Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð

Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðar­manna, segir viðræður við hina þrjá flokkana í vinstri­bandalaginu ekki hafa skilað grund­velli fyrir ríkis­stjórn. Þing­forseti er talinn munu fela öðrum flokks­leiðtoga að reyna stjórnar­myndun, líklega fráfar­andi forsætis­ráðherra, Ulf Kristersson.

Magdalena Andersson, leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins, og Ulf Kristersson fyrrverandi forsætisráðherra, leiðtogi Hægriflokksins, í sjónvarpskappræðum TV4 í Stokkhólmi þremur dögum fyrir þingkosningarnar.
Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænska Jafn­að­ar­manna­flokks­ins, og Ulf Kristers­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, leið­togi Hægri­flokks­ins, í sjón­varp­s­kapp­ræðum TV4 í Stokk­hólmi þremur dögum fyrir þing­kosn­ing­arnar. Mynd: Jonathan NACKSTRAND / AFP

Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðar­manna, sagði í dag að sér hefði ekki tekist að mynda ríkis­stjórn með hinum þremur flokkunum í vinstri­bandalaginu eftir þing­kosningarnar 13. september.

„Á grund­velli þeirra viðræðna sem ég hef átt get ég í heildina tekið dregið þá ályktun að eins og staðan er núna sé mér ekki unnt að mynda ríkis­stjórn,“ sagði hún við frétta­menn.

Búist er við að þing­forseti feli öðrum flokks­leiðtoga að reyna stjórnar­myndun, líklega Ulf Kristersson, fráfar­andi forsætis­ráðherra, sem nú fer fyrir starfs­stjórn.

Hægri flokkarnir undir forystu Kristerssons, þar á meðal Svíþjóðar­demó­kratarnir sem eru lengst til hægri, töpuðu kosningunum naumlega. Vinstri­bandalagið hlaut 176 þingsæti gegn 173 sætum hægri flokkanna og verður Kristersson erfitt að tryggja sér meirihluta á þingi.

Eftir ósigurinn sagðist hann reiðu­búinn að kanna leiðir til að mynda meirihluta með þeim sem væru ekki sósíal­istar.

Talið er að hann vilji fá Miðflokkinn til liðs við …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarmyndun í Svíþjóð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár