Johnson telur sektina ekki ástæðu til afsagnar

Sektir sem Boris Johnson forsætis­ráðherra, Carrie Johnson eiginkona hans og Rishi Sunak fjármála­ráðherra Bretlands fengu fyrir brot á sóttvarna­reglum á tímum heims­faraldurs snúa að afmælis­veislu forsætis­ráðherra. Þeir ætla ekki að segja af sér.

Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, og Boris Johnson forsætisráðherra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sóttvarnarreglum á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér embætti.
Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, og Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra hafa greitt sektir vegna brota á ströngum sótt­varn­ar­reglum á tímum heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar en telja ekki ástæði til að segja af sér emb­ætti. Mynd: EPA

Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármála­ráðherra Bretlands, ætla ekki að segja af sér ráðherra­embættum þrátt fyrir að hafa verið sektaðir af lögreglu vegna brota á ströngum sóttvarna­reglum sem voru í gildi á tímum heims­faraldurs kórónu­veirunnar.

Sunak, Johnson og Carrie Johnson, eiginkona forsætis­ráðherra, hafa öll verið sektuð fyrir að hafa verið viðstödd afmælis­veislu forsætis­ráðherra í Downingstræti 10 19.júní 2020. Johnson er því fyrsti sitjandi forsætis­ráðherra Bretlands sem er sektaður fyrir að brjóta gegn lögum. Öll þrjú hafa beðist afsökunar og greitt sektina en þingmenn stjórnar­andstöðunnar krefjast þess að Johnson og Sunak segi af sér.

Breska lög­reglan hefur rann­sakað tólf sam­kvæmi á vegum breskra yfir­valda á þeim tíma sem strangar sótt­varna­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar. Fyrstu 20 sektirnar voru gefnar út í byrjun mánaðarins en þær telja nú 50 talsins og von er á fleirum. Johnson var búinn að gefa það út að hann hyggðist upplýsa um það yrði hann sektaður.

Það varð svo ljóst í gær og Johnson segir að vegna sektarinnar beri honum „enn ríkari skylda til að standa við skuld­bindingar sínar“ og Sunak sagðist vilja „einbeita sér að því að standa sig fyrir bresku þjóðina“.

Hvarflaði ekki að Johnson í afmælisveislunni að lögbrot væri mögulegt

Ekki hefur verið gefið upp hversu há sektin er en Johnson fullyrti í ávarpi sem hann flutti fyrir fjölmiðla í gær að hann væri búinn að greiða hana. Johnson sagðist skilja reiði almennings vegna málsins

„Ég hef greitt sektina og biðst enn og aftur afsökunar,“ sagði Johnson, aðspurður hvort hann ætlaði að segja af sér. Hann sagðist vilja einblína á þau mikilvægu verkefni sem fram undan eru, meðal annars áhrif stríðsins í Úkraínu.

Johnson segir að afmælis­veislan hafi aðeins staðið yfir í um tíu mínútur og að það hefði ekki hvarflað að honum á þeim tíma að hann, eða aðrir viðstaddir, væru að gerast brotleg við lög. „En að sjálfsögðu, lögreglan hefur komist að því að svo hafi verið og ég virði niður­stöðu rann­sóknar hennar að fullu,“ sagði Johnson.

„Bretland verðskuldar meira, þeir verða að víkja“

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar saka Johnson og Sunak um að ljúga að almenningi um þátttöku þeirra í samkvæmum á vegum forsætis­ráðuneytisins í Downingstræti 10. Keir Starmer, leiðtogi Verkalýðs­flokksins, fer þar fremst í flokki.

„Hugsanir mínar eru hjá öllum þeim sem gerðu hið rétta. Þetta er eins og löðrungur fyrir þau sem færðu fórnir, hittu ekki ættingja, gátu ekki verið viðstödd jarðar­farir, brúðkaup eða jafnvel fæðingu barna sinna. Seku mennirnir eru forsætis­ætis­ráðherra og fjármála­ráðherra, þeir vanvirtu allar þessar fórnir. Þetta er í fyrsta sinn sem sitjandi forsætis­ráðherra brýtur lög. Svo laug hann að almenningi um það. Bretland verðskuldar meira, þeir verða að víkja“ sagði Starmer í samtali við BBC.

Flestir ráðherrar ríkis­stjórnarinnar hafa lýst yfir stuðningi við Johnson og Sunak. Grant Shapps samgöngu­ráðherra segir að Johnson „dauð­skammist sín“ vegna sektarinnar en að hann hafi ekki brotið lög af ásettu ráði. „Allir eru mennskir. Fólk gerir mistök,“ segir Shapps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár