Helgi Seljan fer fram á endurupptöku siðanefndarúrskurðarins

Helgi Seljan hefur krafist þess að úrskurður siða­nefndar RÚV í kærumáli Samherja gegn honum verði endur­upptekinn eða aftur­kallaður, vegna mistaka siða­nefndarinnar sem ekki hafi verið unnið rétt úr og vanhæfis eins nefndar­manna.

Helgi Seljan fer fram á að úrskurður siðanefndar RÚV frá 26. mars verði endurupptekinn í heild sinni.
Helgi Seljan fer fram á að úrskurður siða­nefndar RÚV frá 26. mars verði end­ur­upp­tek­inn í heild sinni. Mynd: Samsett mynd

Frétta­maðurinn Helgi Seljan hefur farið fram á að úrskurður siða­nefndar Ríkis­útvarpsins frá 26. mars, í kærumáli Samherja gegn honum, verði endur­upptekinn eða mögulega aftur­kallaður.

Krafa Helga, sem send var á siða­nefndina þann 10. apríl, byggir á því að mistök siða­nefndarinnar, sem úrskurðaði hann upphaf­lega brotlegan á grund­velli alls fimm ummæla og þar af einna sem alls ekki voru látin falla um Samherja, eigi að leiða til þess að úrskurðurinn verði tekinn upp að nýju.

Einnig hafi komið í ljós eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp að einn þriggja nefndar­manna í siða­nefndinni, Sigrún Stef­ánsdóttir, hafi verið vanhæf til þess að fjalla um málið vegna hagsmuna­tengsla við Samherja.

Heildstætt mat lagt á ummælin, líka þau brottfelldu

Í erindi Vilhjálms H. Vilhjálms­sonar lögmanns Helga til siða­nefndar RÚV er bent á að siða­nefndin hafi komist að þeirri niður­stöðu að Helgi hefði gerst brotlegur með ummælum sínum, sérstak­lega þegar þau væru saman tekin. Einnig hafi nefndin sagt að það þyrfti að skoða alvarleika brots Helga í því ljósi að um væri að ræða ítrekuð tilvik yfir langan tíma.

Af þessu sé ljóst að siða­nefndin hafi lagt mat á ummælin fimm heild­stætt.

Því hafi ekki verið nægilegt að leiðrétta úrskurðinn með því að fella ein ummæli sem Helgi lét falla 13. desember, um fyrir­tækið Eldum rétt en ekki Samherja, á brott og láta úrskurðinn standa óbreyttan að öðru leyti, eins og gert var.

Hin brott­felldu ummæli hafi verið hluti af heildar­mati siða­nefndarinnar og þar með forsenda fyrir þeirri niður­stöðu að Helgi hefði gerst brotlegur við siða­reglur RÚV.

Af þessu leiði að endur­upptaka þurfi úrskurðinn og leggja mat á þau fjögur ummæli sem eftir standa, meðal annars á þeim grunni hvort að réttar­reglur um „orðhefnd og að gjalda líkum líkt“ eigi við um tjáningu Helga, en í erindi lögmannsins segir að framganga Samherja, forsvars­manna hans og tengdra aðila í garð Helga hafi veitt honum „rúmt svigrúm til að tjá sig og svara fyrir sig.“

Sigrún sögð hafa verið vanhæf til að taka sæti í nefndinni

Í endur­upptöku­kröfunni segir einnig að eftir að úrskurður siða­nefndarinnar var kveðinn upp hafi komið í ljós að Sigrún Stef­ánsdóttir, einn nefndar­manna, hafi verið vanhæf til þess að taka sæti í siða­nefndinni og úrskurða í málinu vegna tengsla sinna við Samherja.

Nefndar eru tvær ástæður fyrir meintu vanhæfi Sigrúnar. Í fyrsta lagi hafi hún frá árinu 2014 starfrækt Vísinda­skóla unga fólksins við Háskólann á Akureyri og sé jafnframt skóla­stjóri hans, samkvæmt vefvæði skólans. Á sömu heimasíðu komi fram að Samherji sé einn af styrktar­aðilum skólans sem Sigrún stýrir og starf­rækir.

Í öðru lagi sé Sigrún stjórnar­maður í fjölmiðla­fyrirtækinu N4 á Akureyri, sem sé að hluta til í óbeinni eigu Samherja í gegnum Fjár­festingar­félagið Vör og Síldar­vinnsluna. Vísað er til greinar sem Sigrún skrifaði í Kjarnann 3. apríl 2020, um styrki til einka­rekinna fjölmiðla. Þar skrifaði Sigrún meðal annars að hver mánaðamót í rekstri N4 hefðu verið kvíðvænleg, vegna fjárhags­stöðu miðilsins.

Því er bætt við að það hafi því „eflaust komið sér vel fyrir rekstur N4“ að Samherji hafi keypt klukku­tíma sjónvarps­þátt hjá sjónvarps­stöðinni um nýtt skip, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, sem frum­sýndur var á N4 á annan í páskum.

Samherji birti tilkynningu á vef sínum um þáttinn þann 1. apríl og bent er á að það hafi verið fimm dögum eftir að siðanefnd RÚV komst að þeirri niður­stöðu að Helgi hefði brotið gegn siða­reglum með ummælum sínum um Samherja.

Af þessum ástæðum segir lögmaður Helga að taka beri kröfu um endur­upptöku til greina. Eftir atvikum kunni þó að vera rétt að siða­nefndin aftur­kalli úrskurðinn, enda sé hann ógildanlegur vegna vanhæfis eins nefndar­manns siða­nefndarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár