokkhólmi.
Nóbels­verð­launin eru afhent í Stokk­hólmi. Mynd: Benoît Derrier/Wikimedia Commons.

Sænska nóbels­verðlauna­akademían tilkynnti í morgun að hún myndi ekki velja verðlauna­hafa í flokki bókmennta árið 2018, þar sem brottfall úr dómnefndinni hafi verið of mikið í kjölfar kynferðis­brota­ásakana. Þetta kemur fram á vef Guardian.

Þetta er í fyrsta skiptið í 75 ár sem akademían hefur hætt við verðlauna­afhendingu, en hún mun þess í stað tilkynna tvo sigurvegara á næsta ári. Ákvörðunin var birt klukkan níu í morgun á sænskum tíma eftir fundarhöld meðlima akademíunnar í gær.

Í tilkynningunni sagði að ákvörðunin hafi verið tekin „í ljósi rýrrar stöðu akademíunnar og lítils traust almennings gagnvart henni.“ Anders Olsson, ritari akademíunnar, sagði nauðsynlegt fyrir hana að taka sér tíma til þess að endur­vekja almennings­traust á henni af virðingu við fyrrum og framtíðar­verðlauna­hafa.

Starf akademíunnar hefur verið í uppnámi eftir röð ásakana um kynferðis­brot franska ljós­myndarans Jean-Claude Arnault, eigin­manns Katarina Frostenson, sem á sæti í akademíunni. Eftir að ásakanirnar urðu opinberar í nóvember síðastliðnum og akademían tók ákvörðun um að vísa Frostenson ekki frá störfum hafa þrír meðlimir úr 18 manna dómnefnd bókmennta­verð­launanna sagt af sér í mótmæla­skyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár