Fyrsti ráðherrann segir af sér vegna Partygate

Dómsmála­ráðherra Bretlands hefur sagt af sér vegna veislu­halda í Downingstræti 10 þegar strangar sóttvarna­reglur voru í gildi. Boris Johnson forsætis­ráðherra hefur greitt sekt vegna lögbrota. Hann ætlar ekki að segja af sér en lofar nánari útskýringum.

David Wolfson, dómsmálaráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna Partygate. Hann var þó ekki viðstaddur neitt samkvæmi.
David Wolfson, dóms­mála­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt af sér vegna Par­tygate. Hann var þó ekki við­staddur neitt sam­kvæmi. Mynd: Wikipedia

Tveir ráðherrar Bretlands hafa verið sektaðir vegna Partygate-hneykslisins svokallaða, Boris Johnson forsætis­ráðherra og Rishi Sunak fjármála­ráðherra.

Þeir ætla ekki að segja af sér en það hefur David Wolfson, dómsmála­ráðherra Bretlands og þingmaður Íhalds­flokksins, hins vegar gert.

Hann segist ekki eiga aðra kosta völ en að segja af sér embætti vegna þátttöku ráðherra í samkvæmum í Downingsstræti á tímum útgöngu­banns vegna COVID-19.

Johnson og Sunak voru í vikunni sektaðir af lögreglu vegna brota á sóttvarna­reglum þegar þeir voru viðtstaddir afmælis­veislu forsætis­ráðherra í Downingstræti 10 19. júní 2020. Þeir telja sektirnar ekki ástæðu til að segja af sér embætti.

Þrír þingmenn Íhaldsflokksins krafist afsagnar Johnon

Wolfson segir hins vegar að hann hafi ekki séð annan kost en hann skrifaði Johnson bréf í vikunni þar sem hann gagnrýndi viðbrögð ríkissjórnarinnar við sektunum og lögbrotunum. Wolfson sendi Johnson uppsagnar­bréf sitt í morgun og er fyrsti ráðherrann sem segir af sér vegna Partygate. Aðeins þrír þingmenn Íhalds­flokksins hafa sagt opinber­lega að Johnson eigi að segja af sé.

Breska lög­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­varna­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veirunn­­ar. Johnson var viðstaddur í að minnsta kosti þremur þeirra. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­um. John­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektað­ur.

Johnson hefur lofað að útskýra mál sitt betur og fara yfir allt sem tengist samkvæmunum sem hann hefur sagt við þingmenn. Johnson hefur ítrekað verið sakaður um lygar. Í fyrstu sagði hann að engar reglur hafi verið brotnar. Í viðtali eftir að hann hafði verið sektaður sagði hann að í eigin afmælis­veislu hefði hann aldrei grunað að hann væri að brjóta lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár