Búið að blessa sölu á Bónusbúðum til Sigurðar Pálma

Hagar munu kaupa Olís á 10,7 milljarða króna á næstu vikum. Vonir standa til um að hægt verði að ganga frá kaupunum um miðjan nóvember. Óháður kunnáttu­maður mat kaupendur á verslunum hæfa.

Hagar hafa undir­ritað kaup­samninga um allar eignir sem félagið þarf að selja til að uppfylla sátt við Samkeppnis­eftirlitið vegna kaupa þess á Olís. Óháður kunnáttu­maður hefur skilað áliti og metið kaupendur eignanna hæfa.

Um er að ræða þrjár Bónus­verslanir á höfuð­borgar­svæðinu en Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Sports Direct á Íslandi og annar eigandi vefverslunarinnar Boxins, er sá sem mun kaupa. Um er að ræða Bónus­verslanirnar á Hall­veigarstíg, Smiðju­vegi og í Faxafeni. Sigurður Pálmi er sonur Ingibjargar Pálma­dóttur, en faðir hennar stofnaði og rak Hagkaups­veldið um árabil. Eigin­maður Ingibjargar er Jón Ásgeir Jóhannesson, stofnandi Bónus. Félög tengd þeim hjónum eiga um fimm prósenta hlut í Högum.

Í kynningu á hálfsárs­uppgjöri Haga segir að nú sé ljóst að kaup­verðið á Olís og tengdu fasteigna­félagi verði 10,7 milljarðar króna. Um 5,4 milljarðar verða greiddir í reiðufé en um 5,3 milljarðar króna´i formi hlutafjár. Olís mun einnig þurfa að selja fimm eldsneytis­stöðvar. Von er á endanlegri niður­stöðu Samkeppnis­eftirlitsins um samruna félaganna tveggja um miðjan nóvember.

Vörusala jókst lítillega

Hagnaður Haga á fyrstu sex mánuðum ársins var 1.436 milljónir króna og vörusala félagsins nam 37,7 milljörðum króna. Það er um 500 milljónum meiri sala en var hjá félaginu á sama tímabili á síðasta rekstrarári. Framlegð félagsins var 9.155 milljónir króna, saman­borið við 9.197 milljónir króna árið áður eða 24,3 prósent framlegð saman­borið við 24,7 prósent á fyrra ári.

EBITDA-hagnaður var tæplega 2,4 milljarðar króna og eigið fé félagsins í lok tíma­bilsins var 18,3 milljarðar króna. Það þýðir að eiginfjár­hlutfallið var 60 prósent.

Hlutabréf í Högum hafa lækkað um 4,55 prósent í 290 milljón króna viðskiptum það sem af er degi. Ekkert félag í Kauphöll Íslands hefur lækkað jafn mikið í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár