Segja stjórnvöld gefa erlendum stórfyrirtækjum auðlindir Íslands

80 þúsund frjóir laxar eru taldir hafa sloppið úr kvíum Arnarlax á Vestfjörðum. Villti laxa­stofninn á Íslandi telur aðeins um 50 þúsund laxa. Um er að ræða „grafal­varlegt umhverfis­slys“.

Um 80 þúsund eldislaxar sluppu úr einni kví Arnarlax í Arnarfirði síðasta sumar.
Um 80 þús­und eld­is­laxar sluppu úr einni kví Arnarlax í Arn­ar­firði síð­asta sumar. Mynd: Arnarlax

„Er stefna stjórn­valda að þurrka út villtan lax á Íslandi og þar með hlunnindi og ferða­þjónustu í laxveiðiám fyrir ofsagróða norskra sjókvíaeldis­fyrirtækja? Af hverju eru íslensk stjórn­völd að gefa erlendum stór­fyrirtækjum auðlindir okkar?“ Þannig spyr fjöldi samtaka og fyrir­tækja sem skora á matvæla­ráðherra að stöðva laxeldi í opnum sjókvíum áður en það verði um seinan. Kallað er eftir „trúverðugri áætlun sem miðar að því að banna alfarið laxeldi í sjókvíum hér við land“.

Nýverið lagði Matvæla­stofnun 120 milljóna króna stjórnvalds­sekt á sjókvíaeldis­fyrirtækið Arnarlax er upp komst að fyrir­tækið gat ekki gert grein fyrir örlögum yfir 80 þúsund laxa sem sleppt hafði verið í kví fyrir­tækisins í Arnar­firði. Ljóst þykir að þeir hafi sloppið út í náttúruna. Sakar MAST Arnarlax um að hafa brotið gegn skyldu til að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á honum.

Við slátrun úr sjókví 11 við Haganes í Arnar­firði í október varð ljóst að fyrir­tækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í október 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en nú í október, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reyndist fjöldinn sem kom upp úr kvínni hins vegar vera aðeins 18.315 laxar.

Hófst þá rannsókn MAST sem leiddi í ljós misræmi í fóðurgjöf miðað við uppgefinn fjölda fiska í kvínni. Veruleg frávik höfðu orðið í fóðurgjöf í umræddri kví frá því í júní í fyrra „sem hefði átt að vekja sterkar grun­semdir fyrir­tækisins um að eitthvað alvarlegt væri á seyði,“ sagði í tilkynningu MAST um málið.

Í ágúst í fyrra var tilkynnt um gat á umræddri kví og þá sagt að það hefði ekki verið á henni við eftirlit um mánuði fyrr.

Arnarlax svarar fyrir sig

Forsvars­menn Arnarlax svöruðu þessari ákvörðun MAST með því að tilkynna að þeir hyggðust kæra hana á þeim forsendum að „öllum viðbragðs­ferlum fyrir­tækisins, sem og lögum og reglum, hafi verið fylgt til hins ítrasta“. Í tilkynningu sögðu forsvars­mennirnir að þeim þætti „mjög miður“ að lax hefði sloppið og að fyrir­tækið muni draga lærdóm af „þessu óhappi“.

Samtökin og fyrir­tækin sem sent hafa stjórn­völdum áskorun vegna slyssins benda á að villti laxa­stofninn á Íslandi telji um 50 þúsund laxa. Slysa­sleppingin, þar sem um 80 þúsund frjórir norskir eldis­laxar hafi sloppið út í náttúruna, sé „grafal­varlegt umhverfis­slys“ sem muni hafa „alvarleg erfða­fræðileg áhrif“ á villta laxa­stofna á Íslandi. Slysa­sleppingin sé enn fremur stað­festing þess „að fögur fyrirheit fyrir­tækja í sjókvíaeldi eru fölsk og opinberar hún einnig skeytingar­leysi fyrir­tækisins gagnvart hagsmunum nátt­úrunnar þegar ákveðið er að mótmæla sektar­greiðslunni“.

Samtökin benda á að erfða­mengun villtra stofna í kjölfar slysa­sleppinga er óafturkræft umhverfis­slys. Ekki standi villtum laxa­stofnum þó aðeins ógn af sjókvíaeldi því iðnaðurinn skilji einnig eftir sig mengun á hafsbotni. Þá stafi öðrum villtum stofnum ógn af lúsafári og sjúkdómum. Ennfremur sé ímynd óspilltrar náttúru Íslands í hættu.

Orðspor Íslands svert

Á Íslandi eru rúmlega 2.250 lögbýli sem treysta á tekjur frá laxveiðiám og skapar laxveiðin margfalt fleiri störf en sjókvíaeldi mun nokkurn tíma gera, segir í áskorun samtak­anna og fyrir­tækjanna. Efnahagslegt virði lax- og silungs­veiða nemi 13,5 milljörðum króna árlega. „Slysa­sleppingar sem þessi rýra verðmæti þeirra náttúru­legu auðlinda sem fjöl­skyldur á lands­byggðinni treysta á.“ Orðspor Íslands sem uppruna­lands hrein­leika sé einnig svert. „Ætla stjórn­völd að gera sömu mistök og aðrar þjóðir sem ala frjóan og framandi lax í opnum sjókvíum?“

Skorað er á matvæla­ráðherra að stöðva laxeldi í opnum sjókvíum áður en það verði um seinan. „Það er ljóst að ef stjórn­völd hafa raun­verulegan áhuga á að vernda villta laxa­stofna og náttúru Íslands, þá þarf að stöðva fiskeldi í opnum sjókvíum.“ Á meðan verið sé að stunda sjókvíaeldi á Íslandi þurfi að gera það eftir allra ströngustu stöðlum og er bent á svonefnda NASCO-staðla í því samhengi. Skorað er á matvæla­ráðherra að innleiða þessa staðla og „gefa engan afslátt af þeim á meðan verið er að stunda þessa mengandi starfsemi í fjörðum landsins“.

Einnig er skorað á ferðamála­ráðherra að vernda þau 2.250 lögbýli sem treysta á laxveiði­hlunnindi sem séu auk þess „ómetanlegur partur af ferða­þjónustu landsins“.

Samtökin og fyrirtækin sem skrifa undir áskorunina eru:

NASF á Íslandi, Lands­samband Veiði­félaga, Icelandic Wildlife Fund, Laxinn Lifi, Landvernd, Náttúru­verndar­samtök Íslands, Ungir Umhverfis­sinnar, Lax-á, Veiði­flugur, Veiðivön, Höklar, Six Rivers Project, Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Starir, Miðfjarðará, Eleven Experience, Norðurá, Stanga­veiðifélag Reykja­víkur (SVFR), Hreggnasi, Vatns­dalsá, Veiði­félagið, Fish Partner og Flugu­búllan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár