Fjörutíu druslur í einni bók

Ég er drusla er heiti bókar sem kom út hjá Sölku á dögunum. Þar tjá rúmlega fjörutíu manns sig um kynferðis­ofbeldi frá ólíkum sjónar­hornum með ólíkum hætti. Það er Druslu­gangan sem stendur á bak við útgáfu bókarinnar og einn þriggja ritstjóra er Salvör Gullbrá Þórarins­dóttir. Hún sagði Stundinni frá bókinni og tilurð hennar.

Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir Mynd: Heiða Helgadóttir

Útgáfu bókarinnar Ég er drusla frestaðist um skeið vegna ábendingar um að einn aðstand­enda bókarinnar væri kynferðis­brotamaður, en hún er loks orðin að veruleika.

„Bókin hefur verið í bígerð í heil þrjú ár, en uppruna­lega átti að gefa út ljós­myndabók sem heimild um gönguna. Hætt var við þá útgáfu þegar Druslu­gönguhópnum barst ábending um að einn þeirra sem kom að bókinni væri kynferðis­brotamaður. Ásakanirnar gerðu að verkum að við sáum okkur ekki fært að standa að útgáfunni, enda markmið göngunnar að standa með þolendum og uppræta kynferðis­ofbeldi. Enn var þó í Druslu­gönguhópnum löngun til að fanga anda göngunnar og fólksins sem að henni kemur í bókarform. Eftir nokkra umhugsun áttuðum við okkur á að auðvitað ætti bókin að vera frjáls vettvangur fyrir fólk til að tjá sig á sinn eigin hátt um kynferðis­ofbeldi, femínisma eða hvað sem því lægi á hjarta. Við höfðum því samband við yfir fjörutíu listamenn, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár