Ríkisháskólinn í Michigan borgar 50 milljarða til fórnarlamba Nassars

Larry Nassar braut kynferðis­lega gegn 332 stúlkum, meðan hann starfaði við Michigan State University. Samkomulag hefur náðst um himinháa greiðslu.

Ríkis­háskólinn í Michigan (Michigan State University) hefur samþykkt að greiða 332 fórnar­lömbum kynferðis­afbrota­mannsins Larry Nassar, sem um tíma var læknir bandaríska lands­liðsins í fimleikum, 500 milljónir Bandaríkja­dala í bætur, eða sem nemur um 50 milljarða króna.

Nassar starfaði lengi við skólann, og braut gegn mörg hundruð stúlkum meðan hann sinnti starfi sínu.

Frá þessu var greint í sameiginlegri yfir­lýsingu skólans og lögmanna­teymis fórnar­lambanna í dag. Í frásögn New York Times kemur fram að velgjörðar­sjóðir skólans (Trustees) muni sjá um að greiða bæturnar, en ekki hefur ennþá verið gengið frá fjár­mögnun á þessari upphæð.

John Manly, aðal­lögmaður fórnar­lamba Nassars, segir að bóta­greiðslan hafi verið ákveðin, eftir gífurlega erfið­leika sem fórnar­lömbin hafi þurft að ganga í gegnum. „Það þurfti hugrekki meira en 300 kvenna til að stöðva brotin,“ sagði Manly.

Hann segist bera þá von eftir­lifandi fórnar­lamba Nassars í brjósti, að þessi bóta­greiðsla - og málið allt - muni skapa fordæmi fyrir aðra sem hafa verið í sambærilegri stöðu, og leiða til þess að kynferðis­brot í íþróttum, skólum og annars staðar í samfélaginu verði ekki liðin eða þögguð niður.

Nassar hefur þegar hlotið þrjá lífstíðar­dóma fyrir brot sín, og fangelsis­refsing hefur í þeim verið á bilinu 40 til 125 ára fangelsi. Hann mun að líkindum deyja í fangelsi, þar sem möguleiki á reynslu­lausn er ekki fyrir hendi á næstunni.

Nassar er 54 ára gamall. Upp komst um brot hans, þegar stúlkur sem hann hafði brotið gegn stigu fram, ein af annarri, og lýstu hrika­legum brotum hans og afleiðingum þeirra.

Bandaríska alríkis­lögreglan rann­sakaði glæpi hans og var hann ákærður að lokum, í þremur mismund­andi málum. Auk þess að vera dæmdur fyrir ítrekuð kynferðis­brot gagnvart stúlkum, var hann einnig dæmdur fyrir að vera með barnaklár í vörslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár