Eftirlaunalög Davíðs Oddssonar gera hann að langlaunahæsta fjömiðlamanni Íslands

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun­blaðsins, er enn eitt árið tekju­hæsti fjölmiðla­maðurinn á Íslandi með 3,93 milljónum króna á mánuði. Um 1100 þúsund krónur af laununum koma til vegna eftir­launalaga Davíðs.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins
Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins Umdeild eft­ir­launa­lög Davíðs gera hann enn eitt árið að launa­hæsta fjöl­miðla­manni lands­ins.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun­blaðsins, er enn eitt árið tekju­hæsti fjölmiðla­maður landsins. Samkvæmt Tekju­blaði Frjálsrar verslunar sem kom út í morgun voru laun Davíð 3,93 milljónir króna á mánuði í fyrra.

Hluti tekna Davíðs í fyrra, um 1.100 þúsund krónur má rekja til eftir­launalaga hans sem lögfest voru árið 2003 en voru afnumin sex árum síðar. Lögin tóku til eftir­launa, meðal annars, þingmanna og ráðherra og var sérstak­lega áskilið að laun fyrir ritstörf kæmu ekki til frádráttar eftir­launum.

Eftir­launalögin voru mjög umdeild þegar þau voru sett enda fólu þau í sér að æðstu ráðamenn fengu langtum hærri eftirlaun en áður þekktist. Mönnum var heimilt að fara á eftirlaun við 55 ára aldur ef þeir höfðu langa starfs­reynslu. Þá gátu eftirlauna­þegar þegið launin allt að fjögur ár aftur í tímann, ef þeir kusu að þiggja þau ekki, þegar þeir öðlust rétt til þeirra.

Eftirlauna­frumvarp Davíðs var flutt af meðlimum úr öllum þing­flokkum Alþingis árið 2003. Að umræðum loknum voru lögin samþykkt með öllum atkvæðum þingmanna Sjálfstæðis­flokksins og Fram­sóknar, þáverandi stjórnar­flokka, auk eins atkvæðis úr röðum Samfylkingarinnar. Aðrir flokkar féllu frá stuðningi við frum­varpið.

Þegar Davíð var spurður, í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra, hvort hann hefði sett lögin til að hækka eigin eftirlaun sagði hann svo ekki vera. „Þingið setti lögin og það var sérstök þingmanna­nefnd sem lagði frum­varpið að lögunum fram. Frum­varpið var borið fram af þing­mönnum úr öllum flokkum. Þrír þeirra voru úr stjórnar­andstöðunni og tveir úr stjórnar­flokkunum þáverandi.“ Davíð minntist hins vegar ekki á að allir þingmenn stjórnar­andstöðunnar utan Guðmundar Árna Stef­ánssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, féllu frá stuðningi við frum­varpið.

Þá sagði Davíð lögin hafa gagnast stjórnar­andstöðunni mest. „Þeir sem að svo nutu góðs af þessum lögum voru fyrst og fremst formenn stjórnar­andstöðu­flokkanna sem fengu þegar í stað 50 prósenta hækkun á sín laun en þeir sem nutu eftir­launanna samkvæmt lögunum voru þeir ráðherrar sem urðu forsætis­ráðherrar, fyrir utan mig, Geir H. Haarde, Þorsteinn Pálsson, Jóhanna Sigurðar­dóttir og Halldór heitinn Ásgrímsson,“ sagði Davíð.

Samkvæmt lögunum fær Davíð 80 prósent af launum forsætis­ráðherra í eftirlaun og er hlutfall hans hærra en annarra forsætis­ráðherra vegna þess að hann sat lengur í stóli forsætis­ráðherra. Laun forsætis­ráðherra voru hækkuð umtals­vert með umdeildum úrskurði Kjararáðs á kjördegi í fyrra, þann 29. október. Þau nema í dag um 1.490 þúsund krónum án þing­fararkaups og eru því eftirlaun Davíðs í dag um 1.190 þúsund krónur á mánuði.

Í öðru sæti á lista Frjálsar Verslunar er Haraldur Johannessen, framkvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­félags Morgun­blaðsins, en laun hans námu 2,6 milljónum króna á mánuði. Í þriðja sæti er Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Pressunnar og DV með 2,4 milljónir króna, en nýverið var tilkynnt að fjár­festar hefðu bakkað frá hlutafjár­aukningu í félaginu vegna gríðarlegra vanskila. Kristín Þorsteins­dóttir, ritstjóri 365, kemur þar á eftir með 1,46 milljónir. Fimmti hæst launaði fjölmiðla­maðurinn er Ómar R. Valdimarsson, frétta­maður Bloomberg með rúmar 1,4 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár