Boris Johnson sektaður vegna Partygate

Breska lögreglan hefur ákveðið að sekta forsætis­ráðherra og fjármála­ráðherra bresku ríkis­stjórnarinnar vegna Partygate-hneykslisins svokallaða, samkvæma sem bresk yfirvöld stóðu fyrir á meðan strangar sóttvarna­reglur voru í gildi vegna heims­faraldursins.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármála­ráðherra Bretlands, eiga von á sekt frá lögreglu fyrir að hafa verið viðstaddir samkvæmi á vegum yfirvalda þegar útgöngu­bann vegna COVID-19 var í gildi.

Forsætis­ráðuneytið stað­festir að Johnson og Sunak hafi verið tilkynnt að þeir eigi yfir höfði sér sekt. Fyrstu 20 sektirnar voru gefnar út í byrjun mánaðarins en þær telja nú 50 talsins. Johnson var búinn að gefa það út að hann hyggðist upplýsa um það yrði hann sektaður.

Talsmaður forsætis­ráðuneytisins segir í samtali við BBC að ráðherrarnir hafi ekki verið upplýstir hvaða samkvæmi um ræðir þar sem brot áttu sér stað.

Breska lög­reglan hefur rann­sakað tólf sam­kvæmi á vegum breskra yfir­valda á þeim tíma sem strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar.

Starfs­fólk Down­ingstrætis 10 stóð fyrir tveimur samkvæmum kvöldið áður en jarðarför Fil­ippusar prins fór fram. Tveggja vikna þjóð­ar­sorg hafði verið lýst yfir í Bret­landi vegna frá­falls drottn­ing­ar­manns­ins.

Boris John­son for­sæt­is­ráð­herra var í hvor­ugu sam­kvæm­inu en hefur beðist afsök­unar á að þau hafi farið fram. Hann var hins vegar staddur í um þrjá­­tíu manna veislu í Down­ing­­stræti rúmum mán­uði síðar þegar útgöng­u­­­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi. Veislu­höldin fóru fram í garði Down­ing­­stræti og var hund­rað boðs­­gestum meðal ann­­ars bent á að „hafa eigið áfengi með­­­ferðis til að njóta góða veð­­ur­s­ins eins best væri á kos­ið“. Um 30 manns þekkt­ust boð­ið, þar á meðal John­­son sjálfur og Carrie John­­son, eig­in­­kona hans. Á því hefur hann einnig beðist afsök­un­ar, sem og eigin afmæl­is­veislu sem kona hans skipu­lagði í íbúð þeirra í Down­ingstræti 19. júní 2020 og kveðju­hófi í nóv­em­ber sama ár þegar sér­stakur ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra lét af störf­um.

Leiðtogi Verkamannaflokksins segir ráðherrana þurfa að víkja

Keir Starmer, leiðtogi Verkamanna­flokksins, segir Johnson og Sunak verða að segja af sér vegna Partygate-hneykslisins. „Boris Johnson og Rishi Sunak hafa brotið lögin ítrekað og logið að breskum almenningi,“ segir Starmer, sem telur þá algjör­lega óhæfa til að starfa í ríkis­stjórn. „Bretland á betra skilið.“

Tólf sam­komur eru til rann­­sóknar hjá lög­­­reglu en í skýrslu Gray er fjallað um að minnsta kosti 16. Gray segir að henni hafi verið settar miklar skorður vegna lögreglu­rann­sóknarinnar og því er enn nokkuð í að end­an­­leg og „þýð­ing­­ar­­mik­il“ skýrsla verði gefin út. John­son full­yrðir að end­an­leg skýrsla Gray um „Par­tyga­te“ verði gerð opin­ber.

Ekki liggur fyrir hversu há sektin sem Johnson og Sunak fá en frá því að henni verður framvísað hafa þeir 28 til að greiða sektina. Ákveði þeir að mótmæla sektinni mun lögregla taka málið til endur­skoðunar og í kjölfarið annað hvort draga sektina til baka eða láta reyna á lögmæti hennar fyrir dómstólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár