FM Belfast hafa enn ekki fengið greitt fyrir Airwaves

Hljóm­sveitin FM Belfast hefur ekki fengið greitt fyrir tón­leika á Iceland Airwaves eftir að skipt var um kenni­tölu. Nýir rekstr­ar­að­ilar saka FM Belfast um að hafa gleymt að senda reikn­ing.

Hljómsveitin FM Belfast
Hljóm­sveitin FM Belfast FM Belfast er ein af vin­sæl­ustu hljóm­sveitum lands­ins.

Hljóm­sveitin FM Belfast hefur enn ekki fengið greitt fyrir tón­leika sína á Iceland Airwaves síð­asta haust. Nýir rekstr­ar­að­ilar hafa tekið við hátíð­inni á nýrri kenni­tölu, en þeir saka FM Belfast opin­ber­lega um að hafa gleymt að senda gamla félag­inu reikn­ing. For­sprakki hljóm­sveit­ar­innar segir að þau hafi verið beðin um að bíða með að senda reikn­ing.

Deil­urnar fóru fram á Twitter í vik­unni eftir að síða Iceland Airwaves aug­lýsti á mið­viku­dag eftir sjálf­boða­liðum á næstu hátíð. Tón­list­ar­mað­ur­inn Kristján Hrannar svar­aði fyr­ir­spurn­inni þannig að Airwaves ættu að biðja FM Belfast um að vera sjálf­boða­liðar, þar sem hljóm­sveitin hefði þegar unnið sjálf­boða­liða­starf á síð­ustu hátíð. Á hann þar við að hljóm­sveitin hafi ekki fengið greitt vegna kenni­tölu­skipt­anna.

Airwaves svör­uðu degi síðar og sögðu alla reikn­inga gjald­þrota félags­ins frá tón­list­ar­mönnum hafa verið greidda, nema þá sem bár­ust eftir að skipta­stjóri tók við félag­inu. „Eina ástæðan fyrir því að FM Belfast fékk ekki greitt að fullu eins og aðrir tón­list­ar­menn á þeim tíma er ein­fald­lega að þau gleymdu að senda okkur reikn­ing,“ skrifa Iceland Airwaves. „Svo í febr­úar, ca. 4 mán­uðum eftir síð­ustu hátíð, þegar skipta­stjóri tók við, voru engar upp­lýs­ingar um þessa skuld neins staðar.“

Airwaves segja nauða­samn­inga hafa náðst sem feli í sér að aðrir aðilar fái 30% sinna krafna greiddar og FM Belfast sé á meðal þeirra.„Núver­andi eig­endur Airwaves skulda engum pen­ing og hafa aldrei látið ein­asta reikn­ing ógreiddan,“ skrifa Iceland Airwaves. „Við munum með glöðu geði ræða þetta mál frekar við FM Belfast.“

„Við unnum vinnuna okkar, það voru nokkur vitni“

„Hér má sjá Iceland Airwaves reyna að kenna okkur um að hafa ekki fengið greitt vegna þess að við hefðum ekki sent reikn­ing tím­an­lega,“ skrifar Árni Rúnar Hlöðvers­son, með­limur FM Belfast, á Twitter. „Stað­reynd máls­ins er að við vorum beðin um að senda reikn­ing í mars. Svo er það stað­reynd að við unnum vinn­una okkar, það voru nokkur vitni.“

Sena live keypti í febr­úar hátíð­ina af fyrr­ver­andi rekstr­ar­að­ila IA tón­list­ar­há­tíð ehf., en hátíðin hafði verið rekin með tapi í tvö ár. Grímur Atlason, sem stýrði hátíð­inni í átta ár, lét af störfum á sama tíma. Sena live keypti einnig vöru­merki hátíð­ar­innar og lén af Icelandair, en Icelandair verður áfram helsti styrkt­ar­að­ili hátíð­ar­innar og vinnur að mark­aðs­setn­ingu hennar inn­an­lands og utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kaup á Iceland Airwaves

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár