Rauða kjötið: Áætlunin sem á að bjarga Boris

Pólitísk framtíð Boris Johnson er um margt óljós eftir að hann baðst afsökunar á að hafa verið viðstaddur garð­veislu í Downingstræti í maí 2020 þegar útgöngu­bann vegna COVID-19 var í gildi. „Rauða kjötið“ nefnist áætlun sem á að halda Johnson í embætti.

Fimm dagar eru síðan Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, kom fyrir breska þingið og baðst afsökunar á að hafa verið viðstaddur um hundrað manna veislu í Downingstræti 10, 20 maí 2020, þegar útgöngu­bann vegna útbreiðslu COVID-19 var í gildi.

Veislu­höldin fóru fram í garði Downingstræti og sagðist Johnson skilja reiði almennings á þátttöku hans í veislu­höldunum en hann sagðist hafa verið sann­færður um að „um vinnu­tengdan viðburð hafi verið að ræða“.

Í kjölfar afsökunar­beiðninnar bárust frekari fregnir af skemmtana­haldi í Downingstræti. Á fimmtudags­kvöld greindi breska dagblaðið The Telegraph frá því að starfs­fólk á skrif­stofu forsætis­ráðherra hafi staðið fyrir tveimur kveðjupartýum þar sem tveir starfs­menn voru að láta af störfum. Umrætt kvöld var 16. apríl 2021, kvöldið fyrir útför Filippusar drottningar­manns, þegar strangar sóttvarna­reglur voru í gildi.

Samkvæmt reglunum var óheimilt að umgangast annað fólk innandyra að undan­skildum þeim sem búa á sama heimili. Leyfilegt var að koma saman utandyra í sex manna hópum.

Ljóst er að Johnson berst nú fyrir tilveru­rétti sínum í breskum stjórn­málum. Í gær greindi Nadine Dorries, menningar­mála­ráðherra Bretlands, frá því að afnota­gjald breska ríkis­útvarpsins BBC verður lagt niður eftir fimm ár. Dorries er jafnframt dygg stuðnings­kona Johnson og hefur hann verið sakaður um að nota BBC til að bjarga forsætis­ráðherra­stólnum. Afnám afnota­gjaldanna er talin munu falla vel í kramið hjá Íhalds­flokknum og kjósendum hans.

„Forsætis­ráðherrann telur að þau sem fjalla um brot hans eigi að gjalda þess á meðan hann kemst upp með það,“ segir Lucy Powell, þingkona stjórnar­andstöðunnar. Ákvörðunin er sögð hluti af enn stærri áætlun um að tryggja að Johnson haldi forsætis­ráðherra­stólnum, áætlun sem gengur undir nafninu Red Meat, eða Rauða kjötið.

Þetta er síður en svo í fyrsta sinn sem veisluhöld í Downingstræti á tímum heims­faraldurs koma til tals sem Johnson hefur þurft að svara fyrir. Svo virðist sem umræður síðustu daga, sem og umdeild afsökunar­beiðni Johnson í þinginu í síðustu viku, sé kornið sem fylli mælinn. Atburðar­rásin fram að afsökunarbeiðinni var á þessa leið:

1. desember 2021:

Þegar fyrstu ásakanir um garð­veisluna komu fram í umræðum á þinginu sagði forsætis­ráðherrann að farið hafi verið eftir öllum gildandi reglum. Það ítrekaði hann í viðtali 7. desember.

13. desember 2021:

Johnson er spurður út í „jóla­spurninga­keppni“ sem haldin í Downingstræti 15. desember 2020. „Ég get sagt þér enn einu sinni að ég braut engar reglur. Þetta er allt til skoðunar,“ svaraði forsætis­ráðherrann.

20. desember 2021:

Johnson þvertekur fyrir veisluhöld í Downingstræti 15. maí 2020, þegar útgöngu­bann var í gildi. „Ég á heima hér og ég starfa hér. Þetta voru fundir á vinnutíma sem fjölluðu um vinnuna“

10. janúar 2022:

Johnson var spurður um veislu­höldin í maí 2020 og vísar í rannsókn sérstaks saksóknara á meintum sóttvarna­brotum í Downingstræti 10, sem stendur yfir.

13. janúar 2022:

Johnson biðst afsökunar fyrir að hafa verið viðstaddur garð­veisluna í Downingstræti 20. maí 2020.

Vantrauststillaga möguleg

Fjöldi þingmanna hefur krafist afsagnar Johnson, þar á meðal hátt­settir þingmenn í Íhalds­flokknum líkt og Douglas Ross, leiðtogi Íhalds­manna í Skotlandi, William Wragg, Caroline Nokes, Roger Gale og Steve Baker. Sá síðastnefndi segir í samtali við BBC að af 61 þingmanni Íhalds­flokksins í hans kjördæmi séu á móti því að Johnson sitji áfram sem forsætis­ráðherra. Baker segir að sömu reglur verði að gilda um alla og ómögulegt sé að segja til um hvort hann geti stutt Johnson til að leiða flokkinn í næstu kosningum.

Ross hefur sent 1922-nefnd flokksins, sem sér um helstu forystumál Íhalds­flokksins, bréf þar sem hann leggur fram vantrausts­tillögu á Johnson. Ef nefndinni berast 54 slík bréf verður vantrausts­tillagan tekin til meðferðar innan flokksins. Heimildir The Guardian herma að 35 bréf hafi þegar borist.

Rannsókn sérstaks saksóknara, Sue Gray, á sóttvarna­brotunum í Downingstræti 10 er hafin og sagði Johnson í afsökunar­beiðni sinni að hann væri reiðu­búinn að svara fyrir aðkomu sína að veislu­höldunum. Ráðherrar í stjórn Johnson hafa óskað eftir því við þingmenn Íhalds­flokksins að þeir bíði eftur skýrslu Gray áður en framtíð Johnson hjá flokknum, eða í stjórn­málum almennt, verði tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár