Íslenskir tónlistarmenn sitja eftir með sárt ennið eftir að Airwaves fór á nýja kennitölu

Fjöldi íslenskra tón­list­ar­manna hefur ekki fengið greitt frá félag­inu sem rak Iceland Airwaves hátíð­ina þar til í fyrra. Lögmaður stjórnar félags­ins segir að greiðslur til starfs­fólks og tón­list­ar­manna bíði samn­inga.

Frá Airwaves
Frá Airwaves Tón­list­ar­há­tíðin Iceland Airwaves hefur fengið stuðn­ing frá Reykja­vík­ur­borg og fleiri aðilum, en rekstr­ar­fé­lag hátíð­ar­innar fór í þrot.

Fjöldi íslensks tón­list­ar­fólks hefur ekki fengið greitt vegna Iceland Airwaves hátíð­ar­innar síð­asta haust. Nýir rekstr­ar­að­ilar hafa tekið við hátíð­inni á nýrri kenni­tölu, en lög­maður gamla félags­ins segir að unnið sé að samn­ingum um upp­gjör þess­ara skulda og ann­arra.

Sena live keypti í febr­úar hátíð­ina af fyrr­ver­andi rekstr­ar­að­ila IA tón­list­ar­há­tíð ehf., en hátíðin hafði verið rekin með tapi í tvö ár. Grímur Atlason, sem stýrði hátíð­inni í átta ár, lét af störfum á sama tíma. Sena live keypti einnig vöru­merki hátíð­ar­innar og lén af Icelandair, en Icelandair verður áfram helsti styrkt­ar­að­ili hátíð­ar­innar og vinnur að mark­aðs­setn­ingu hennar inn­an­lands og utan.

Árni Rúnar Hlöðvers­son, með­limur hljóm­sveit­ar­innar FM Belfast, segir hljóm­sveit­ina ekki hafa fengið greitt fyrir síð­ustu hátíð í færslu á Facebook síðu sinni.

„Ógeðs­lega glatað að eiga ekki fyrir laun­unum okkar og sjá á sama tíma aug­lýs­ingu frá Icelandair með mynd­broti af okkur að spila á Iceland Airwaves sem við höfum ekki enn fengið borgað fyrir. Hátíðin mun svo halda áfram með nýjum rekstr­ar­að­ila sem er vænt­an­lega með betri kenni­tölu. Réttast væri að Icelandair gerði upp skuldir við lista­menn áður en þau fara að berja sér á brjóst fyrir ágæti hátíð­ar­innar.“

Unnið að samningum

Eggert Ólafsson, lög­maður stjórnar IA tón­list­ar­há­tíð, segir að unnið sé nú að samn­ingum við þá aðila sem félagið skuldar með frjálsum nauða­samn­ingi. Hann segir að þeim tón­list­ar­mönnum sem sendu reikn­ing fyrir ára­mót hafi þegar verið greitt, en aðrir bíði nið­ur­stöðu samn­ing­anna. Laun og greiðslur til tón­list­ar­manna verði í for­gangi.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar mun Icelandair koma að ein­hverju leyti að nið­ur­stöðu samn­ing­anna, enda vöru­merki Iceland Airwaves fyr­ir­tæk­inu mik­ils virði. Ekki náð­ist í Guðmund Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­sviðs Icelandair, við vinnslu frétt­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kaup á Iceland Airwaves

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár