Arnarlax getur ekki gert grein fyrir afdrifum tugþúsunda laxa – „Vítavert aðgæsluleysi“

Matvæla­stofnun hefur lagt stjórnvalds­sekt á laxeldis­fyrirtækið Arnarlax upp á 120 milljónir króna fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski.

Verið getur að tugþúsundir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síðasta sumar.
Verið getur að tug­þús­undir laxa hafi sloppið úr kvíum Arnarlax síð­asta sumar. Mynd: Norska Hafrannsóknarstofnunin

Aðeins 18.315 laxar reyndust vera í kví laxeldis­fyrir­tækisins Arnarlax í Haganesi í Arnar­firði er slátrað var upp úr henni í október. Samkvæmt skráningu hafði tæplega 133 þúsund löxum verið sleppt í kvína. Því er ljóst að fyrir­tækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta. Þeir hafa líklega sloppið úr kvínni og gæti sá atburður hafa átt sér stað í fyrra­sumar.

Matvæla­stofnun hefur því ákveðið að sekta Arnarlax um 120 milljónir króna „fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski,“ líkt og segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í október 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en nú í október, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reyndist fjöldinn sem upp kom hins vegar vera aðeins 18.315 laxar.

Í ágúst í fyrra tilkynnti Arnarlax um að gat hefði fundist á einmitt þessari kví. Þá voru viðbrögð fyrir­tækisins í samræmi við kröfur sem gerðar eru um slíka atburði að mati Matvæla­stofnunar. Tugir laxa úr kvínni veiddust svo í ám við Arnar­fjörð, m.a. í Mjólká, skammt frá virkjuninni.

En þegar tölur úr slátruninni í október lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúmlega 80 þúsund laxa, hóf MAST strax rannsókn og krafði Arnarlax meðal annars um skýringar á misræmi í fóðurgjöf miðað við uppgefinn fjölda fiska í kvínni.

Kom þá í ljós að veruleg frávik höfðu orðið í fóðurgjöf í kví 11 frá því í júní 2021, eða tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um gat á kvínni síðastliðið sumar, „sem hefðu átt að vekja sterkar grun­semdir fyrir­tækisins um að eitthvað alvarlegt væri á seyði,“ segir MAST.

Alvarlegt brot

Samkvæmt 1. gr. laga um fiskeldi eru markmið laganna meðal annars þau að stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytja­stofna og telur Matvæla­stofnun að um alvarlegt brot sé að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytja­stofna og lífríki, sem og að um er ræða brot sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri stjórn og innra eftirliti fyrir­tækisins. Matvæla­stofnun telur aðgæslu­leysi Arnarlax hafi verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar.

Samkvæmt sömu lögum getur Matvæla­stofnun lagt stjórnvalds­sekt á þá aðila sem brjóta gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strok­fiski, hvort sem umrædd brot megi rekja til ásetnings eða gáleysis. Jafnframt segir í lögunum að við ákvörðun sektar skuli m.a. tekið tillit til alvarleika brots, hvað það hafi staðið lengi og þeirra hagsmuna sem eru í húfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár