Enn einn „hákarlinn“ fellur – Hatuikulipi segir af sér

Allir þrír áhrifa­mennirnir í Namibíu sem tryggðu Samherja kvóta á undir­verði gegn ætluðum mútu­greiðslum hafa nú sagt af sér.

James Hatuikulipi.
James Hatuikulipi. Mynd: Fischor

James Hatuikulipi, einn þeirra fjögurra áhrifa­manna í Namibíu sem liggja undir grun að hafa þegið mútur frá Samherja, hefur sagt af sér sem stjórnar­formaður í ríkis­fyrirtækinu Namibian Fishing Corporation (Fishcor). Hatuikulipi er frændi Tamson Hatuikulipi, tengda­sonar Bernhard Esau, nú fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu. Esau sagði af sér embætti ásamt Sacky Shanghala, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, daginn eftir að Kveikur og Stundin opinberuðu viðskipta­hætti Samherja í landinu og það að áðurnenfndir fjórir menn hafi þegið mútur upp á að minnsta kosti 1,4 milljarða króna fyrir að tryggja Samherja aðgengi að ódýrum kvóta.

Namibian Sun greinir frá því að James Hatuikulipi hafi sagt af sér sem stjórnar­formaður. Mikill þrýstingur hafði verið á hann síðastliðna viku að gera slíkt, en hann sagði starfi sínu lausu hjá fjár­festinga­félaginu Investec í síðustu viku. Þar með eru allir þeir þrír menn sem gegndu valda­miklum störfum á vegum hins opinbera í Namibíu, og liggja undir grun um að hafa þegið stór­felldar mútu­greiðslur, búnir að segja sig frá störfum sínum.

Fischor var í þeirri stöðu að fá úthlutað hrossa­makrílkvóta frá Esau sjávar­útvegs­ráðherra sem Fischor seldi svo áfram til Samherja á kosta­kjörum, samkvæmt umfjöllum Kveiks og Stundarinnar.

Þorsteinn Már líka búinn að víkja tímabundið

Í sér­­­stökum tvö­­­földum Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV fyrir átta dögum kom fram að vís­bend­ingar væru um að þarna væri um mút­u­greiðslur að ræða til að kom­­ast yfir kvóta í land­inu á sem ódýrastan hátt. Umfjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

Þar sagði einnig að starfs­hættir Sam­herja í Namib­­íu, og þeirra sem fyr­ir­tækið á að hafa greitt mútur til, hefðu verið til rann­­sóknar hjá þremur eft­ir­lits­­stofn­unum í land­inu, meðal ann­­ars spill­ing­­ar­lög­regl­unni þar. Auk þess eru yfir­­völd á Íslandi og í Nor­egi með­­vituð um mál­ið.

Umfjöll­unin er byggð á þús­undum skjala og tölvu­­póst­­­sam­­skipta starfs­­manna Sam­herja þar sem starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins, eins þess stærsta á Íslandi, í Namibíu síð­­ast­lið­inn tæpan ára­tug er til umræðu. Gögn­unum var lekið til Wikileaks og Kveikur hef­­ur, ásamt Stund­inni, unnið ítar­­lega umfjöllun úr þeim.

Auk þess var í Kveik birt við­­tal við Jóhannes Stef­áns­­son, sem var verkefna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram á árið 2016, þar sem hann við­ur­kenndi að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í land­inu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a.

Jóhannes sagði í Kveik að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, for­­stjóra Sam­herja. Þar kall­aði hann starf­­semi Sam­herja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­­starf­­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­­­festa ann­­ars staðar í heim­in­­um.

Eftir­málar opinberunarinnar hafa meðal annars verið þeir að Þorsteinn Már hefur vikið tíma­bundið sem forstjóri Samherja og stjórnar­formaður Framherja í Færeyjum og Síldar­vinnslunnar í Neskaupstað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár