Nýr formaður efnahags- og viðskiptanefndar styrktur af félagi sem kemur fyrir í Panamaskjölunum

Einn af fimm styrkt­ar­að­ilum Óla Björns Kára­sonar er fyr­ir­tæki sem átti hlut í aflands­fé­lagi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis hefur fjallað um mál­efni skatta­skjóla og laga­breyt­ingar til að sporna gegn aflands­starf­semi Íslend­inga.

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nýkjör­inn for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, þáði styrk frá fyr­ir­tæki sem kemur fyrir í Panama­skjöl­unum og átti hlut í aflands­fé­lagi á Bresku Jóm­frú­areyj­unum á árunum 2007 til 2010. 

Frá því að fjallað var um Panama­skjölin síð­asta vor hefur efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis átt aðkomu að þverpóli­tískri vinnu er lýtur að aflands­starf­semi og skattaund­anskotum. Þannig var til dæmis fyrr­ver­andi for­manni nefnd­ar­innar, Frosta Sig­ur­jóns­syni, falið að „skera upp herör gegn skatta­skjólum“ en nefndin fund­aði með full­trúum skatt­rann­sókn­ar­stjóra, rík­is­skatt­stjóra og Seðla­bank­ans og skil­aði í kjöl­farið skýrslu um skatta­skjól og mögu­legar laga­breyt­ingar til að sporna við starf­semi þeirra.

Formenn og vara­for­menn allra fasta­nefnda Alþingis voru kjörnir á Alþingi í síð­ustu viku og fékk Óli Björn for­manns­sætið í efna­hags- og við­skipta­nefnd. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birt­ust á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í síð­ustu viku þáði Óli Björn styrki frá þremur fyr­ir­tækjum og tveimur ein­stak­lingum í próf­kjörs­bar­áttu sinni. Eitt fyr­ir­tækj­anna, Sigla ehf, sem styrkti hann um 150 þús­und krónur, kemur fyrir í Panama­skjöl­unum og var hlut­hafi í félag­inu Petrina Properties Inc. Umrætt félag var stofnað og skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum árið 2007 með aðstoð lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca og afskráð árið 2010.

Sigla er, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem fáan­legar eru á Credit info, í eigu Gana ehf, félags Tómasar Krist­jáns­sonar, og er stjórn­ar­for­maður félags­ins Finnur Reyr Stef­áns­son. Sigla á 95 pró­senta hlut í Klasa fjár­fest­ingu og Helj­arklambi hf., 85 pró­senta hlut í Klasa ehf og 66,7 pró­senta hlut í Draupni-Siglu ehf. Þá á félagið einnig í Senu, Kviku banka, Regin, Skelj­ungi, Sjóvá-Almennum trygg­ingum og OZ ehf. 

Sjá einnig:

Spyr hvort útvista megi starf­semi eft­ir­lits­stofn­ana til einka­að­ila

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár